Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2004, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 11.01.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Íþróttir 30 Sjónvarp 36 SUNNUDAGUR RÓMANTÍK Í TURNINUM Kristjana Stefánsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson verða á rómantísku nótunum á tónleik- um á veitingastaðnum Turninum á sjöttu hæð í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði. Agnar Már Magnússon sér um undirspil. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG FLOTT Á HÖFUÐBORGARSVÆÐ- INU Það er að sjá vaxandi éljabakka við norðurströndina þegar líður á daginn. Það hvessir á ný á Vestfjörðum. Einna besta veðrið er í borginni. Sjá síðu 6 11. janúar 2004 – 10. tölublað – 4. árgangur BEÐIÐ EFTIR STAÐFESTINGU Hönn- un Þorbjörns Á. Friðrikssonar á tveimur björg- unartækjum fyrir sjómenn bíður staðfestingar. Framkvæmdastjóri Landssambands smábáta- eigenda segir mikilvægt að koma tækjunum í notkun sem fyrst. Sjá síðu 8 SKER UPP HERÖR Ríkislögreglustjóri hefur skorið upp herör gegn glæpaklíkum sem reyna að fóta sig á Íslandi. Hann segir þetta kostnaðarsamt en telur það langtíma- fjárfestingu gegn glæpum. Sjá síðu 4 FRESTUR Á FJÁRHAGSÁÆTLUN Nær 20 sveitarfélög hafa fengið frest til að skila inn fjárhagsáætlunum sínum. Eftirlits- nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins skoð- ar fjármál nokkurra sveitarfélaga. Sjá síðu 6 ALVEG Á MÖRKUNUM Guðjón Frið- riksson sagnfræðingur segist ekki vilja fella dóm um bók Hannesar Hólmsteins Gissur- arsonar en segir að í fljótu bragði virtist hon- um Hannes alveg á mörkunum. Sjá síðu 4 BANASLYS Á SUÐURLANDSVEGI Maður á þrítugsaldri lést í hörðum árekstri, rétt austan við Hólmsá á Suðurlandsvegi, í gærmorgun. Maðurinn var í fólksbíl sem lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Kona sem var í jeppanum liggur alvarlega slösuð á gjör- gæsludeild. Suðurlandsvegur lokaðist fyrir umferð í rúmar tvær klukkustundir. Fólk sem kom í rútu að austan var látið skipta um rútu og fara í rútu sem kom á móti. Fólkið sést hér ganga framhjá slysstaðnum. Sjá síðu 2 Fundu sinnepsgas í Írak Tveir íslenskir sprengjusérfræðingar fundu sprengjur með vökva sem talið er að innihaldi sinnepsgas. Kona annars þeirra segir furðulegt að fylgjast með fréttum af sprengjufundinum en segir að störf eiginmanns hér heima hafi heldur ekki verið hættulaus. ÍRAK Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar, Adrian King og Jónas Þorvaldsson, sem eru við störf í Írak, fundu sprengjur sem talið er að inni- haldi efnavopn. Fyrsta greining breskra sér- fræðinga bendir til þess að kúl- urnar innihaldi sinnepsgas, en líklegt er talið að þetta séu sprengjur frá stríði Íraka og Írana. Ríkisstjórn Saddams Hussein beitti efnavopnum gegn Írönum og drap á þessum tíma þúsundir Kúrda í efnavopnaárás, en stjórnvöld í Írak hafa aldrei gert grein fyrir því hvað gert var við vopnin. Ástbjörg Ýr Gunnarsdóttir, eiginkona Jónasar Þorvaldssonar, annars sprengjusérfræðinganna, segir það skrýtna tilfinningu að fylgjast með fréttum af sprengju- fundinum. Hún segist ekki hugsa of mikið um störf Jónasar í Írak, sem eru alls ekki hættulaus. Það hafi störf hans hér heima heldur ekki verið. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir fund íslensku sprengjusérfræðinganna mjög merkilegan og geta vakið heims- athygli. Magnús Þorkell Bernharðsson, lektor í sögu Mið-Austurlanda, segir óljóst hvort þetta séu vopna- birgðir sem vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna hafi haft vit- neskju um eða hvort þetta séu ný vopn sem Írakar hafi ætlað að nota í hernaði. Það eigi eftir að koma í ljós. audur@frettabladid.is bryndis@frettabladid.is sjá síðu 2 Skráning Pharmaco: Mikill áhugi úti VIÐSKIPTI Mikill áhugi var meðal erlendra fjármálafyrirtækja að taka að sér skráningarferli Pharmaco í Kauphöllinni í London. „Við teljum þetta til marks um áhuga á félaginu,“ seg- ir Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco. Hann segir erlenda fjárfesta horfa til þess að félagið hafi náð athyglisverðum árangri miðað við sambærileg félög. Pharmaco flutti út lyf fyrir 2,6 milljarða um helgina þegar nýtt hjartalyf fór á markað. Nánar á síðu 16. Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Lét of mikið á sér bera VIÐTAL „Ég hafði ekki gaman af að sitja undir ásökunum um að ég væri óheiðarlegur. Það getur verið að ég sé stundum full harðskeyttur en ég er ekki óheiðarlegur,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor. „Ég tek þessu með jafnaðargeði en þegar ég horfi um öxl saka ég sjálf- an mig um að hafa látið aðeins of mikið á mér bera í sambandi við kynningu á bókinni. Að sumu leyti get ég sjálfum mér um kennt hvað viðbrögðin voru heiftarleg.“ Sjá nánar á síðum 18 og 19. Viltu vinna skrilljón trilljónir? Happdrættin í landinu auglýsa grimmt um þessar mundir, enda eru margir landsmenn ginnkeyptir fyrir skjótfengnum gróða eftir jólavertíðina. Átta hundruð manns hafa fengið meira en milljón í Lottóinu á síðustu sautján árum. Fréttablaðið kannaði markaðinn og tók viðtal við vinningshafa. Fólkið á bak við sjónvarpsstefin Tónlist er allt í kringum okkur. Ein hlið tónlistar er fyrirferðarmikil í umhverfinu, án þess að mikið sé um hana rætt. Þetta eru stefin í sjónvarpsþáttunum og í útvarpinu. Fréttablaðið kannaði hver er höfundur hvaða stefs. Sautján ára gömul draumsýn Björns Leifssonar um heilsuparadís í Laugardal er orðin að veruleika. Björn lagði af stað með bjartsýnina, góða rekstrarsögu og viljann að vopni. Útkoman er glæsileg og fjárfestingin er upp á einn og hálfan milljarð. SÍÐA 20 ▲ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M SÍÐUR 14-15 ▲ Draumurinn rætist SÍÐUR 22 ▲

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.