Fréttablaðið - 11.01.2004, Page 34
SUNNUDAGUR 11. janúar 2004 35
■ MYNDLISTARSÝNING
Olíustrókur
upp úr Geysi
HJÓNAKORNIN Í SÓFANUM
Sýning þeirra Gauthiers Hubert og
Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur verður
opnuð í Nýlistasafninu í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Á sýningu belgíska myndlistar-mannsins Gauthiers Hubert,
sem opnuð var í gær í Nýlistasafn-
inu, getur meðal annars að líta
ofurlitla mynd af Geysi þar sem
svartur olíustrókur spýtist upp í
loftið í stað heitrar vatnsgufu.
Svartur maður er þarna líka
klæddur að hætti þýskra nasista-
foringja, með merki Texaco-olíu-
fyrirtækisins í staðinn fyrir nas-
istamerki, og í staðinn fyrir þrjár
íslenskar blómarósir í Bláa lóninu
eru þangað komnir þrír svartir
menn í atvinnuleit.
„Ég er mikið að velta því fyrir
mér hvernig hlutir blandast sam-
an, hvítt verður að svörtu og svart
að hvítu. Venjulega aðferðin er sú
að blanda svörtum lit út í hvítan,
en með mynd af Michael Jackson
birti ég uppskrift að því hvernig
þetta er gert á hinn veginn.“
Gauthier segir allar sýningar
sínar hafa verið pólitískar, og
þessi er engin undantekning.
Áhrif Bandaríkjanna í heiminum
eru honum greinilega ofarlega í
huga. Heiti sýningarinnar er
„USA USE US“, og þessar þrjár
skammtstafanir standa fyrir
„United States of Art“, „United
States of Esthetics“ og „Urban
Services“.
Sýning eiginkonu hans, Guðný-
ar Rósu Ingimarsdóttur, sem
einnig verður opnuð á sama stað í
dag, er aftur á móti miklu hljóð-
látari og öll á persónulegum nót-
um.
„Stundum finnst mér eins og
ég sé að hvísla í hornum eða
ganga með veggjum,“ segir Guð-
ný Rósa. Verk hennar eru þó ekki
síður áhrifarík, hafi menn fyrir
því að leggja við hlustir.
„Mér finnst gaman að vera með
ýmsa litla hluti sem fólk kannski
tekur ekki eftir og missir af.“
Þetta er í fyrsta sinn sem þau
sýna saman. Jafnframt er þetta
fyrsta sýning Gauthiers á Íslandi,
þótt hann hafi komið hingað oft og
þekki orðið býsna vel til.
Þau Guðný og Gauthier hafa
einnig skipulagt málþing, sem
haldið verður í Nýlistasafninu í
dag. Þar verða opnar hring-
borðsumræður þar sem myndlist-
armennirnir Ólafur Elíasson,
Hlynur Hallsson og Cel Crabeels
frá Belgíu verða meðal þátttak-
enda. ■
Guðbjörg Lind er með málverka-
sýningu í gallerínu og skartgripaverslun-
inni Hún og hún, Skólavörðustíg 17b.
Í tilefni 140 ára afmælis Þjóð-
minjasafnsins stendur yfir sýning í risi
Þjóðmenningarhússins.
Þorkell Þórisson sýnir yfir 50 olíu-
og akrílmyndir í nýju gallerí að Tryggva-
götu 18 sem nefnist Gallerí T-18.
Birna Smith sýnir olíumálverk á stri-
ga í Gallerí Hnossi, Skólavörðustíg 3.
Einnig sýnir hún olíumálverk eftir sig í
sýningarsal Hans Petersen á Garðatorgi
í Garðabæ.
Sigríður Pálsdóttir er með ljós-
myndasýningu á Kaffi Nauthól í Naut-
hólsvík. Sýningin heitir Mitt útsýni.
Sýning á málverkum eftir Braga Ás-
geirsson stendur yfir í forkirkju Hall-
grímskirkju. Bragi sýnir stór óhlutbund-
in olíuverk þar sem hann vinnur með
ljósið og þau birtuskil sem framundan
eru. Sýningin stendur til 25. febrúar
2004.
Í Þjóðarbókhlöðunni stendur nú
yfir sýningin „Í orði og á borði“, sem er
samsýning Freyju Bergsveinsdóttur,
grafísks hönnuðar, og Guðrúnar Ind-
riðadóttur leirlistarkonu.
Í Ásmundarsafni stendur yfir sýn-
ingin Ásmundur Sveinsson - Nútíma-
maðurinn. Þetta er yfirlitssýning haldin í
tilefni af 20 ára afmæli Ásmundarsafns.
Hún stendur til 20. maí.
Sölusýning Péturs Péturssonar á
11 málverkum hjá Val-myndum í Ár-
múla 8 hefur verið framlengd og mun
standa út janúarmánuð.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Þarfasta
handbók
nýs árs
Fæst í öllum
helstu bóka-
verslunum
H á s k ó l a ú t g á f a n