Fréttablaðið - 25.01.2004, Page 16
16 25. janúar 2004 SUNNUDAGUR
■ Viðskipti
ATHAFNALÍF Á fimmtudaginn
stendur Félag viðskipta- og hag-
fræðinga fyrir „Íslenska þekk-
ingardeginum“ í fjórða sinn. Í
fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að í tilefni dagsins
verði staðið fyrir ráðstefnu um
stjórnun breytinga.
Á fundinum hafa meðal ann-
arra framsögu Guðfinna S.
Bjarnadóttir, rektor Háskólans
í Reykjavík, Róbert Wessman,
forstjóri Pharmaco, Gunnar
Páll Pálsson, formaður VR, og
Jón Scheving Thorsteinsson,
framkvæmdastjóri erlendra
fjárfestinga hjá Baugi.
Þá verður Jens Gammel-
gaard, lektor í alþjóðahagfræði
og stjórnun við Viðskiptahá-
skólann í Kaupmannahöfn, sér-
stakur gestur ráðstefnunnar.
Hann flytur erindi um hvernig
unnt sé að auka samkeppnis-
hæfni með yfirtöku á fyrirtækj-
um og fjallar um stjórnun
breytinga og þekkingar.
Við sama tækifæri verða
einnig veitt Íslensku þekkingar-
verðlaunin í fjórða sinn.
Tilnefnd að þessu sinni eru
fyrirtækin Baugur Group,
Flaga, KB banki og Pharmaco. Í
fyrra hlaut Íslandsbanki þessi
verðlaun en áður hafa Marel og
Íslensk erfðagreining hlotið
þau.
Í fyrra hlaut Valur Valsson,
fyrrum forstjóri Íslandsbanka,
verðlaun sem viðskiptafræðing-
ur ársins og verða þau verðlaun
afhent í annað sinn á fimmtu-
daginn.
Bæði verðlaunin eru veitt á
grundvelli tilnefninga frá félög-
um í Félagi viðskipta- og hag-
fræðinga og stjórnenda stærstu
fyrirtækja landsins en sérstök
dómnefnd tekur endanlega af-
stöðu til tilnefninganna. ■
DeCode nær vopnum á ný
Gengi DeCode hefur farið hækkandi. Bréf félagsins hækkuðu yfir 300 prósent í fyrra og hækkunin það sem af er þessu
ári er nálægt 30 prósentum. Margt bendir til þess að árið í ár verði félaginu sérlega mikilvægt. Fyrirtækið nýtur aðgerða
sem gripið var til þegar markaðurinn missti trú á líftækninni.
Félag viðskipta- og hagfræðinga:
Þekkingardagurinn haldinn í fjórða sinn
Fyrir utan handboltalandsliðiðhafa væntingar Íslendinga
hvergi risið hærra en til DeCode
genetics, móðurfélags Íslenskrar
erfðagreiningar. Þegar ljóst var
að stefnt yrði að skráningu bréfa
fyrirtækisins á Nasdaqmarkaðn-
um sáu margir fram á áhyggju-
laust ævikvöld þegar á unga aldri.
Þessi draumsýn varð að martröð
margra sem tóku áhættu langt
umfram þau almennu lögmál sem
hafa verður í huga við fjárfest-
ingu í hlutabréfum.
Í ljósi þess sem síðar gerðist
náði félagið á síðustu stundu að
skrá sig á markað og fjármagna
starfsemi sína. Gríðarlegar vænt-
ingar voru til skráningarinnar á
Nasdaqmarkaðnum. Gengi bréfa í
félaginu fór í 65 dollara á hlut á
gráamarkaðnum svokallaða. Við-
skipti á þessu gengi voru ekki
mikil, en þónokkur viðskipti voru
með bréf félagsins á genginu 45
til 55 dollarar á hlut. Gullæði
greip um sig og eitthvað var um
að menn tækju lán fyrir háar upp-
hæðir til kaupa á bréfum félags-
ins. Raddir sem bentu á áhættuna
af slíkri fjárfestingu voru kveðn-
ar niður jafnharðan. Útboðsgeng-
ið var ákveðið 18 dollarar. Það
voru mörgum sár vonbrigði.
Menn héldu í bjartsýnina. Félög í
hlutafjárútboði á Nasdaq höfðu
mörg hver hækkað um mörghund-
ruð prósent þegar viðskipti
hófust. Menn krossuðu fingur.
Gengi DeCode fór upp í tæpa 30
dollara á hlut og tók síðan að síga.
Það staldraði á tímabili í 9 til 10
dollurum og síðan hófst sársauka-
fullt ferðalag margra þar til geng-
ið náði lágmarki í rúmu 1,60 doll-
urum á hlut. Gárungarnir voru
farnir að biðja fólk um smágreiða
og buðu DeCode bréfin sín í stað-
inn. Öðrum var ekki hlátur í huga.
Langt í mikinn hagnað
Félag eins og DeCode vinnur
að verkefnum sem eru þess eðlis
að langur tími líður frá uppgötv-
unum þar til verulegar tekjur
koma inn. Félagið er með samn-
inga við nokkur stór og þekkt
lyfjafyrirtæki og fær áfanga-
greiðslur fyrir uppgötvanir sínar.
Verulegar tekjur koma ekki inn í
fyrirtækið nema sem hlutdeild í
lyfjum sem þróuð eru á grund-
velli uppgötvana fyrirtækisins.
Vegurinn frá uppgötvun vísinda-
manna DeCode þar til lyf er þróað
er bæði langur og óviss. Félagið
mun því þurfa fyrr eða síðar að
auka hlutafé.
Samkvæmt því sem fréttist
innan úr fyrirtækinu gekk vinnan
vel. Trú fjárfesta á líftæknifyrir-
tækjum fór hins vegar þverrandi.
Afleiðingarnar voru þær að
stjórnendum DeCode var í raun
nauðugur einn kostur. Að skera
niður kostnað í þeirri von að fé-
lagið myndi ráða yfir fjármunum
til þess að lifa af meðan líftækni-
markaðurinn væri lægð. „Krafa
markaðarins er að við náum jafn-
vægi í rekstri fyrr en áætlanir
okkar hafa gengið út á,“ er haft
eftir Kára Stefánssyni forstjóra
Íslenskrar erfðagreiningar í
fréttatilkynningu í septemberlok
2002. Fyrirtækið sagði upp 200 af
650 starfsmönnum sínum. Sam-
kvæmt yfirlýsingum félagsins
myndu uppsagnirnar ekki hafa
veruleg áhrif á framleiðni félags-
ins. Samkvæmt heimildum hafði
fyrirtækið lokið ákveðinni vinnu,
þannig að áframhaldandi þróun
var ekki jafn mannfrek. Eins og
gefur að skilja höfðu þessi tíðindi
neikvæð áhrif á andann í fyrir-
tækinu. Samkvæmt því sem nú
heyrist hafa menn jafnað sig og
hugur er í starfsmönnum fyrir-
tækisins.
Mikil hækkun í fyrra
Bréf félagsins hækkuðu mikið
í fyrra. Hækkunin nam 343 pró-
sentum á sama tíma hækkaði vísi-
tala líftæknifyrirtækja á Nasdaq
um 227%. Félagið var því methafi
félaga með starfsemi á Íslandi
ávöxtun á síðasta ári. Frá áramót-
um hafa hlutabréfin hækkað um
tæp 30%. Gengið hefur ekki verið
hærra síðan í desember 2001.
DeCode hefur hækkað umfram
vísitölu líftæknifyrirtækja, en fé-
lagið hafði einnig lækkað mun
meira en vísitalan þegar vantrú á
þessa atvinnugrein var ráðandi á
markaðnum. Sveiflurnar í gengi
líftækninnar eru gríðarlegar.
gengið er nú rúmir 11 dollarar og
markaðsvirði fyrirtækisins komið
yfir 40 milljarða króna. Það er því
aftur komið í hóp fimm verðmæt-
ustu almenningshlutafélaga á Ís-
landi.
Einar Þorsteinsson sérfræð-
ingur hjá Greiningu Íslandsbanka
segir erfitt að segir erfitt að gera
fulla grein fyrir ástæðu hækkandi
gegnis. „Að einhverju leyti er
skýringin í meiri bjartsýni á
markaði. Svo hefur einnig áhrif að
í rekstrartölum frá DeCode getur
að líta árangur af þeim aðgerðum
sem þeir fóru í.“
Fjárfestar fylgdust náið með
árangri af aðgerðunum. Kostnað-
ur fyrirtækisins hefur lækkað.
Þar við bætist að tilkynningar fé-
lagsins hafa aukið trú manna á
framtíð þess. Sérfræðingar Morg-
an Stanley fylgjast með Deode. Að
þeirra mati er árið í ár verði fyr-
irtækinu mikilvægt. Morgan
Stanley telur útlitið nokkuð gott.
„Þessi þróun er góð tíðindi fyrir
fyrirtækið,“ segir Már Wolfgang
Mixa sérfræðingur hjá SPH verð-
bréfum. „Á endanum er það rekst-
urinn og afkoman sem mun ráða
hvernig fyrirtækinu gengur.“
Þróun DeCode að undanförnu
gefur vonir um að fyrirtækið festi
sig í sessi og framtíð þess verði
björt. Sérfræðingar leggja hins
vegar áherslu á að félagið sé, hafi
verið og muni áfram verða mikil
áhættufjárfesting.
Ríkisstjórnin hefur fengið
heimild Alþingis til að veita
DeCode ríkisábyrgð vegna lyfja-
þróunarverksmiðju. Ríkisábyrgð-
in er upp á 200 milljónir dollara
eða um 14 milljarðar króna. Þegar
Alþingi veitti heimildina var doll-
arinn mun sterkari og ábyrgðin
metin á 20 milljarða. Eftirlits-
stofnun EFTA hefur heimild til
ríkisábyrgðar til athugunar og er
fremur búist við að stofnunin
heimili slíka ábyrgð. Málið var
umdeilt á alþingi, en líklegt að
heimildin verði veitt telji eftirlits-
stofnunin enga meinbugi á slíkri
áhrif.
Fjárfestar sem voru búnir að
pakka hlutabréfum sínum í
DeCode í skókassa og setja upp á
háaloft eru aftur farnir að kíkja á
bréfin. Hvort þau fara aftur í skó-
kassann eða í gylltan ramma upp
á vegg mun framtíðin skera úr
um. Útlitið er bjartara og árið í ár
mun ráða miklu um trú fjárfesta á
framtíð félagsins.
haflidi@frettabladid.is
UPP OG NIÐUR
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur mátt horfa upp á miklar sveiflur í verðmati fyrirtækisins á markaði. Útlitið nú er
bjartara en það hefur verið í langan tíma.
ÞUNG SPOR
Íslenskri erfðagreiningu var nauðugur sá kostur að segja upp 200 af 650 starfsmönnum
sínum. Niðurskurður kostnaðar er meðal þess sem á þátt í aukinni trú fjárfesta.
28,00
11,04
10,54
1,85
2000 2001 2002 2003
ÞRÓUN GENGIS HLUTABRÉFA Í DECODE
Á NASDAQ FRÁ SRKÁNINGU.
(VERÐ Í BANDARÍKJADÖLUM)