Fréttablaðið - 11.01.2004, Síða 6
6 11. janúar 2004 SUNNUDAGUR
■ Asía
Veistusvarið?
1Hversu löng bið er eftir offitumeðferðá Reykjalundi?
2Hvað heitir húðflúrarinn sem hefurkært bæjarlögmann Kópavogs og fem-
in.is fyrir rógburð?
3Hvernig fór fyrsti leikur Íslands ogSviss í handbolta?
Svörin eru á bls. 38
HEILBRIGÐISMÁL „Ef deilan dregst
verulega á langinn mun skapast
vandræðaástand,“ segir Jóhannes
M. Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri lækninga Landspítala-
háskólasjúkrahúss. Þar er búist
við að komum sjúklinga fjölgi og
leitað verði eftir aukinni þjónustu
á næstu dögum vegna deilu
Læknafélags Reykjavíkur og
Tryggingastofnunar um nýjan
samning sérfræðilækna.
Í yfirlýsingu frá læknaráði
LSH segir að ekki verði skilið
hvernig veita eigi meiri sérfræði-
læknisþjónustu á göngudeildum á
samdráttartímum. Deildirnar búi
við verulegt aðstöðuleysi og séu
dreifðar víða um spítalann.
Jóhannes segir að undanfarið
hafi verið mikið um fyrirspurnir
til spítalans. „Spítalinn getur ekki
tekið við neinni holskeflu. Ef fólk
er í brýnni þörf munum við reyna
að sinna því eftir þörfum. En því
eru mikil takmörk sett sem spítal-
inn getur bjargað. Við höfum
hvorki húsnæði né mannskap til
að auka okkar þjónustu umfram
það sem verður að teljast neyðar-
björgun.“
Jóhannes segist reikna með því
að á slysa- og bráðamóttökum
verði ástandsins fyrst og fremst
vart. „Á öðrum móttökum verður
reynt að stýra þessu.“ ■
Nefnd skoðar fjármál
nokkurra sveitarfélaga
Um fimmtungur sveitarfélaga hefur óskað eftir fresti til að ljúka gerð fjárhagsáætl-
unar. Sérstök eftirlitsnefnd fylgist með því að fjármál séu innan eðlilegra marka en
langt er síðan sveitarfélag var sett í gjörgæslu vegna alvarlegs fjárhagsvanda.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarstjórn-
arlög kveða á um að sveitarfélög-
um beri að skila fjárhagsáætlun
fyrir 1. janúar ár hvert, en sam-
kvæmt upplýsingum frá félags-
málaráðuneytinu hafa mörg
þeirra þegar óskað eftir því að fá
frest, þar sem þeim hefur af ýms-
um ástæðum ekki tekist að ljúka
við áætlunina á tilsettum tíma.
104 sveitarfélög eru í landinu
og hafa um 20 þeirra óskað eftir
meiri tíma. Lög heimila að hæfi-
legur frestur sé veittur þar til
sveitarfélögin eru í stakk búin til
að skila af sér. Fjárhagsáætlanir
eru yfirleitt gerðar til þriggja ára í
senn, þótt það sé nokkuð breytilegt
eftir því hvaða sveitarfélag á í
hlut, og er litið á þær sem gott
stjórntæki.
Samkvæmt upplýsingum frá
félagsmálaráðuneytinu tekst
mörgum sveitarfélögum að
halda sig innan ramma fjárhags-
áætlana, en ljóst er að ýmis ófyr-
irséð og óvænt frávik geta komið
upp hjá sumum sem kunna að
hafa áhrif á tekjur og útgjöld.
Ráðuneytið kannar ekki sérstak-
lega hversu mörg sveitarfélög
halda sig innan ramma fjárhags-
áætlana, en fylgist með því að
fjármál þeirra séu innan eðli-
legra marka.
Sérstök eftirlitsnefnd fylgist
með fjármálum sveitarfélaganna
og eru nokkur þeirra nú til skoð-
unar, en ekki fæst uppgefið hver
þau eru. Eftirlitsstarfið felst í
reglulegum athugunum á fjármál-
um allra sveitarfélaganna og er
þá meðal annars kafað ofan í
skuldir þeirra. Ef fjárhagsstaðan
er slæm og mikill vandi steðjar að
ræðir nefndin við forsvarsmenn
um það með hvaða hætti verði
reynt að snúa þróuninni við. Fjár-
hagsvandi sveitarfélaganna hefur
lengi verið til umræðu, en félags-
málaráðuneytið undirstrikar að
þótt sum þeirra séu tekin til ítar-
legrar skoðunar eitt árið þýði það
ekki endilega að svo verði aftur
næsta árið, því oft tekst að færa
fjárhaginn í betra horf. Sam-
kvæmt upplýsingum ráðuneytis-
ins hefur ekkert sveitarfélag ver-
ið í sérstakri gjörgæslu vegna
fjárhagsstöðunnar frá því gripið
var til þess að taka fjárforráð af
Hofsósi í lok níunda áratugarins.
bryndis@frettabladid.is
Hrekkur á Netinu:
Fá póst í
nafni FBI
TÖLVUR Tölvunotendur hafa marg-
ir fengið tölvupóst á síðustu dög-
um þar sem viðtakanda er tjáð að
bandaríska alríkislögreglan, FBI,
hafi komist á snoðir um að tónlist
og myndefni hafi verið hlaðið
niður af Netinu. Í póstinum segir
að afrit hafi verið tekin af öllum
gögnum á tölvunni og að viðtak-
andinn eigi von á bréflegri kæru.
Fréttablaðið hafði samband við
skrifstofu FBI og fékk þær upplýs-
ingar að pósturinn væri uppspuni
og að alríkislögreglan rannsakaði
málið. Þó nokkuð mun vera um að
fólk hafi samband við FBI vegna
þessara tölvupóstsendinga. ■
Finnar framleiða rafmagn:
Stærsti
kjarnaofn
Evrópu
FINNLAND Finnar ætla að reisa
stærsta kjarnaofn í Evrópu til að
framleiða rafmagn fyrir íbúa lands-
ins. Þessi áætlun gengur þvert á
þróunina í Vestur-Evrópu, þar sem
verið er að leggja niður kjarnorku-
ver og leita annarra leiða til að
framleiða orku.
Kjarnaofninn í Olkiluoto við
Helsingjabotn verður þrisvar sinn-
um stærri en kjarnaofninn í Bar-
sebäck í Svíþjóð, að því er fram
kemur á fréttavef danska ríkisút-
varpsins, DR. Ofninn mun auka raf-
orkuframleiðslu Finnlands um 25%
en markmiðið er að tryggja nægi-
legt rafmagn til pappírsframleiðslu
og koma í veg fyrir að landið þurfi
að kaupa orku frá Rússlandi. ■
MANNAÐ GEIMSKOT Á NÆSTA ÁRI
Kínverjar ætla að skjóta á loft
annarri mannaðri geimflaug á síð-
ari hluta næsta árs. Að minnsta
kosti tveir geimfarar verða um
borð í flauginni, sem ber nafnið
Shenzhou 6. Í október á síðasta ári
sendu Kínverjar geimfarið Shen-
zhou 5 með einn mann innanborðs á
sporbaug um jörðu.
KENNARI DÆMDUR TIL DAUÐA
Dómstólar í Kína hafa dæmt 26 ára
gamlan grunnskólakennara til
dauða fyrir að nauðga fjórum ung-
um stúlkum. Fórnarlömbin voru
nemendur Lin Guan og var yngsta
stúlkan níu ára. Lin var ákærður
fyrir fjórtán nauðganir á árunum
2001 til 2003.
SPRENGING Í KOLANÁMU Þrír
námuverkamenn fórust þegar
sprenging varð í kolanámu í
Síberíu í gær. Tíu starfsbræður
þeirra þurftu að fara á sjúkrahús.
HAFA ÖLL LÆKKAÐ Stóru olíu-
félögin þrjú hafa öll lækkað verð
bensínlítrans á sjálfsafgreiðslu-
dælum sínum. Verðið er 93,70
krónur á öllum stöðvunum.
Lægst er verðið hjá Orkunni,
92,40 krónur, nema á stöð félags-
ins við Skemmuveg þar sem það
er 91,40. Hjá Atlantsolíu, Esso
Express og ÓB kostar lítrinn
92,50 krónur.
Farseðill gildir í eitt ár!
Verð á mann frá 19.500 kr.
All
taf
ód‡rast á netinu
SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR
Fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur og BSRB
undirrita samning um hitaveitu.
BSRB og Orkuveitan:
Leggja hita
í orlofshús
ORLOFSHÚS Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja hefur samið við
Orkuveitu Reykjavíkur um að
leggja hitaveitu í orlofssvæði
bandalagsins í Munaðarnesi og
Stóru Skógum. Á svæðinu eru 85
orlofshús BSRB og fimm þjón-
ustu- og starfsmannabyggingar
auk um 80 sumarhúsa til viðbótar.
Jarðhitarannsóknir hófust á
svæðinu í ársbyrjun 2002 en und-
anfarnar vikur og mánuði hefur
verið unnið að hönnun veitunnar.
Framkvæmdir eru um það bil að
hefjast og stefnt að því að hita-
veitan verði tilbúin í lok maí. ■
LANDSPÍTALI-HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Læknaráð skilur ekki hvernig veita eigi
meiri sérfræðilæknisþjónustu á göngu-
deildum.
■ Evrópa
■ Bensín
Deila lækna og Tryggingastofnunar:
Getur skapað vandræðaástand
KEPPNISSKAP
Hundar Gerds Eberhard gefa ekkert eftir í alþjóðlegri
sleðahundakeppni sem fram fer í Nassau í austurhluta
Þýskalands. Fljótustu hundarnir eru aðeins um tuttugu
mínútur að draga sleða 10 kílómetra leið.