Fréttablaðið - 11.01.2004, Side 12

Fréttablaðið - 11.01.2004, Side 12
12 11. janúar 2003 SUNNUDAGUR ■ Andlát Leon Trotsky var sendur í út-legð til Alma-Ata þennan dag árið 1928 af Jósef Stalín. Trotsky var fæddur árið 1879 í Úkraínu og voru foreldrar hans rússneskir gyðingar. Hann að- hylltist ungur kenningar Marx og hætti í skóla til að hjálpa til við stofnun verkalýðsfélags í suður- hluta Rússlands. Árið 1898 var hann handtekinn og árið 1990 var hann sendur í útlegð til Síberíu. Eftir tveggja ára útlegð flúði hann til Englands með falsað vegabréf undir nafninu Leon Trotsky. Hann hét í raun og veru Lev Davidovich Bronstein. Í London hóf hann að vinna með Vladimir Ilyich Lenín. Hann fór aftur til Rússlands í byltingunni árið 1905 en var sendur í útlegð þegar byltingin var barin niður. Hann náði aftur að flýja árið 1907. Næsta áratug bjó Trotsky í útlegð, meðal annars í Sviss, Frakklandi, Spáni og New York, vegna róttækra skoðana sinna og sneri loks aftur til Rússlands þeg- ar byltingin braust út árið 1917. Trotsky gegndi lykilhlutverki í byltingu bolsévika og lagði borg- ina Petrograd að mestu leyti und- ir sig áður en Lenín sneri aftur heim í nóvember árið 1917. Þegar Lenín dó árið 1924 tók Stalín við sem leiðtogi Sovét- ríkjanna. Næstu ár gagnrýndi Trotsky störf Stalíns, sem endaði með því að hann var rekinn úr Kommúnistaflokknum og síðan í útlegð. ■ MARY J. BLIGE Þessi bandaríska söngkona er fædd árið 1971 og verður því 33 ára í dag. Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, er 56 ára Ágúst Einarsson hagfræðingur, er 52 ára Ingigerður Fr. Benediktsdóttir, Hrafn- istu, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 2. janúar. Kristín Elísabet Benediktsdóttir Waage, Gnoðarvogi 64, lést miðviku- daginn 7. janúar Helgi Ingólfsson hefur veriðráðinn forstöðumaður Eim- skips í Hollandi og Belgíu frá og með 1. febrúar 2004. Helgi var markaðsstjóri And- ersson Shipping AB, dótturfyrir- tækis Eimskips í Svíþjóð, árið 1998 en var ráðinn forstöðumað- ur Eimskips í Svíþjóð. Helgi lauk námi árið 1996 í markaðs- og við- skiptafræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Bragi Þór Marinósson, for-stöðumaður Eimskips í Hollandi og Belgíu, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri utan- landssviðs frá og með 1. febrúar 2004. Garðar Jóhannsson, sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra, lætur af störfum á sama tíma. Bragi Þór lauk vélaverkfræði- prófi frá Háskóla Íslands árið 1991 og M.Sc. prófi í rekstrar- verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet í Kaup- mannahöfn árið 1993. Hann hóf störf hjá Eimskipi sama ár. Ég er búinn að vera á haus ívinnu og því varla farinn að huga að afmælinu,“ segir afmæl- isbarn dagsins, dagskrárgerðar- maðurinn Ásgeir Kolbeinsson. Síðasta miðvikudagskvöld fór af stað nýr sjónvarpsstaður á Popp- tíví sem Ásgeir hefur umsjón með. „Þátturinn heitir Sjáðu og í honum er fjallað vítt og breitt um þær kvikmyndir sem eru að koma í bíó og skyggnst á bak við tjöld- in,“ segir Ásgeir en þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem hann stjórnar sjónvarpsþætti því hann sér um að kynna Popplistann á Popptíví og leysti einnig strákana í Sjötíu mínútum af í sumar. „Það var sérkennileg reynsla. Það er erfitt að reyna að fylla í skarð þeirra Sveppa og Audda og líklega er ég ekki alveg nógu klikkaður til að standa í þessu. Ég hafði samt lúmskt gaman af,“ segir Ásgeir en auk þess að stjórna tveimur sjón- varpsþáttum á Popptíví stjórnar hann útvarpsþáttum á FM 95,7 þrisvar í viku og er því löggiltur FM-hnakki. Ásgeir segir skemmtanagleði vera einkenni FM-hnakkanna en eftirminnilegustu afmælisgjöfina fékk hann í afmælisfagnaði þegar hann var 25 ára. „Gjöfin var frá Jóa úr Idolinu og Einari Ágúst úr Skítamóral. Þeir mættu í partí til mín ásamt fleiri góðum drengjum og sungu fyrir mig lagið úr Fri- ends með nýjum texta sem var saminn til mín í tilefni dagsins.“ Nú fjórum árum síðar fagnar Ásgeir 29 ára afmælinu. „Það er ferlegt að vera í síðasta sinn tutt- ugu og eitthvað en ég get huggað mig við að vinnan heldur mér ung- um því hér er maður í góðum tengslum við fjörið,“ segir Ásgeir. „Ég stefni á að halda stórt partí á næsta ári og þá verða flugeldar og læti en veit ekki alveg hvernig ég eyði deginum í dag.“ ■ Afmæli ÁSGEIR KOLBEINSSON ■ FM-hnakkinn og sjónvarpsþáttastjórn- andinn segir eftirminnilegustu afmælis- gjöfina hafa verið frá Jóa úr Idolinu og Einari Ágústi á 25 ára afmælisdaginn. TOM ROWLANDS Tónlistarmaðurinn úr The Chemical Brothers er fæddur 1971. 11. janúar ■ Þetta gerðist 1569 Fyrsta ríkislottóið er haldið í Englandi. 1878 Mjólk var borin í fyrsta sinn út í flöskum í New York. Alexander Campbell á heiðurinn af flösk- unum. 1902 Tímaritið „Popular Mechanics“ kemur út í fyrsta sinn. 1942 Japanir lýsa yfir stríði gegn Hol- lendingum og ráðast sama dag á nýlendu þeirra í Austur-Indíum. 1977 Frakkar sleppa Abu Daoud, Palestínumanni sem var grunað- ur um að hafa myrt ísrelska íþróttamenn á Ólympíuleikunum í München. 1980 Nigel Short, fjórtán ára piltur frá Bolton, verður yngsti alþjóða- meistarinn í skáksögunni. 1988 George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, mætir í yfirheyrslur vegna Íran-Contra hneykslisins. 1996 Ryutaro Hashimoto verður for- sætisráðherra Japans. Hann tek- ur við af Tomiichi Murayama, sem hafði sagt af sér. LEON TROTSKY Trotsky þvældist milli landa og settist að lokum að í Mexíkó ásamt fjölskyldu sinni. Hann lifði af byssuárás á heimili sínu en þann 20. ágúst árið 1940 særði spænski kommúnistinn Ramón Mercader hann með ísexi og lést hann degi síðar. Trotsky sendur í útlegð LEON TROTSKY ■ Var sendur í útlegð fyrir að gagnrýna stefnu Jósefs Stalín. 11. janúar 1928 Innri friður á nýrri öld -Nýtt Biblíunámskeið Nýtt og athyglisvert námskeið um líf og boðskap Jesú Krists verður haldið í safnaðarheimili Boðunarkirkjunnar að Hlíðasmára 9, Kópavogi. Það verður á miðvikudögum kl. 20:00 og byrjar 21. janúar. Leiðbeinandi verður Dr. Steinþór Þórðarson sem mörgum er kunnur af fyrri námskeiðum um efni Biblíunnar. Innritun stendur yfir í síma 564-6268 og 861-5371. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi Finnbogi Gunnar Jónsson Drápuhlíð 33, Reykjavík, lést 9. janúar á Landspítalanum Sigurbjörg Sigfúsdóttir Jóhanna Finnbogadóttir Birgir Karl Finnbogason og fjölskylda barnabörn og langafabörn. ■ Afmæli HALLDÓR Þ. SIGURÐSSON Stjórn Félags ís- lenskra atvinnu- flugmanna hefur sent frá sér álykt- un þar sem lýst er andstöðu við að vopnaðir verðir verði sett- ir um borð í flugvélar. Þeir telja að vopn- aðir verðir séu ógn við flugöryggi. ??? Hver? Flugstjóri hjá Flugleiðum og Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna. ??? Hvar? Á skrifstofu FÍA. ??? Hvaðan? Úr Reykjavík. ??? Hvað? Erum að mótmæla hugmyndum um að setja vopnaða verði um borði í flugvélar. ??? Hvers vegna? Skotvopn eiga ekkert erindi um borð í flugvélar. ??? Hvernig? Höfum sett fram okkar ályktun. Við munum ekki fljúga ef það kemur vopn- aður vörður um borð. ??? Hvenær? Þegar að því kemur að áætlað er að setja vopnaða verði um borð. ■ Persónan Í góðum tengslum við fjörið ■ Stöðuveitingar ÁSGEIR KOLBEINSSON Afmælisbarn dagsins frumsýndi nýjan sjón- varpsþátt á Popptíví á miðvikudaginn var. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Foreldrar - Stöndum saman Leyfum ekki eftirlitslaus unglingapartý.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.