Fréttablaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 13
14 11. janúar 2004 SUNNUDAGUR
5,1%* – Peningabréf Landsbankans
www.landsbanki.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitar-félög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.12.2003–31.12.2003 á ársgrundvelli.
RÆTT VIÐ KONUR Í VIÐSKIPTUM
Þegar tilkynnt var um að atvinnuleysi hefði
minnkað í Bandaríkjunum var George W.
Bush að ræða við konur í viðskiptum um
efnahaginn og næstu skref.
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
á
su
nn
ud
eg
i
VIÐSKIPTI Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
6,0%
-1,6%
-3,9%
-3,2%3,9%
3,3%
15
12
9
6
3
0
-3
Mesta
hækkun
(%)*
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
6
3
0
-3
-6
-9
-12
Mesta
lækkun
(%)*
Mesta velta
mán. þri. mið. fim. fös. mán. þri. mið. fim. fös.
Össur hf.
Vátryggingarfélag Íslands hf.
SÍF hf.
Fyrirtæki Velta síðustu sjö daga
Kaupþing Búnaðarbankans hf. 904 milljónir
Pharmaco hf. 659 milljónir
Eimskipafélag Íslands hf. 493 milljónir
Bakkavör Group hf.
Kaldbakur hf.
Kaupþing Búnaðarbankans hf.
Kyrrsetan er farin að segja tilsín. Áramótaheitið á sínum
stað eins og venjulega. Taka sig á
og byggja upp þrek og styrk.
Klukkan er hálf ellefu um kvöld
og búið að taka fyrsta hænu-
skrefið i langri vegferð áramóta-
heitsins. Björn Leifsson, fram-
kvæmdastjóri World Class, er í
vinnunni. Búinn að vera þar allan
desember, meira og minna. „Ég
held að jólin hafi aldrei farið eins
hressilega framhjá mér og
núna,“ segir hann.
Byrjar vel
Ný glæsileg heilsuræktarstöð
hans, Laugar, var opnuð um síð-
ustu helgi í Laugardalnum. Morg-
uninn eftir klukkan tíu eru fjórir
tímar liðnir af nýjum vinnudegi
hjá Birni. „Viðtökurnar hafa verið
framar vonum,“ segir hann og er
bjartsýnn á framhaldið. „Það var
biðröð út úr dyrum hér klukkan
sex í morgun.“ Rekstur líkams-
ræktarstöðva hérlendis á sér ekki
langa sögu. Björn hefur haft út-
haldið í lagi og verið í forystu í
þessum geira í rúm átján ár. Elst-
ur í bransanum. Úthaldið dugir
ekki eitt og sér. Með opnun Lauga
hefur Björn lagt ný og þyngri lóð
á stöngina í rekstri líkamsræktar-
stöðva. Lyft Grettistaki. Líkams-
ræktarstöðin er að sögn sú
stærsta utan Asíu og þar við bæt-
ist að hún er sennilega ein sú allra
glæsilegasta í heiminum. Við það
bætist sú sérstaða hennar að vera
í beinum tengslum við sundlaug-
ina í Laugardal. Björn segir mikil-
vægasta þáttinn í því hversu vel
hefur gengið að vera fyrstur með
nýjungar. „Ég var fyrstur með
pallaleikfimina á sínum tíma og
með spinning-hjólin. Ég var líka
fyrstur til þess að taka inn svona
mikinn fjölda hlaupabretta. Það
þótti magnað þegar ég setti upp
þrjátíu stykki. Í Laugum eru 137
upphitunartæki.“ Laugar eru
Birni draumsýn sem orðin er að
veruleika. „Hugmyndin kviknaði
fyrir 17 árum.“ Hann segist hafa
viðrað hugmyndina um uppbygg-
ingu líkamsræktarstöðvar í
tengslum við þáverandi borgar-
stjóra, Davíð Oddsson, sem hafi
tekið vel í hugmyndina. Skriður
komst á málið í tíð Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur. „Með þess-
ari tengingu líkamsræktarstöðvar
og sundlaugar eiga að detta út
þessar árstíðasveiflur í stöðinni.
Topparnir hafa verið janúar, febr-
úar, mars og svo september og
október. Með tengingunni við
Laugardalslaugina og útivistar-
svæðið í Laugardal býst ég við að
notkunin verði jafnari.“ Hug-
myndasamkeppni var um hönnun
mannvirkjanna og Ari Már Lúð-
víksson arkitekt teiknaði bygg-
ingarnar.
Með lífið að veði
Útkoman er glæsileg. Fjár-
festingin er einn og hálfur millj-
arður. „Maður tekur ekki slíkar
upphæðir upp úr rassvasanum,“
segir Björn og hlær. Hann hikaði
þó ekki við að leggja í hann þótt
fjármunirnir væru ekki í húsi.
„Ég gerði mér grein fyrir því að
ég réði ekki við fjármögnunina
einn. Ég átti rétt fyrir því að
grafa grunninn. Ég átti ekkert
annað en bjartsýnina.“ Hann hug-
aði því samhliða greftrinum að
því að fá fleiri að fjármögnun-
inni. „Það voru allir mjög já-
kvæðir,“ segir Björn. Verkefnið
var hins vegar gríðarstórt og
menn hikuðu. Fyrirtækið Nýsir
hefur byggt, á og rekur fasteign-
ir, meðal annars skólabyggingar.
Björn komst í samband við fyrir-
tækið og forsvarsmönnum Nýsis
leist vel á verkefnið. „Það var
mikið lán fyrir mig að þeir Sigfús
og Stefán hjá Nýsi höfðu trú á
Í LISTRÆNAR HÆÐIR
Hönnun Ara Más Lúðvíkssonar og listaverk Sigurðar Guðmundssonar lyfta baðstofunni í
Laugum í listrænar hæðir. Gufuböðin og baðaðstaðan næra bæði líkama og anda.
Paradís ekki skotið á frest
Laugar, ný heilsuræktarstöð í Laugardalnum, ber Birni Leifssyni og samstarfsfólki hans fagurt vitni.
Sautján ára gömul draumsýn um heilsuparadís í Laugardal er orðin að veruleika. Björn lagði af stað
með bjartsýnina, góða rekstrarsögu og viljann að vopni. Viljann til að láta drauminn rætast.
MEÐ BJARTSÝNI AÐ VOPNI
Ein glæsilegasta líkamsræktarstöð í heimi stendur nú landsmönnum opin. Tengsl hennar við sundlaugarsvæðið í Laugardal opna einstaka möguleika til heilsuræktar. Möguleika sem
Björn Leifsson sá fyrir löngu og hefur unnið markvisst að í á annan áratug.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA