Fréttablaðið - 25.01.2004, Qupperneq 2
2 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR
„Henni er hvergi brugðið af því að
hún hefur vitað þetta síðan 1983
þegar hún nældi í mig.“
Jón Ólafsson tónlistarmaður er kynþokkafyllsti
maður Íslands samkvæmt könnun Rásar 2. Eigin-
kona hans er Sjöfn Kjartansdóttir.
Spurningdagsins
Jón, hvernig tekur konan þessu?
Ofurmennið Heimir
togaði mig upp
Svanur Karl Friðjónsson segir félaga sinn Heimi Gunnar Hansson hafa sýnt hetjudáð þegar
hann bjargaði honum úr ísköldum sjónum. Heimir kafaði svo eftir björgunarvestum.
Björgunarsveitin Þorbjörn vann afrek við björgunina.
SJÓSLYS Heimir Gunnar Hansson
vann mikið afrek þegar hann náði
að draga félaga sinn, Svan Karl
Friðjónsson, upp á kjöl Sigurvins
GK eftir að bátnum hvolfdi í inn-
siglingunni í Grindavíkurhöfn á
föstudaginn.
Skipverjarnir eru báðir komnir
heim og eru við góða heilsu en
Svanur Karl var eina nótt á
sjúkrahúsi í Reykjavík eftir volk-
ið. Hann var í ísköldum sjónum í
meira en tuttugu mínútur áður en
björgunarsveitarmönnum tókst
að koma honum
um borð í
slöngubát.
„Það er eins
og tíu tonna
trukkur hafi
keyrt yfir mig.
Ég er með of-
boðslega strengi
og hálsríg. Ég er
þreyttur,“ segir Heimir.
Svanur Karl segir að Sigurvin
hafi fengið á sig stóra öldu og
bátnum hvolft mjög skömmu áður
en þeir komust inn fyrir innri
varnargarðinn í höfninni.
Skipverjarnir voru nokkra
stund að koma sér úr brúnni og
upp á yfirborðið þar sem þeir
stóðu á lunningunni en báturinn
maraði í hálfu kafi.
Eftir að þeir höfðu staðið þar
um stund féll Svanur í sjóinn er
mikið öldurót gekk yfir þá félag-
anna. „Svo ríða öldurnar yfir bát-
inn á meðan við stöndum þarna.
Ég dett og hangi þarna á annarri
hendinni og ofurmennið hann
Heimir togar mig upp,“ segir
Svanur Karl. „Ég fæ bara ein-
hvern aukakraft og kippi honum
inn fyrir,“ segir Heimir.
Skömmu eftir þetta sætti
Heimir lagi og kafaði eftir björg-
unarvestum og þrýsti á neyðar-
hnapp bátsins.
Heimir segir að björgunar-
sveitarmenn úr Þorbirni hafi unn-
ið þrekvirki. „Þetta átti ekki að
vera hægt. Þetta eru bara jaxlar,“
segir hann.
Báðir voru skipverjarnir orðn-
ir örvæntingarfullir og segist
Heimir ekki hafa talið að þeim
yrði bjargað. „Ég sá bláu ljósin í
landi og var alveg pottþéttur á að
það næðist ekkert í mann. Svo
þegar báturinn loksins kom hélt
ég að ég færi bara í skrúfuna [á
slöngubátnum],“ segir Heimir.
Eftir að þeir komust um borð í
tuðruna hvolfdi henni og féll
Svavar Karl útbyrðis og Heimir
flæktist í köðlum. Björgunar-
sveitarmennirnir sigldu inn í
lygnuna til þess að losa Heimi
áður en þeir sneru aftur til þess
að kippa Svani Karli aftur um
borð.
Svanur Karl segir að varla hafi
gefist tími til þess að vera hrædd-
ur á meðan á hrakförunum stóð en
að tæpt hefði staðið. „Maður var
orðinn sáttur við að drekka sjóinn
og var hættur að finna fyrir því.
Þetta var orðið það tæpt,“ segir
hann. thkjart@frettabladid.is
Forsætisráðherra er enn óákveðinn um framtíð sína:
Mjög stór ákvörðun
í mínu pólitíska lífi
STJÓRNMÁL „Ég var í stólnum, eigin-
lega að hugsa upphátt, fyrir framan
vel á annað hundrað manns. Þetta er
mjög stór ákvörðun í mínu pólitíska
lífi,“ sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra að loknum fundi sjálfstæð-
ismanna í Valhöll í gær. Þar var
hann spurður út í framtíð sína í
stjórnmálum og átti í nokkrum
vandræðum með að svara.
Salurinn var spennuþrunginn
eftir að Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi og sjónvarpsmaður,
spurði Davíð hvað hann hygðist
gera. Til stóð að bíða eftir spurning-
um frá fleirum áður en Davíð svar-
aði en fundarstjóri sagði ljóst eftir
þessa spurningu að fólk myndi bíða
með aðrar spurningar þar til for-
manni flokksins hefði gefist færi á
að svara.
Davíð sagði að það hefði verið
eðlilegt af fólki að velta því fyrir
sér í kringum síðustu kosningar
hvort það væri heppilegt að sami
maður sæti mjög lengi sem forsæt-
isráðherra. Hann rifjaði jafnframt
upp að Ólafur Thors hefði verið for-
maður Sjálfstæðisflokksins í 27 ár
en lofaði fundarmönnum því þó að
hann ætlaði sér ekki að reyna að
vera formaður jafn lengi. Davíð tók
fram að hann vildi ekki leyna
flokkssystkin sín neinu. „Ég hef
bara ekki gert þetta upp við mig.“ ■
Varnarliðsmál:
Eykur ekki
bjartsýni
STJÓRNMÁL „Fundirnir sem við höfum
þegar átt eru ekki sérstaklega til
þess fallnir að auka manni bjartsýni
í þeim málum,“ sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra um viðræður við
Bandaríkjamenn um framtíð varnar-
liðsins á fundi með sjálfstæðismönn-
um í gær.
Davíð sagði að viðræðurnar væru
erfiðari en ella þar sem áhersla
Bandaríkjamanna beindist að öðrum
heimshluta. „Við væntum þess og
trúum því enn að Bandaríkjamenn
muni engu að síður axla þær skyldur
sem í varnarsamningnum felast því
þeir hafa enn ekki sagt að þeir vilji
segja upp þeim samningi.“ ■
Gæti hlýnað á morgun:
Misvísandi
veðurspár
VEÐRIÐ „Það er mjög kalt loft yfir
landinu og hlýtt loft á ekki greiða
leið vegna hæð-
arsvæðis,’’ segir
Sigurður Þ.
R a g n a r s s o n
veðurfræðingur.
Sigurður seg-
ir erfitt að sjá
hvenær hitnar.
„Spárnar eru
mjög misvísandi
hvað það varðar.
Amerísku spárn-
ar gera ráð fyrir
hlýindum strax á
mánudag á með-
an þær evrópsku
gera ekki ráð fyrir hlýindum fyrr
en vikan er á enda.“
Svona staða sést af og til í
spánum, segir Sigurður. „Í þessu
tilviki snýst þetta um hæðar-
svæði, hversu öflugt og útbreitt
það verður.
Samkvæmt einstaka spám
verður fallegt veður, þá einkum á
vestanverðu landinu á þriðjudag,
en ekki hægt að fullyrða neitt.
Þegar afstaðan er svona ólík getur
allt gerst.“
Í dag má búast við éljum norð-
anlands. ■
HELMUT NEWTON LÁTINN Tísku-
ljósmyndarinn Helmut Newton
lést í bílslysi í Los
Angeles, 83 ára að
aldri. Newton var að
aka út úr bílastæði á
hóteli í Hollywood
þegar hann missti
stjórn á bílnum sín-
um og lenti á vegg. Newton er
þekktastur fyrir erótískar svart-
hvítar ljósmyndir sem meðal
annars birtust í virtum tímaritum
á borð við Playboy og Vogue.
FANGAVÖRÐUM HALDIÐ Í GÍSL-
INGU Nokkrir fangar hafa haldið
tveimur fangavörðum í gíslingu í
varðturni í ríkisfangelsinu í
Yuma í Arizona í heila viku. Eng-
ar upplýsingar hafa fengist um
það hvaða kröfur fangarnir hafa
sett fram. Talið er að fangarnir
séu vel vopnum búnir.
MAFÍUFORINGI DÆMDUR Banda-
ríski mafíuforinginn Louis Dai-
done hefur verið fundinn sekur
um okurlánastarfsemi og aðild að
tveimur morðum. Annað fórnar-
lambið var skilið eftir með
kanarífugl í munninum öðrum til
viðvörunar. Daidone á yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi.
Uppreisnarmenn reiða til höggs í Írak:
Níu fórust í þremur árásum
ÍRAK, AP Fimm bandarískir her-
menn og fjórir Írakar féllu í
þremur sprengjuárásum í Írak í
gær. Hátt í fimmtíu manns særð-
ust í árásunum, þar á meðal fjöldi
óbreyttra borgara.
Þrír bandarískir hermenn féllu
og sex særðust þegar bíll sprakk
við bandaríska eftirlitsstöð í bæn-
um Khaldiyah, um 110 kílómetra
vestur af Bagdad. Að minnsta
kosti átta Írakar særðust í árás-
inni. Tveir aðrir Bandaríkjamenn
létu lífið þegar sprengja sprakk
við vegkant skammt norður af
Fallujah.
Þriðja árásin átti sér stað í
bænum Samarra, um 110 kíló-
metra norður af Bagdad. Vörubíll
sprakk þegar honum var ekið á
lögreglustöð með þeim afleiðing-
um að fjórir óbreyttir borgarar
létust og um fjörutíu manns særð-
ust, þar af sjö bandarískir her-
menn. Miklar skemmdir urðu á
lögreglustöðinni auk þess sem
eldur kviknaði í fjölda bíla. Gígur
myndaðist í götunni þar sem vöru-
bíllinn sprakk.
Alls hafa nú 512 bandarískir
hermenn fallið í Írak síðan stríðið
hófst 20. mars 2003. ■
Frönsk kona:
Leyst úr
gíslingu
VENESÚELA, AP Lögreglan í Trujillo í
Venesúela bjargaði í gær franskri
konu sem hafði verið í gíslingu
mannræningja í rúman mánuð.
Einn ræningjanna lést í skotbar-
daga við lögreglu og annar særð-
ist.
Stephanie Minana, sem er 25
ára, var bjargað úr skúr í af-
skekktu fjallahéraði um 400 kíló-
metra frá borginni Caracas. Einn
ræningjanna var handtekinn og
lögreglan leitar nú að fjórum
mönnum sem grunaðir eru um
ránið. Lögreglan komst á spor
ræningjanna eftir að þeir skipuðu
foreldrum konunnar að fara með
4,2 milljóna króna lausnarfé þang-
að. Lögreglu grunaði að konan
yrði drepin um leið og búið væri
að borga. ■
SIGURÐUR Þ.
RAGNARSSON
Það er mjög kalt
loft yfir landinu og
á hlýtt loft ekki
greiða leið vegna
hæðarsvæðis.
Á FUNDI Í VALHÖLL
Sjálfstæðismenn biðu spenntir eftir því
sem forsætisráðherra segði um framtíð
sína.
SPRENGJUÁRÁS
Fjöldi bíla brann til kaldra kola þegar sprengja sprakk við lögreglustöð í bænum Samarra.
„Ég fæ bara
einhvern
aukakraft og
kippi honum
inn fyrir.
HEIMIR GUNNAR OG SVANUR KARL
Skipverjarnir af Sigurvini GK eru báðir komnir heim. Heimir fékk að fara heim samdægurs en Svanur þurfti að bíða þar til í gær.
■ Bandaríkin
■ Útivist
VÉLSLEÐAMAÐUR FÓTBROTNAÐI
Björgunarsveitarmenn frá Laug-
arvatni og Grímsnesi sóttu
vélsleðamann sem fótbrotnaði við
Skjaldbreiði í gærkvöldi. Félagar
mannsins komu honum í fjalla-
skála og þangað sóttu björgunar-
sveitarmenn hann á áttunda tím-
anum. Búist var við að komið
væri til byggða um miðnætti.