Fréttablaðið - 25.01.2004, Qupperneq 14
14 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR
5,1%* – Peningabréf Landsbankans
www.landsbanki.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.12.2003–31.12.2003 á ársgrundvelli.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 560 6000.
DANSAÐ Í KAUPHÖLLINNI
Dansari í drekabúningi fremur listrænan
gjörning á gólfi kauphallarinnar í Manila á
Filippseyjum í tilefni þess að á fimmtudag-
inn var nýársdagur samkvæmt kínverska
tímatalinu.
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
á
su
nn
ud
eg
i
VIÐSKIPTI Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
9,4%
-2,9%
-3,3%
10%
8,8%
15
12
9
6
3
0
-3
Mesta
hækkun
(%)*
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
6
3
0
-3
-6
-9
-12
Mesta
lækkun
(%)*
Mesta velta
mán. þri. mið. fim. fös.
Parmaco hf.
Vátryggingarfélag Íslands hf.
Grandi hf.
Fyrirtæki Velta síðustu sjö daga
Íslandsbanki hf. 5.752 milljónir
Landsbanki Íslands hf. 2.168 milljónir
Eimskipafélag Íslands hf. 1.676 milljónir
Samherji hf.
Flugleiðir hf.
Straumur Fjárfestingabanki hf.
Höfuðstöðvar Pharmaco segjaekki sjálfar frá því að þær
hýsi verðmætasta fyrirtækið í
Kauphöll Íslands. Forstjórinn, Ró-
bert Wessman, er líka laus við allt
stærilæti. Tekur brosandi á móti
manni og býður upp á kaffi, ávexti
og Nóakonfekt. Sjálfur drekkur
hann te.
Róbert er 34 ára gamall, tveim-
ur árum yngri en stjórnarformað-
ur Pharmaco, Björgólfur Thor
Björgólfsson. Á skömmum tíma
hefur Róbert stýrt fyrirtækinu í
örum vexti og gert það að verð-
mætasta félaginu í Kauphöll Ís-
lands. Íslandsmetið er bara
áfangi. Nú stefnir Pharmaco að
skráningu í Kauphöllinni í
London. „Það er stórt skref fyrir
félagið,“ segir Róbert. „Þetta
verður mikil vinna, en er mjög
spennandi.“ Greiningardeildir
bankanna hafa bent á að skráning-
in muni gefa félaginu nýja ásýnd
sem alþjóðlegt félag. Slíkri skrán-
ingu fylgja kröfur og agi þróaðs
markaðar. „Það er gott veganesti
að hafa verið skráð félag á mark-
aði hér heima.“
Pharmaco hefur gert samning
við ABN AMRO Rothchild og
Merrill Lynch International, sem
munu sjá um skráninguna. Róbert
vill ekki tjá sig um skráningar-
ferlið og væntingar fyrirtækisins
til þess. Félag sem er í slíku ferli
lýtur ströngum skilyrðum um
upplýsingagjöf og fleira meðan á
skráningarferlinu stendur.
Sérfræðingar á markaði fylgjast
spenntir með hvernig takast muni
til við skráninguna. Bent hefur ver-
ið á að verð í útboði fari eftir því
hvað sérfræðingar á markaði telji
sanngjarnt mat á verðmæti fyrir-
tækisins miðað við framtíðarmögu-
leika þess. Glæsileg saga Pharmaco
mun hjálpa, en miklu skiptir einnig
hvernig tekst að koma framtíðar-
sýn Pharmaco til fjárfesta. Það er
ekki sjálfgefið að erlendir fjárfest-
ar meti fyrirtækið með sama hætti
og hlutabréfamarkaður á Íslandi.
Útboðsverðið muni verða sann-
gjarnt og eðlilegt miðað við mark-
aðinn í London.
Róbert segist vel skilja áhug-
ann á skráningunni. „Ég get ekki
tjáð mig um einstök atriði skrán-
ingar. Við lútum þeim reglum sem
eru um slíkt ferli.“
Sérfræðingar telja að eðlilegt
ferli slíkrar skráningar sé hálft
ár, en félagið hefur ekki gefið út
neinar dagsetningar. Verkefnið er
stórt, en hjá Pharmaco eru menn
vanir að takast á við stór verkefni.
Erfiðleikar í byrjun
Fáa hefði órað fyrir því að lítil
samheitalyfjafyrirtæki, Delta og
Pharmaco, myndu sameinuð stíga
þetta skref og ná þeirri stærð sem
raunin er á örfáum árum. Róbert
var ráðinn forstjóri lyfjafyrirtækis-
ins Delta um mitt ár 1999 eftir að
hafa unnið í sjö ár hjá Samskipum.
Stefnan sem Pharmaco hefur fylgt
til dagsins í dag var að miklu leyti
mótuð hjá Delta árið 1999. „Á þeim
tíma hafði Delta átt í ákveðnum
fjárhagserfiðleikum. Í framhaldi af
endurfjármögnun fór félagið á
markað. Ég hafði ekki horft neitt til
lyfjageirans, þegar var haft sam-
band við mig. Menn höfðu hug-
myndir um að taka til í rekstrinum.
Þá var verið að horfa mest á innan-
landsmarkað. Það sem mér fannst
spennandi – þó að það væru erfið-
leikar og meira að segja erfitt að
borga laun – var að félagið var mjög
sterkt í að þróa samheitalyf. Félag-
ið var að þróa tiltölulega fá lyf, en
hafði alla burði til að fjölga þeim
verkefnum.“
Það kostaði 150 milljónir að þróa
hvert samheitalyf. „Menn þurftu
því að leggja í miklar fjárfestingar.
Mér fannst það grunnurinn að
framtíðinni. Við höfðum þá sýn að
taka sjálfir yfir sölustarfsemina
sem var þá í höndum umboðsaðila.
Við vildum ekki vera ódýrt fyrir-
tæki, heldur fyrirtæki sem væri að
þróa mjög góð lyf og kæmi með þau
Íslandsmethafi
á leið til London
Undir stjórn Róberts Wessman, forstjóra Pharmaco, hafa gerst undur og stórmerki. Þau eru
sprottin af skýrri sýn og sterkum hópi sem hefur farið fyrir fyrirtækinu í ævintýralegum vexti og
útrás. Pharmaco hefur tekið yfir eða sameinast 13 fyrirtækjum á 36 mánuðum.
Við fáum oft slík til-
boð inn á borð til okkar á
undan öðrum því menn vita
að kaup á fyrirtækjum eru
hluti af starfsemi okkar og
vita að hverju við erum að
leita. Í hverri einustu viku
skoðum við eitthvert fyrir-
tæki.
,,
mán. þri. mið. fim. fös.
-3,5%
AF ÁVÖXTUNUM SKULUÐ ÞIÐ ÞEKKJA ÞÁ
Mikil bjartsýni ríkir á íslenskum markaði um framtíð Pharmaco. Róbert Wessman hefur stýrt fyrirtækinu á tímum mikillar stækkunar og útrásar.