Fréttablaðið - 11.01.2004, Side 33
Í Listasafni Íslands lýkur í dag sýn-
ingunni Raunsæi og veruleiki - Íslensk
myndlist 1960-1980.
■ ■ SÝNINGAR
Jón Gnarr hefur opnað myndlistar-
sýningu í Fríkirkjunni, og nefnir hann
sýninguna I.N.R.I.
Þrjár sýningar hafa verið opnaðar í
Listasafni ASÍ. Í Ásmundarsal sýnir
Rósa Gísladóttir „Kyrralífsmyndir frá
plastöld“, í Gryfju sýnir Margrétar M.
Norðdahl „Annarra manna Staðaldur“
og í Arinstofu er sýning á nokkrum por-
trettmyndum úr gifsi eftir Kristin Pét-
ursson úr eigu Listasafns ASÍ.
Gauthier Hubert og Guðný Rósa
Ingimarsdóttir hafa opnað sýningu í
Nýlistasafninu. Hún stendur til 17. febrú-
ar.
Myndlistarmaðurinn Snorri Ás-
mundsson hefur opnað málverkasýn-
ingu á veitingarhúsinu Sólón.
Hafsteinn Michael hefur opnað
sýningu í Næsta galleríi, Næsta bar,
Ingólfsstræti 1a. Þetta er sjöunda einka-
sýning hans.
Sýning á nýjum verkum eftir Jón
Sæmund Auðarson og Særúnu Stef-
ánsdóttur hefur verið opnuð í Safni,
Laugavegi 37. Þau sýna hvort um sig ný
verk sem eru sérstaklega unnin fyrir sýn-
ingarrýmið. Auk verka úr safneigninni
standa einnig yfir þrjár aðrar sérsýningar
í Safni: Nýjar teiknimyndir eftir
Lawrence Weiner, Litir eftir Adam
Barker-Mill og kynning á verkum frá
ferli listamannsins Hreins Friðfinnsson-
ar.
Tvær einkasýningar hafa verið opn-
aðar í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39. Á
jarðhæð gallerísins sýnir Sólveig Birna
Stefánsdóttir níu málverk og ber sýn-
ingin yfirskriftina „Reiðtúr á nykri“ og
vísar til huglægs ferðalags um lendur
málverksins. Í kjallara gallerísins er
Hulda Vilhjálmsdóttir, Húdda, með
sýninguna „Þegar ég gef þér ritið, tek ég
mynd af því með glermyndavélinni“.
Um er að ræða málverk, skúlptúr og
innsetningu.
Íris Linda Árnadóttir opnaði í gær
sýningu á Pósthúsbarnum, Pósthús-
stræti 13.
Rósa Sigrún Jónsdóttir hefur opn-
að sýningu í Gallerí Hlemmi. Verkið
sem Rósa sýnir heitir „Um fegurðina“ og
samanstendur af um það bil 10.000
samansaumuðum eyrnapinnum og
vídeói. Sýningin stendur til 31. janúar.
Þýski myndlistarmaðurinn Ingo
Fröhlich opnaði í gær sýningu sína
Strich + Linie / Lína + strik í Gallerí
Kling og Bang, Laugavegi 23. Sýning
Ingo stendur til 8. febrúar.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir þema-
sýning úr verkum Errós í eigu safnsins.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur
yfir sýningin Carnegie Art Award 2004,
þar sem sýnd eru verk eftir 24 af helstu
listamönnum Norðurlanda. Sýningin
stendur til 22. febrúar. Gerðarsafn er
opið 11-17 alla daga nema mánudaga.
Raunsæi og veruleiki - Íslensk
myndlist 1960-1980 er heiti sýningar
sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands.
Sýningin er sú langstærsta sem haldin
hefur verið um þetta róttæka tímabil í
íslenskri listasögu. Safnið er opið alla
daga frá 11-17 nema mánudaga. Sýn-
ingunni lýkur nú um helgina.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýn-
ingin Ferðafuða, sem er sýning á mínía-
túrum eftir fjölmarga íslenska listamenn.
Þar stendur einnig yfir sýningin „Mynd-
listarhúsið á Miklatúni - Kjarvalsstaðir í
30 ár“. Báðum þessum sýningum lýkur
25. janúar.
34 11. janúar 2004 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
8 9 10 11 12 13 14
JANÚAR
Sunnudagur
Veislusalurinn Turninn er uppiá sjöundu hæð í verslunarmið-
stöðinni Firðinum í Hafnarfirði.
Þaðan er glæsilegt útsýni og ekki
amalegt að sitja þar uppi og hlusta
á fagra tónlist.
Í kvöld verða þar á rómantísku
nótunum söngfuglarnir Kristjana
Stefánsdóttir og Páll Óskar
Hjálmtýsson. Þetta eru fyrstu
tónleikar ársins í tónleikaröðinni
Kvöld í Firðinum, sem Kristjana
skipuleggur fyrir veitingastaðinn
Café Aroma.
„Við Palli ætlum að syngja lög
sem eru í hans anda svolítið, bæði
sóló og dúetta,“ segir Kristjana.
„Við ætlum til dæmis að dusta
rykið af dúett sem við sungum inn
á plötu árið 1996 og heitir Góða
nótt. Við höfum ekki sungið þetta
lag síðan þá. Svo ætlar hann að
syngja sín uppháldslög en hafa
það kannski svolítið djassað.“
Forsvarsmenn Café Aroma
báðu Kristjönu um að skipuleggja
fyrir sig heila tónleikaröð sem
stendur fram á vorið. Hún hringdi
síðan í mann og annan, og allir
vildu taka þátt í þessu með henni.
Í febrúar mætir til leiks Tómas
R. Einarsson, í mars verður það
Diddú, í apríl Andrea Gylfadóttir
og á lokatónleikunum í maí kemur
svo fram fimm manna söngkvar-
tett, sem skipaður er þeim Heru
Björk, Aðalheiði Þorsteinsdóttur,
Gísla Magnasyni og Þorvaldi Þor-
valdssyni, að ógleymdri Kristjönu
sjálfri.
„Við höfum verið að hittast síð-
an í haust og erum að syngja fimm-
radda djassútsetningar. Þetta
verður fyrsta uppákoman hjá okk-
ur. En við stefnum auðvitað að
heimsfrægð og heimsyfirráðum,“
segir Kristjana af lítillæti sínu.
Hún segir að allir tónleikarnir
verði svolítið djassaðir, í það
minnsta í aðra röndina. „Þetta
verður innan sveiflumarka allt
saman, ef svo mætti segja.“ ■
■ TÓNLEIKAR
Rómantík á sjöundu hæð
afsláttur
gildir ekki um sérpantanir
12. - 24. jan.
Einnig magna›
úrval efna me›
miklum afslætti
Opnunartími
mán. - mi›. 10 - 16
fim. - fös. 10 - 18
lau. 12 - 16
pnunartí i
án. - i›. 10 - 16
fi . - fös. 10 - 18
lau. 12 - 16
GRIPIN GLÓÐVOLG Á ÆFINGU
Kristjana og Páll Óskar ásamt Agnari Má Magnússyni píanóleikara. Með þeim á myndinni,
lengst til vinstri, er Jón Már Guðmundsson, veitingamaður í Café Aroma, sem stendur fyrir
tónleikunum í Turninum í kvöld.
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 Rússneska kvikmyndin "Hvít-
ur hrafn" verður sýnd í bíósal MÍR að
Vatnsstíg 10.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.30 Siggi Björns, Mugison og
Rúna, Olavi Körre og Þórhallur, Karen
Emelía Barrysdóttir Woodrow, og
Pálína Vagnsdóttir og félagar koma
fram á tónleikum á Ísafirði til styrktar
fórnarlömbum jarðskjálftans í Íran. Tón-
leikarnir verða haldnir í Hömrum, sal
Tónlistarskóla Ísafjarðar.
20.30 Stórglæsilegir tónleikar Krist-
jönu Stefánsdóttur jasssöngkonu og
Páls Óskars Hjálmtýssonar verða í
Veislusalnum Turninum.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Égner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
17.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Égner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Bless fress með Þresti Leó
Gunnarssyni í Loftkastalanum.
20.00 Sporvagninn Girnd eftir
Tennessee Williams á nýja sviði Borgar-
leikhússins.
20.00 Vegurinn brennur eftir
Bjarna Jónsson á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
■ ■ ÚTIVIST
11.00 Gönguskíðaferð Ferðafé-
lags Íslands. Mæting í Mörkinni 6. Um-
sjón með ferðinni hefur Þorsteinn Eiríks-
son.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Sýningunni Þetta vilja börnin sjá! í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi lýk-
ur í dag.