Fréttablaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
ÚRSLITALEIKUR Landsliðið í hand-
bolta leikur við Tékka um sæti í milliriðl-
um Evrópumótsins í handbolta. Íslend-
ingar verða að sigra til að komast áfram
en Tékkum dugir jafntefli í leiknum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJARTVIÐRI Á SUÐURHELM-
INGNUM Ennþá ískalt um land allt.
Spám ber ekki saman um hvenær hlýnar.
Vindur skaplegur og éljagangur á Norð-
austurlandi. Sjá síðu 6
25. janúar 2004 – 24. tölublað – 4. árgangur
ERFIÐ ÁKVÖRÐUN Sjálfstæðismenn
biðu í ofvæni þegar Davíð Oddsson var
spurður um framtíð sína í stjórnmálum á
fundi í Valhöll. Hann hefur enn ekki gert
upp hug sinn en sagði flokksmönnum að
það gæti skýrst með vorinu. Sjá síðu 2
HAFA EKKI LEYFI EN KEYRA
SAMT Vöruafgreiðslan á Patreksfirði hefur
sinnt vöruflutningum í rúm tvö ár þrátt fyrir
að skorta leyfi til þess. Vegagerðin veit af
því en ekkert hefur verið aðhafst gagnvart
fyrirtækinu. Sjá síðu 4
ENGIN GEREYÐINGARVOPN Fyrr-
um yfirmaður vopnaeftirlitssveita Bandaríkj-
anna í Írak kveðst sannfærður um að engin
gjöreyðingarvopn hafi verið að finna í Írak
síðasta áratuginn. Bresk og bandarísk
stjórnvöld eru þó fullviss um að einhver
slík vopn finnist. Sjá síðu 6
SKORTIR LÖGFRÆÐINGA Forseti
lagadeildar Háskóla Íslands segir skort á
lögfræðingum. Hann telur eina ástæðuna
þá að aukin eftirspurn eftir lögræðimennt-
uðu fólki hafi fylgt meiri reglugerðum Evr-
ópusambandsins. Sjá síðu 8
OPNUNARHÁTÍÐ AFRÍKUBIKARSINS Það var mikið um dýrðir á opnunarhátíð Afríkubikarsins í fótbolta. Keppnin, sem fram fer í Tún-
is næstu þrjár vikurnar, hófst í gær með opnunarhátíðinni og leik heimamanna og Rúanda. Túnisbúar, sem eru þekktir fyrir að byrja illa í
mótinu, fóru með sigur af hólmi, 2-1.
Átti ekki að vera hægt
Heimir Gunnar Hansson, annar skipverjanna af Sigurvini, var við það að gefa upp alla von um að
þeim félögum yrði bjargað. Svanur Karl Friðjónsson félagi hans segir Heimi hafa bjargað lífi sínu.
SJÓSLYS Heimir Gunnar Hansson
bjargaði Svani Karli Friðjónssyni
úr ísköldum sjónum og kafaði svo
eftir björgunarvestum eftir að
báti þeirra hvolfdi í innsigling-
unni í Grindavíkurhöfn á föstu-
daginn. Þegar bátnum hvolfdi áttu
þeir ekki nema tvö til þrjú hundr-
uð metra ófarna til að komast inn
fyrir innri varnargarð hafnarinn-
ar, en þar fyrir innan var sjórinn
lygn.
Heimir segir að hann hafi ekki
verið vongóður um að þeim félög-
um yrði bjargað enda hafi aðstæð-
ur í innsiglingunni verið hrikaleg-
ar. „Þetta eru jaxlar,“ segir hann
um meðlimi björgunarsveitarinn-
ar Þorbjarnar. „Þetta er ein sú öfl-
ugasta sveit sem ég veit um,“ seg-
ir hann.
Gúmmítuðru björgunarsveit-
arinnar hvolfdi eftir að skip-
verjarnir voru komnir um borð og
féll Svanur Karl aftur útbyrðis og
var nokkra stund í viðbót í sjónum
áður en hægt var að taka hann
upp í.
Báðir mennirnir eru komnir
heim til Grindavíkur og eru við
prýðilega heilsu en þreyttir.
Sjá síðu 2.
Jón Kristjánsson:
Til í að skoða
málið aftur
SUNNUDAGSVIÐTAL „Ef stjórnendur
spítalans álíta að einhverjar af
þessum aðgerðum dragi úr öryggi
mun ég fara betur yfir þau mál
með þeim,“ segir Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra um
sparnaðaraðgerðir LSH.
Í viðtali við blaðið í dag segist
hann enn fremur ætla að berjast
fyrir áframhaldandi setu sinni í
ríkisstjórn, en ráðherrum Fram-
sóknar fækkar um einn í septem-
ber. „Ég sé ekki af hverju ég ætti
að víkja,“ segir Jón og bætir við
að hann hafi fullan hug á að ljúka
því verki sem honum var falið.
Sjá nánar á bls. 22.
Með þjóðina á bakinu
Enn og aftur er íslenska handboltalandsliðið í sviðsljósinu, nú á Evrópumótinu í Slóveníu. Geðheilsa lands-
manna helst gjarnan í hendur við gengi liðsins á stórmótum; þegar vel gengur líður okkur vel en þegar á
móti blæs finnst okkur sem óréttlæti heimsins sé algjört og stemningin í samfélaginu er eftir því.
Halló, er einhver á línunni?Áhrif hlýnandi
loftslags á Ísland
SÍÐA 24
▲
Skoðanir landsmanna á þjóðlífinu liggja ekki alltaf á lausu. Sumum er þó
mikið í mun að segja álit sitt og nota til þess innhringiþætti útvarps-
stöðvanna.
SÍÐA 21
▲
SÍÐA 20
▲
Forsetakosningar:
Kerry yfir
gegn Bush
BANDARÍKIN Samkvæmt nýrri
könnun tímaritsins Newsweek
myndi John Kerry bera sigurorð
af George Bush forseta ef þeir
tveir kepptu um forsetaembættið.
Í könnuninni sögðust 49%
myndu styðja Kerry en 46% Bush.
Þegar spurt var um afstöðu ef
kosið yrði á milli Bush og Howard
Dean hafði Bush forskot; 50%
kysu Bush og 45% Dean.
Í könnuninni kemur einnig
fram að 52% vilja ekki að Bush
verði endurkjörinn og hafa vin-
sældir hans dalað mjög að undan-
förnu. ■
Vísindamenn spá hækkandi hitastigi á
jörðinni á komandi árum. Hvaða áhrif hefur
þetta á Ísland? Munum við sjá nýjar
skordýrategundir eða tré hér á landi? Hvað
verður um jöklana? Fréttablaðið ræddi við
nokkra vísindamenn.