Fréttablaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 30
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Fleiri ferðir til Búdapest í vor
Heimsferðir hafafjölgað ferðum til
Budapest í vor vegna
mikillar eftirspurnar.
Nú hefur tveimur helg-
arferðum verið bætt
við, 6. maí – 10. maí og
um hvítasunnuna, 27.
maí – 31. maí. ■
Skólavörðustíg 45 • 101 Reykjavík • S. 562-0800 • Fax 562-0804
www.hotelleifur.is • Netfang info@hotelleifur.is
Desembertilboð
Desembertilboð
Gerið jólainnkaupin
í miðbæ Reykjavíkur
og gistið á Hótel Leifi Eiríkssyni
Desembertilboð á gistingu
Gisting með morgunverði
á kr 2.790 pr. mann
G
ild
ir til 24. d
esem
b
er
Það er náttúrlega Kaupmanna-höfn,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarfulltrúi aðspurð-
ur um uppáhaldsborg. „Það er
alltaf jafn notalegt að koma þang-
að, svona eins og að koma heim.
Danirnir eru svo þægilegt og
skemmtilegt fólk og borgin fall-
eg.“ Vilhjálmur reynir að komast
til Kaupmannahafnar tvisvar til
þrisvar á ári og nýtur þess þá að
rölta á Strikinu og meðfram sund-
unum, og að skoða sögufræga
staði. „Þarna er allt svo fallegt og
ljúft,“ segir Vilhjálmur og kveðst
vera slarkfær í dönsku þó enskan
sé honum tamari. Hann hefur líka
eina meginreglu í Köben sem hann
klikkar aldrei á, „Ég fæ mér alltaf
pylsu að dönskum hætti,“ segir
hann hlæjandi „og kíki svo gjarn-
an inn á Hviids Vinstue sem er
sögufrægur staður rétt við Kong-
ens Nytorv. Þar eru myndir uppi
af Sverri Kristjánssyni og Fjölnis-
mönnum og alltaf jafn gaman að
koma þangað. Svo má ekki gleyma
Kastrup, sem er einhver glæsileg-
asta flugstöð sem ég hef komið í
og hef ég þó víða farið. ■
Kaupmannahöfn þægileg og ljúf:
Eins og að koma heim
FRÁ NÝHÖFNINNI
Kaupmannahöfn er mörgum Íslendingum kær. VIlhjálmur er einn þeirra sem nýtur þess að vera á rölti í Nýhöfninni.
Foreldrar
Verjum tíma með börnunum okkar
Hver stund er dýrmæt
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
Finnst ómögulegt ann-
að en að fá sér pylsu
að hætti danskra í
Köben.