Fréttablaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 34
34 11. desember 2003 FIMMTUDAGUR
Rauðar kúlur eru það allra vin-sælasta á jólatréð í ár, að
sögn Kristins Einarssonar í
Blómavali. Hann segir að eitt-
hvað sé um að gylltar kúlur séu
teknar með líka og að minna sé
um alls kyns jólafígúrur á tréð
en oft áður. En rautt er ekki að-
eins áberandi í kúlunum. „Rautt
er líka að koma miklu sterkara
inn í seríum á jólatréð en áður,“
segir Kristinn og bætir við að í
Blómavali sé áherslan lögð á
hefðbundin jól. ■
Skraut á jólatréð:
Eldrauð jól í
Blómavali
RAUTT, RAUTT, RAUTT!
Rautt er aðalliturinn í Blómavali í ár.
Jólakortin koma:
Reikningana
niður og kortin upp
Nú fara jólakortin að streymainn á heimilið og því er ekki
úr vegi að huga að geymslustað
fyrir þau. Sumir hafa þann hátt á
að geyma jólapóstinn allan óopn-
aðan fram til jóla og skoða svo
kortin öll í einu við hátíðlega at-
höfn. Aðrir gægjast í umslögin,
rétt til að gá hvort nokkur sé að
senda þeim kort sem þeir hafa
gleymt að senda í ár. Svo er þriðji
hópurinn sem getur ekki á sér set-
ið og skoðar öll kort um leið og
þau koma og fagnar þannig
hverju korti fyrir sig. Geymslan á
kortunum getur verið á ýmsan
máta. Það má gera spegilinn í for-
stofunni jólalegan með því að
festa jólakortin upp í kring um
hann. Hægt er að ná í stóra nakta
trjágrein og klemma kortin upp á
hana, eða hengja upp snúru í
ganginum eða stofunni og setja
jólakortin á hana. Ekki spilla
rauðar klemmur. Eins er upplagt
að rífa reikningana niður af
korktöflunni og næla jólakortin á
hana eða hengja upp ljósum
skreytta lengju og finna kortun-
um stað í henni. ■
Í Garðheimum var gyllt, koparog brúnt skraut mjög áberandi í
byrjun aðventunnar en nú þegar
nær dregur jólum virðist rautt og
gyllt ætla að ráða ferðinni. „Það
er mikið um glimmer,“ segir Jó-
hanna Hilmarsdóttir, deildarstjóri
í blómadeild. „Annars skiptist fólk
í tvo hópa, það eru þeir sem vilja
eitthvað glitrandi og svo hinir
sem vilja gamaldags. Englar eru
náttúrlega alltaf mjög vinsælir á
jólatréð og við höfum verið með
mjög flotta glerfugla með fjöðr-
um og svo fugla sem eru gylltir
eða silfurlitaðir með glimmeri,“
segir hún. Alls kyns jólasveinar
og bangsar eru líka vinsælir. „En
mér finnst svolítið áberandi að
margir virðist vera að safna sér á
tréð. Fólk kaupir flotta hluti eins
og glerfuglana og safnar þeim
smátt og smátt.“ ■
Kynning í dag á
PTP hársnyrtivörum
í Lyf og heilsu
Domus kl. 15-18
440kr.
Eitt verð fyrir
alla jólapakka!
Hámarksþyngd 20 kg,
hámarksstærð 0,06 m3
(t.d. 30x40x50 sm)
03
-5
11
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
'
20
03
Fæst um land allt
Dreifingara›ili:
Tákn heilagrar
flrenningar
Til styrk
blindum
Tilvalijólagjö
Úrvalið af skrauti á jólatréðhefur sennilega aldrei verið
meira en í ár. Alls kyns kúlur,
jólasveinar, snjókarlar og englar
til að hengja á trén fylla verslan-
irnar en sitt sýnist hverjum hvað
er fallegast. Eitt er þó víst að all-
ir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi, hvort sem um er að ræða
hefðbundið og gamaldags skraut,
nútímalegt eða framúrstefnu-
legt. ■
Arna Sigríður Sæmundsdóttir,skreytari í versluninni Soldis
á Laugaveginum, segir að rauðar
jólakúlur séu alltaf sígildar en að
mikið sé hins vegar um silfur í ár.
„Rauður er notaður svolítið mikið
með silfrinu, fólk virðist vera
hrifnast af því ef það vill fara út í
liti. Unga fólkið tekur svolítið
sjokkerandi liti, blandar til dæmis
saman silfri og appelsínugulum
eða silfri og fjólubláum,“ segir
hún. Margir blanda líka saman
silfri og gulli. „Silfur er mikið
notað í grunninn og svo eru aðrir
litir settir með.“
Arna Sigríður segir að það sé
allur gangur á því hvort jólasvein-
ar, snjókarlar, englar og aðrar
góðar verur sem tengjast jólunum
séu settar á trén. „Kúlur og fígúr-
ur eru teknar jöfnum höndum.
Það er mikið um spaugilega jóla-
karla, til dæmis langa jólasveina
sem eru á skautum.“
Í Soldis er mikið um gamal-
dags skraut í bland við nútíma-
legt. „Þetta er svolítið skipt hjá
okkur,“ segir Arna Sigríður. „Við
erum með mjög gamaldags
steyptar kúlur og svo erum við til
dæmis líka með nýtískulega hvíta
fuglsvængi úr fjöðrum. Það er allt
í gangi núna. Þetta er voðalega
mikið spurning um smekk, hvern-
ig jól fólk heldur og hvað það
heldur fast í gamlar hefðir.“ ■
Skraut á jólatréð:
Hefðbundið og
óhefðbundið í bland
Skraut á jólatréð:
Silfurjól í Soldis
NÝTÍSKULEGT OG GAMALDAGS
Silfrað jólaskraut í Soldis er mjög vinælt
fyrir þessi jól.
Skraut á jólatréð:
Glitrandi og gamal-
dags í Garðheimum
ALLTAF KLASS-
ÍSKT
Rautt og gyllt get-
ur ekki klikkað.
FLOTTIR GLERFUGLAR
Margir eru að safna fuglunum sem meðal
annars fást í Garðheimum.
GLIMMERKÚLUR
Glitrandi glimmer
er vinsælt fyrir
jólin. Kúlurnar fást
í Garðheimum.
KÚLUR OG FÍGÚRUR
Eru tekin jöfnum höndum á jólatréið.
Á JÓLALENGJU
Góð aðferð til að geyma kortin.
KORKTAFLAN SKREYTT
Kortin gleðja alla ef þau sjást.