Fréttablaðið - 11.12.2003, Síða 26

Fréttablaðið - 11.12.2003, Síða 26
tíska o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur t ísku Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: tiska@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. OSWALD BOATENG Oswald Boateng frá Englandi og Ghana er nýskipaður fram- kvæmdastjóri franska tísku- hússins Givenchy Homme. Hann mun sjá um fyrstu herralínu tískuhússins, sem sýnd verður á næsta ári. Náttsloppur Sími 5 88 44 22 www.hm.iskr. 1.890 Stærðir:36/38 - 40/42 - 44/46 Mjúk fleece Brúðarkjólaleiga Katrínar í Mjódd Síðkjólar í úrvali - Sala og leiga Nýir brúðarkjólar frá: Amanda Wyatt. D’Zage, Maggi Sotero. Mori Lee og Sincerity væntanlegir. Útsala á eldri kjólum. S: 551 6688 Njóttu lífsins J ó l a k j ó l a r á stelpur og konur Allur aldur og allar stærðir Prinsessan verslun í Mjódd, s. 567 4727 www.prinsessan.is Ný sending af glæsilegum síðum peysum, pilsum, háskólabolum og gólfpeysum Sissa tískuhús G l æ s i b æ , s í m i 5 6 2 5 1 1 0 Opið laugardag 10-18 • sunnudag 12-17 Verðdæmi: háskólabolir kr. 2490 Nýtt kortatímabil Rautt og svart er allsráðandi íversluninni Elm nú á vetrar- mánuðum og mætti segja að tölu- vert jólalegt sé þar um að litast. Fatahönnuðirnir Erna Steina Guð- mundsdóttir, Lísbet Sveinsdóttir og Matthildur Halldórsdóttir hafa rekið fyrirtækið Elm í fimm ár en upphaflega hugmyndin var sú að hanna föt í kringum ákveðið efni. „Við byrjuðum á að vinna úr svo- kallaðri silkibómull og alpakaull. Alpakadýr er af sama stofni og lamadýr en minna og með mýkri ull. En við erum nú að víkka sviðið og hanna úr fleiri efnum. Við erum til dæmis byrjaðar að hanna belti, kápur og buxur úr leðri. Þá höfum við gert skartgripi og aðra fylgi- hluti,“ segir Lísbet. „Við höfum smám saman verið að stækka fyrirtækið og í dag seljum við í fimmtíu verslanir í Bandaríkjun- um og tuttugu verslanir í Evrópu. Svo erum við með sýningarsali og umboðsmenn í París og Mílanó.“ Lísbet segir að línan hafi frá upphafi verið breið en hún sé smám saman að stækka og mót- ast. Lögð sé áhersla á að vera með vandað efni og tímalausa hönnun. „Þetta eru föt sem konan getur átt og notað lengi.“ Erna Steina, Lísbet og Matt- hildur eru nú að ljúka hönnun fyr- ir veturinn 2004 til 2005, en þær eru nýkomnar frá París þar sem þær kynntu línuna fyrir næsta sumar. „Við erum yfirleitt ekki með marga liti. Nú í vetur erum við með rautt, svart og örlítið hvítt. Næsta sumar er línan létt- ari. Þá verður meira af hvítu, mik- ið svart og hvítt saman og svo líka hvítblátt og svarbrúnt.“ ■ Íslensk fatahönnun: Áhersla á gæðaefni og tímalausa hönnun LÍSBET SVEINSDÓTTIR OG ERNA STEINA GUÐMUNDSDÓTTIR Tveir af þremur hönnuðum sem standa að ELM. Matthildur er í Perú. VETRARLÍNAN Í ÁR Rautt og svart eru litir vetrarins. HVER FLÍK ER HANDGERÐ Fötin eru ekki úr voðum og hvert stykki er saumað fyrir sig. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Tap hjá Gucci: Stella McCartney heldur áfram Orðrómur þess efnis að StellaMcCartney, dóttir bítilsins Pauls, sé að hætta hjá Gucci á ekki við rök að styðjast segir talsmaður fyrirtækisins. Um leið og fréttist af tapi hjá fyrir- tækinu fóru sögurnar á kreik. Einnig var tilkynnt fyrir ekki svo löngu að Tom Ford væri að hætta sem aðalhönnuður fyrir- tæksins. Hann fékk á sínum tíma Stellu til starfans og því talið líklegt að hún myndi fylgja í kjölfarið. Stella hefur verið í uppáhaldi hjá fyrirsætum og kvikmyndastjörnum síðan hún útskrifaðist úr námi. Tapið er hins vegar í sam- ræmi við áætlanir fyrirtækis- ins,“ sagði Tomaso Galli, tals- maður fyrirtækisins, og bætti við að allar áhyggjur væru óþarfar. „Tapið endurspeglar viðskiptaáætlanir sem lagðar voru fram fyrir tveimur og hálfu ári,“ segir Galli og bendir á að tapið sé hægt að skýra með fjárfestingum sem fyrirtækið hefur lagt í undanfarið. „Salan hefur tvöfaldast og við erum ánægð.“■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.