Fréttablaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 27
27 ■ Í búðum FIMMTUDAGUR 11. desember 2003 T R U E . N AT U R A L . E L E G A N T. A NEW FRAGRANCE Nýja ilmvatnið frá Cindy Crawford fæst í snyrtivöruverslunum og apótekum um land allt Alpahúfur kr. 990 Hekluð sjöl kr. 1.990 margar gerðir Grifflur frá kr. 690 Blómaskór - tilboð 1 par 1.290 - 2 pör 2.000 Vinsælar jólagjafir SKARTHÚSIÐ Laugavegi 12, s. 562 2466 TILBOÐ Neta- og silkisandalar Eitt par kr. 1.200 - 2 pör kr. 2.000 St. 28-41 Ný sending af barnasandölum Vínrauða leðurkápan er skilyrð-islaust uppáhald,“ segir Hulda Bjarnadóttir, dagskrárgerðarkona á létt.is. „Ég keypti hana þegar ég var á leiðinni á MTV í Stokkhólmi fyrir fjórum árum og hún rokkar. Það brýst út í mér litli rokkarinn hið innra þegar ég er í henni og ofboðslega gaman að djamma í henni við skemmtileg tækifæri.“ Hulda segir marga kosti við leðurflíkina, til dæmis að þegar eitthvað hellist niður sé minnsta mál í heimi að þrífa það úr. „Svo er hún sígild og ég ætla pottþétt að vera í henni á fimmtugs- afmælinu,“ segir hún hlæjandi. „Og fyrst við erum að tala um uppáhald verð ég líka að fá að nefna nýjasta skartið mitt, sem er fyrsti stóri skartgripurinn sem ég eignast. Þetta er hálsmen úr massívu járni og ofsalega gott flæði í því. Ég er ekki frá því að gripurinn jafni orkuflæðið því mér líður svo ótrúlega vel með hann.“ Hulda telur að nú hafi orðið þáttaskil hjá henni hvað skartgripi varðar. „Ég hef hingað til verið fyrir fíngerðari skartgripi, en þessi er engu líkur. Mér finnst ég svo mikil kona þegar ég set hann upp.“ ■ Uppáhaldsflík: Rauða kápan rokkar HULDA BJARNADÓTTIR Á rauða uppáhaldsleðurkápu sem kallar fram rokkarann í henni. Hálsmenið massíva er líka í miklu uppáhaldi Hendrikka Waage hefur lengihaft áhuga á listum og hönn- un og í byrjun þessa árs ákvað hún að stíga skrefið til fulls og hefja hönnun á skartgripum. „Ég hef gengið með þessa hugmynd í tvö ár og í haust komu skartgripir á markað,“ segir Hendrikka sem annars vegar hannaði hringi sem bera heitið esja ring collection og hins vegar línu sem heitir n-light collection, sem er armband, hringur, hálsmen og eyrnalokkar. Hendrikka sækir innblásturinn að hönnuninni til íslenskrar nátt- úru en yfirbragðið er alþjóðlegt, enda hún sjálf verið mikið í út- löndum, í Rússlandi, Japan og Bretlandi meðal annars. Skartgripirnir hafa þegar vak- ið athygli í London: „Meðal annars hafa birst greinar í Daily Mail, Red magazine, Harpers og það er grein væntanlega í Vogue,“ segir Hendrikka sem sjálf er með ann- an fótinn í London þar sem hún vinnur við almannatengsl. Hér á landi fást skartgripirnir í versluninni Leonard í Kringlunni og í Fríhöfninni og í London í versluninni Gailo í Notting Hill og á St. Albin Street. Frekari upplýs- ingar eru að finna á síðunni www.waagejewellery.com ■ Skartgripir: Íslenskt skart vekur athygli FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT HRINGAR Blár tópas, amethyst, peridot og citrine eru á meðal steina sem Hendrikka notar í skartgripina. NORÐURLJÓSIN Hendrikka kallar þessa línu N-light collect- ion enda innblásturinn sóttur í litadýrð norðurljósanna. HENDRIKKA WAAGE Viðskiptafræðingur, sem hefur unn- ið við almannatengsl, hefur nú fært út kvíarnar og hannar skartgripi. LENGRI OPNUNARTÍMI Frá og með deginum í dag er hægt að fara í búðir langt fram á kvöld, alla daga vikunnar. Í Smáralind er opið til tíu á kvöldin til jóla, fyrir utan Þorláks- messu, þá er opið til ellefu eins og venja er. Sama er upp á teningn- um í Kringl- unni, þar verður opið til tíu í kvöld og ellefu á Þorláksmessu. Laugavegurinn lengir opnunar- tímanna á laugardaginn þannig að nú ættu allir að geta fundið sér tíma til að kaupa gjafir og ekki síður jólaföt þannig að eng- inn fari í jólaköttinn. RISASTÓR CHANEL-TASKA Merkjavara selst vel í Tókíó fyrir jólin eins og annars staðar. Risastór Chanel- taska hefur verið sett upp í Ginza-versl- unarhverfinu til að laða kaupendur að búðinni – með hvaða árangri er óvíst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.