Fréttablaðið - 11.12.2003, Page 28
ENGAR JÓLAGJAFIR FRÁ ARMANI
Náungakærleikur er í tísku í ár.
Að minnsta kosti berast fréttir af
því að tískufrömuðurinn Giorgio
Armani hafi í ár hætt við að
senda dýrar gjafir til ritstjóra
stóru tískublaðanna eins og hann
gerir yfirleitt. Þess í stað ákvað
hann að gefa yfir 300.000 dollara
til að vekja athygli á aðstæðum
einstaklinga með Downs-heil-
kenni. Í staðinn fyrir skó og föt
fá ritstjórarnir sem sagt sendar
myndir af Armani með sex ára
gamalli stúlku með Downs-heil-
kenni. Tískuskríbentar gleðjast
vonandi jafn mikið og þeir sem
njóta góðs af málefnunum.
BRÚÐARKJÓLL FYRIR GRAFREIT
Dýravinir gleðjast þessa dagana
vegna þess að hið fræga tískuhús
Fendi, sem þekkt er fyrir leður-
og skinnvörur, er í rannsókn.
Rannsóknin snýst þó ekkert um
réttindi dýra. Paola Fendi – elsta
systirin af fjórum – var í síðustu
viku kærð fyrir spillingu. Sam-
kvæmt breskum blöðum var hún
að reyna að múta sér leið í
Campo di Verano-kirkjugarðinn.
Hann er fyrir utan Róm og þar er
allt helsta ítalska fyrirfólkið jarð-
sungið. Saksóknari hefur gefið í
skyn að Fendi hafi boðið einum
stjórnenda kirkjugarðsins brúð-
arkjól fyrir pláss til að byggja
grafhýsi fyrir fjölskylduna. Hún
kemur fyrir rétt 9. janúar.
■ Úr tískuheiminum
28 11. desember 2003 FIMMTUDAGUR
Áhrif níunda áratugarins haldaáfram að vera ráðandi í tísku-
verslunum og nú fyrir jólin eru
tjullpils og tjullkjólar sérstaklega
áberandi. Svarti liturinn er al-
gengastur en doppóttar flíkur eru
einnig mjög vinsælar. Pilsin eru oft
svolítið tætingsleg að neðan og
tjullið gægist neðan undan pilsfald-
inum. Sums staðar er tjullið enn
meira áberandi og er sett utan yfir
efnið sjálft.
Snið kjólanna er bæði undir
áhrifum af níunda og sjötta
áratugnum. Pilsin eru víð og
margir kjólarnir eru hlýralaus-
ir. Hægt er að fá mjög stutta
kjóla en millisíddin virðist vin-
sælust um þessar mundir.
Bleikur litur sést víða en svart
og hvítt virðist vinsælasta lita-
samsetningin. Slaufur og bönd
af ýmsu tagi skreyta kjólana en píf-
ur virðast aðeins á undanhaldi. ■
JÓLAFÖT
JÓLAGJAFIR
á 50-80% lægra verði
+ + + m e r k i f y r i r m i n n a + + +
Faxafeni 10 - sími: 533 1710
O U T L E T 1 0Stærðir á allaJakkaföt
Dragtir
frábær verð
dragtir
buxur
skór
stígvél
peysur
kápur
skyrtur
brjóstahald
nærbuxur
belti
11.980
990
1.250
2.990
2.990
6.990
1.990
1.990
990
390
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
jakkaföt
úlpur
gallabuxur
buxur
skyrtur
peysur
húfur
treflar
strigaskór
nærbuxur
NÝJAR SENDINGAR
VIKULEGA
FRÁ VERSLUNUM:
12.500
3.900
2.990
990
990
1.990
590
590
2.990
990
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
frá:
Opið
Mán. - fös. 11-18
Lau. 11-18
dömur herrar
FRÁBÆR KAUP
NÝ SENDING
Í KÍNA
Hærri laun í Kína þýða að fleiri en áður
hafa efni á alþjóðlegum tískuvörum. Inn-
flutningur á þekktum tískumerkjum hefur
því aukist gríðarlega á undanförnum árum.
Kristín Stefánsdóttir hjá NoName á forkunnarfagran
bláan kjól sem hún flokkar eigin-
lega bæði undir uppáhaldsflík og
misheppnuð fatakaup. „Ég keypti
draumakjólinn í Prag fyrir tæp-
um fjórum árum, svona miðalda-
kjól. Ég hreifst svo rosalega af
þessum stíl í Prag,“ segir Kristín,
sem lagði leið sína inn í verslun í
borginni og fann þar í notað-og-
nýtt-deildinni himinbláan kjól
sem er bundinn og reyrður í
miðjunni. „Hann er úr flaueli og
satíni og ég sá hann fyrir mér
sem sparikjól þegar ég væri að
fara eitthvað ofsalega fínt eins
og til dæmis að velja andlit á No
Name-kvöldi.“
Kristín keypti kjólinn í stærð
14 án þess að máta hann og ...úps!
Hann passaði ekki þegar hún
kom heim. „Það var ekki fræði-
legur að ég kæmist í hann, ekki
aðra ermina,“ segir Kristín og
andvarpar. „Þetta var bara há-
mark bjartsýninnar. En ég hef
geymt hann síðan og það hefur
alltaf verið takmarkið að komast
í kjólinn.“
Nú hafa gerst undur og stór-
merki í lífi Kristínar. Fyrir sjö
vikum eignaðist hún lítinn prins
og á meðgöngunni missti hún 14
kíló. „Mér leið bara svo vel á
meðgöngunni og grenntist og
grenntist. Drengurinn fæddist
níu vikum fyrir tímann, hraustur
og fínn og 12 merkur. Þetta er
bara yndislegt,“ segir Kristín, og
er að springa af stolti yfir frum-
burðinum. „Hann gengur undir
nafninu No Name, en það er búið
að velja á hann nafn sem er enn-
þá leyndarmál,“ segir hún. „En
nú lítur helst út fyrir að ég kom-
ist í kjólinn og geti skartað hon-
um um jólin.“ ■
Misheppnuð fatakaup:
Í miðaldakjól
um jólin
Áhrif níunda áratugarins:
Tjullpils allsráð-
andi fyrir jólin
KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR
Með miðaldakjólinn sem hún keypti í Prag.
HLÝRALAUS
KJÓLL
Sjá má áhrif frá
sjötta áratugnum.