Fréttablaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 1
RANNSÓKN Rannsókn Samkeppnis-
stofnunar á meintu ólöglegu sam-
ráði tryggingafélaganna virðist
komin á lokasprett sinn. Fulltrúar
Samkeppnisstofnunar og stóru
tryggingarfélanna þriggja, Sjó-
vár-Almennra, Tryggingamið-
stöðvarinnar og VÍS, hafa rætt
saman um hvernig megi ljúka
rannsókninni. Hún hófst haustið
1997 með því að starfsmenn Sam-
keppnisstofnunar gerðu húsleit á
skrifstofum Sambands íslenskra
tryggingafélaga. Síðan hefur
rannsóknin dregist á langinn og
sex og hálfu ári síðar hefur engin
niðurstaða fengist
„Það eru ákveðnar viðræður í
gangi milli Samkeppnisyfirvalda og
félaganna. Það er ekkert útséð á
þessari stundu til hvers þær leiða,“
segir Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar. Hann segir það
von samkeppnisyfirvalda að málinu
ljúki á næstu vikum eða mánuðum.
Einar Sveinsson, forstjóri Sjó-
vár-Almennra, segir það kappsmál
síns félags að athuguninni ljúki
sem fyrst. „Það þarf ekki mikla
spekinga til að sjá að rannsókn sem
dregst svona á langinn hlýtur að
skaða þá sem hún beinist að, þegar
þeir hafa lýst því yfir að þeir hafi
ekkert gert rangt,“ segir hann.
Einar kveðst ekki geta sagt til
um hvenær málinu lýkur. „Ég held
að það snúi algjörlega að Sam-
keppnisstofnun. Okkar svör hafa
legið ljós fyrir lengi. Ég kvíði ekki
niðurstöðunni.“
Hvorki náðist í Finn Ingólfs-
son, forstjóra VÍS, né Gunnar Fel-
ixson, forstjóra Tryggingamið-
stöðvarinnar, sem er erlendis.
Meðal þess sem Samkeppnis-
stofnun hefur athugað eru við-
brögð tryggingafélaganna við
komu Lloyd's inn á íslenskan
tryggingamarkað í samstarfi við
Félag íslenskra bifreiðaeigenda.
Þá lækkuðu þau iðgjöld sín og mat
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
ávinninginn fyrir bílaeigendur upp
á einn milljarð króna á einu ári. Í
frumskýrslu Samkeppnisstofnun-
ar kom fram sú skoðun að Sjóvá-
Almennar og Tryggingamiðstöðin
hefðu haft samráð vegna útboðs á
slysatryggingum lögreglumanna.
brynjolfur@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
MÁNUDAGUR
LJÓSMYNDIR SEM NÝR MIÐILL
Hanna G. Guðmundsdóttir listfræðingur
flytur fyrirlestur um ljósmyndun sem „nýj-
an“ miðil í myndlist síðustu tvo áratugi í
verkum listamanna á borð við Cindy
Sherman. Fyrirlesturinn verður haldinn í
Listaháskóla Íslands klukkan 12.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HLÝINDAKAFLI Í KORTUNUM Já
nú nálgast hlýindi með úrkomu. Í höfuðborg-
inni verður meira eða minna rigning alla
vikuna. Hlýnar hægar fyrir norðan. Sjá síðu 6.
● skipulag miðbæjar á egilsstöðum
● tilbúnir milliveggir▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Á ekki færri en
þrjú stell
Svanhildur Jakobsdóttir:
19. janúar 2004 – 18. tölublað – 4. árgangur
● henry með tvö mörk
Íþróttir:
▲
SÍÐA 25
Óskahelgi
Arsenal
● árni tryggvason áttræður
Afmæli:
▲
SÍÐA 16
Fæ að lifa í
næstu mynd
MILLJÓNAÞJÓFNAÐUR Tveir menn
brutust inn í ljósmyndastofu Jóhannesar
Long við Ásholt í Reykjavík í gærmorgun.
Þeir stálu búnaði upp á milljónir króna og
hundrað gömlum myndavélum. Sjá síðu 2
RÉÐST INN MEÐ HNÍF Ránstilraun
var gerð í söluturninum Dalsnesti í Hafnar-
firði rétt fyrir klukkan tíu í fyrrakvöld. Hettu-
klæddur maður, vopnaður hnífi, réðst inn í
söluturninn og heimtaði peninga. Sjá síðu 4
TEKIÐ Á VANDANUM Félagsmálaráð-
herra segir óvíst að búsetuvandi geðfatl-
aðra einstaklinga verði jafnstór og kynnt
hefur verið. Hann segir að tekið verði á
hluta vandans á þessu ári. Sjá síðu 2
VATNSPÍPA YFIR FAXAFLÓA Orku-
veitan íhugar á næstu árum að leggja
vatnspípu yfir Faxaflóann og flytja þannig
Gvendarbrunnavatn til Akurnesinga. Lögnin
yrði um 12 mílna löng og kostnaðurinn
nokkur hundruð milljónir króna. Sjá síðu 8
VEÐUR „Þetta gekk ágætlega núna
og við erum langt komnir með að
moka götur í borginni og ryðja
gangstéttir,“ sagði Sigurður
Skarphéðinsson, gatnamálastjóri í
Reykjavík.
Fjölmargir borgarbúar hafa
lent í vandræðum vegna ófærðar
síðustu sólarhringa, líkt og í óveð-
ursskotinu sem gekk yfir milli
jóla og nýárs. Snjókoman og
ófærðin sem henni fylgdi var
fyrsta alvöruhretið í borginni í
áraraðir.
„Líkt og þá höfum við nú verið
með hátt í 30 snjóruðningstæki
um borgina, bæði okkar eigin tæki
og leigutæki. Þau hafa verið að frá
því klukkan fjögur á morgnana og
langt fram á kvöld, allt upp í sext-
án tíma á sólarhring. Ætli kostnað-
urinn sé ekki nálægt hálfri milljón
á klukkustund. Óveðursskotið
núna og það sem skall á milli jóla
og nýárs kosta því vel á annan tug
milljóna króna,“ sagði Sigurður
Skarphéðinsson gatnamálastjóri.
Seinni hluta dags í gær hlýnaði
ört og má því búast við að snjóa
leysi nokkuð á næstu dögum, þó
ekki sé gert ráð fyrir asahláku.
„Það eru lægðir að koma upp að
landinu og við gætum séð hitatölur
allt upp í 6 til 7 gráður hér á sunn-
an- og vestanverðu landinu í dag
og næstu daga. Fram eftir degi
verður þó enn kalt norðaustan til
en síðan hlýnar ögn þar líka. Það
er fylgir einhver úrkoma lægðun-
um og vindur verður víðast hvar
10 til 15 metrar á sekúndu. Um
næstu helgi snýst vindur til norð-
anáttar og þá kólnar í veðri á ný,“
sagði Óli Þór Árnason, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands. ■
Hyllir undir lokin á
tryggingarannsókn
Samkeppnisyfirvöld og tryggingafélögin eru í viðræðum um að ljúka rannsókn stofnunarinnar á
meintu ólöglegu samráði tryggingafélaganna. Á sjöunda ár er liðið frá því rannsóknin hófst.
Snjómoksturinn vegna óveðursskotanna borginni dýr:
Kostar hálfa milljón á klukkustund
MANNSKÆÐ SPRENGJUÁRÁS Í BAGDAD Að minnsta kosti tuttugu fórust og meira en sextíu slösuðust þegar öflug bílsprengja sprakk
fyrir utan höfuðstöðvar bandaríska hersins í Bagdad í gærmorgun. Sprengjan sprakk um klukkan átta að staðartíma nálægt vel vörðu aðal-
hliði höfuðstöðvanna, sem eru í Lýðveldishöll Saddams Hussein, fyrrum Íraksforseta, í hjarta höfuðborgarinnar. Sjá nánar á bls. 6
Upplausn í slökkviliði:
Klámstjarna
í liðinu
KALIFORNÍA, AP Sautján af tuttugu og
fimm liðsmönnum slökviliðs Keyes,
smábæjar í Kaliforníu, sögðu upp
starfi sínu á dögunum vegna opin-
skárra kynlífslýsinga félaga þeirra.
Slökkviliðsmaðurinn, eða konan op-
inskáa, Alexa Jones, drýgir tekjur
sínar með leik í klámmyndum.
Félögum hennar fannst hún lýsa
aukastarfinu svo nákvæmlega að
þeim var nóg boðið og gengu út.
Slökkviliðsstjórinn, sem jafnframt
er eiginmaður klámmyndaleikkon-
unanr, segir tjáningarfrelsið heim-
ila konunni að ræða um klám-
myndaleikinn. Slökkvilið í nágrenni
Keyes hafa heitið aðstoð í útköllum
þar til nýir slökkviliðsmenn hafa
verið ráðnir til starfa. ■
Þykir vænt um
miðstöðina sína
bílar o.fl.
Guðmundur Jónsson:
▲
SÍÐA 18
● jón heiðar gefur góð ráð
● öryggisprófanir volvo
EINAR SVEINSSON
Kappsmál að málinu ljúki sem fyrst en það
snýr fyrst og fremst að Samkeppnisstofnun.