Fréttablaðið - 11.01.2004, Side 2
2 27. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
„Mér líkar ágætlega við það sem er.“
Árni Sigfússon er bæjarstjóri í Reykjanesbæ í
næsta nágrenni við bandaríska varnarliðið.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lýsti því yfir í fyrradag
að hún vildi frekar varnarsamstarf við Evrópuríki
en Bandaríkin.
Spurningdagsins
Árni, hvernig litist þér á evrópskt
varnarlið í bæinn?
■ Lögreglufréttir
Íslendingar fundu
sinnepsgas í Írak
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar sem eru að störfum í Írak fundu sprengjur með
vökva sem talið er að kunni að vera eiturefnavopn frá stríði Íraka og Írana. Merkilegur fundur
sem gæti vakið heimsathygli, segir utanríkisráðherra.
ÍRAK Jónas Þorvaldsson og Adrian
King, sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar, sem hafa
undanfarnar vikur starfað á veg-
um Íslensku friðargæslunnar
ásamt dönsku herliði í suðurhluta
Íraks, fundu í fyrradag um 40
sprengjuvörpukúlur sem inni-
héldu torkennilegan vökva.
Fyrsta greining breskra sérfræð-
inga bendir til þess að kúlurnar
innihaldi sinnepsgas.
Kúlurnar fundust við uppbygg-
ingu á vegarspotta þegar Íslend-
ingarnir voru fengnir til að gera
sprengjur óvirkar við borgina
Basra við ána Tígris, en í ljós kom
að ekki var um hefðbundnar
sprengjuhleðslur að ræða. Líklegt
er talið er að þetta séu sprengjur
frá stríði Íraka og Írana sem lauk
árið 1988, en Saddam Hussein
beitti efnavopnum gegn Írönum og
drap á þessum tíma um 5.000
Kúrda í efnavopnaárás. Stjórnvöld
í Írak hafa aldrei gert grein fyrir
því hvað gert var við vopnin.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir fund íslensku
sprengjusérfræðinganna mjög
merkilegan, enda stórtíðindi ef í
ljós kemur að Íslendingar hafi
fyrstir allra fundið gereyðingar-
vopn í Írak.
„Þetta sýnir að okkar menn
áttu erindi til Íraks. Þeir hafa yfir
mikilli þekkingu að ráða og geta
leyst hin flóknustu verkefni. Það
er mikið af frábæru fólki í Ís-
lensku friðargæslunni og því hef-
ur gengið vel í sínu starfi,“ segir
utanríkisráðherra.
Áður en Jónas og Adrian héldu
til Íraks hlutu þeir sérstaka þjálf-
un í Danmörku, en þeir verða
áfram við störf í Írak næstu vik-
urnar. Í kjölfar árásar Banda-
ríkjamanna og Breta í Írak á síð-
asta ári hefur umfangsmikil leit
verið gerð að gereyðingarvopnum
í landinu.
Magnús Þorkell Bernharðsson,
lektor í sögu Mið-Austurlanda,
bendir á að óljóst sé hvort þetta
séu vopnabirgðir sem vopnaeftir-
litsmenn Sameinuðu þjóðanna hafi
haft vitneskju um eða vopn sem
tilheyri ólöglegum vopnum Íraka.
„Vopnaeftirlitsmenn héldu
uppi gríðarlega öflugu vopnaeft-
irliti í Írak í kringum 1990 og
töldu sig hafa fundið og eytt um
90% af vopnabúri landsins. Það
skýrist væntanlega hvort vopna-
birgðirnar sem Íslendingarnir
fundu séu gamlar eða hvort þetta
séu ný vopn sem Írakar hafi ætlað
að nota í hernaði,“ segir Magnús
Þorkell.
bryndis@frettabladid.is
BANASLYS Maður á þrítugsaldri lést í
hörðum árekstri þegar fólksbíll og
jeppi sem komu úr gangstæðri átt
lentu saman, rétt austan við Hólmsá
á Suðurlandsvegi á ellefta tímanum
í gær.
Maður og kona sem voru í jepp-
anum voru flutt á Landspítalann í
Fossvogi. Konan liggur alvarlega
slösuð á gjörgæsludeild en maður-
inn er minna slasaður. Sá sem lést
var ökumaður fólksbílsins. Ekki er
ljóst með hvað hætti slysið varð en
hálka var á veginum. Fólksbíllinn
var á austurleið en jeppinn, sem
kastaðist út af veginum við árekst-
urinn, var á leið til vesturs. Tækja-
bílar frá slökkviliðinu komu á stað-
inn, en töluverðan tíma tók að ná
ökumanni fólksbílsins út.
Loka þurfti veginum í um tvo og
hálfan tíma vegna slyssins og var
umferð beint um Bláfjallaveg á
meðan. ■
Bæjarlögmaður:
Hefur ekki
áhyggjur
KÆRA „Ég hef ekki áhyggjur af
kærunni. Fyrir um ári fékk ég
fregnir af því að það kynnu að vera
menn sem hugsanlega tengdust er-
lendum mótorhjólasamtökum, að
hreiðra um sig í austurbæ Kópa-
vogs og ég vildi vita hvað væri
hæft í því,“ segir Þórður Þórðar-
son, bæjarlögmaður í Kópavogi, en
Sverrir Þór Einarsson hefur kært
hann vegna ummæla í Fréttablað-
inu á föstudaginn.
Þórður segir að hann hafi á sín-
um tíma beðið lögreglu að athuga
málið og aftur þegar fréttir
bárust af bréfi þar sem Sverrir er
borinn þungum sökum. ■
Eiginkona sprengju-
sérfræðings:
Skrýtin
tilfinning
VOPNAFUNDUR „Jú, það er rosalega
skrítin tilfinning að fylgjast með
fréttum af þessu,“ segir Ástbjörg
Ýr Gunnarsdóttir, eiginkona
Jónasar Þorvaldssonar sprengju-
sérfræðings. „Ég veit jafn mikið
um málið og hver annar og geri
mér ekki alveg grein fyrir því
hversu stórt það er.“
Ástbjörg Ýr segir þau Jónas
vera í tölvupóstsambandi en hún
fái litlar upplýsingar um dagleg
störf hans þar. Starf sprengjusér-
fræðinga er vissulega ekki
áhættulaust en Ástbjörg Ýr segir
störf hans úti svipuð því sem hann
hefur gert áður. „Ég hugsa ekki of
mikið um það. Þetta er bara hans
vinna. Hann hefur alltaf viljað
leggja sitt af mörkum, enda hefur
hann verið í hjálparsveitum frá
því hann var ungur.“ ■
SLAPP ÓTRÚLEGA VEL
Bíll valt 25 metra niður skriður
rétt austan við Ártún, á milli
Húnavers og Svartár, í gærdag.
Ökumaðurinn missti stjórn á
bílnum í hálku og lenti utan veg-
ar þar sem bíllinn valt margar
veltur og endaði að lokum ofan í
á. Að sögn lögreglunnar var öku-
maðurinn ótrúlega heppinn að
slasast ekki alvarlega. Bíllinn er
gjörónýtur.
FÓR ÚT AF OG VALT
Ökumaður missti stjórn á bíl sín-
um, eftir að hann mætti vörubíl,
þannig að hann hafnaði utan veg-
ar og valt á Vesturlandsvegi við
Leirur í gær. Farþegi bílsins var
fluttur á slysadeild.
Á 119 KÍLÓMETRA HRAÐA
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði
fimm fyrir of hraðan akstur í
hálku og krapa í gær. Sá sem
hraðast ók var á 119 kílómetra
hraða.
RÁN Lögreglan í Hafnarfirði leitar
enn tveggja ungra manna sem
réðust með hníf og barefli inn í
söluturninn Egyptann í Hafnar-
firði á föstudagskvöldið. Þar ógn-
uðu þeir starfskonu og tæmdu
peningakassann.
Ekki er ljóst hvernig ræningj-
arnir komust á brott. Leitarhundur
var fenginn til að rekja slóð þeirra
en án árangurs. Þeir eru taldir
vera á aldrinum sextán til átján
ára en báðir huldu andlit sín með
dulum. Þeir komust á brott með
sölu dagsins en ekki er ljóst hversu
há upphæðin var. Konan, sem er á
miðjum aldri, var ein í söluturnin-
um þegar ræningjarnir ruddust
inn og að sögn lögreglu var henni
mjög brugðið. Hún og tveir synir
hennar eiga söluturninn.
Enginn hefur verið handtekinn
í tengslum við ránið. ■
FLAK BIFREIÐARINNAR
Bíllinn var mjög illa farinn eftir áreksturinn, en hér er búið að klippa hann sundur til að
komast að ökumanninum. Ekki er ljóst með hvaða hætti slysið varð en hálka var á veginum.
Harður árekstur á Suðurlandsvegi:
Maður á þrítugsaldri lést
ÍSLENDINGARNIR Í ÍRAK
Jónas Þorvaldsson og Adrian King eru
sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunn-
ar sem starfa á vegum Íslensku friðargæsl-
unnar í Írak. Sprengjufundur þeirra þykir
mjög merkilegur enda hefur í mörg ár ver-
ið leitað að efnavopnum í Írak.
SPRENGJUSVÆÐI KANNAÐ
Jónas og Adrian kanna sprengjusvæði í suðurhluta Íraks.
Vopnað rán í söluturni:
Ræningjanna enn leitað
SÖLUTURNINN EGYPTINN
Leitarhundur var notaður við leit að ræningjunum en án árangurs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M