Fréttablaðið - 25.01.2004, Qupperneq 19
Nafn Hannesar Hafstein munverða mjög í umræðunni á
þessu ári því 100 ár eru liðin frá
því hann varð fyrsti ráðherra Ís-
lendinga. Hannes telst með höfuð-
skáldum þjóðarinnar. Svonefndar
Þerriblaðsvísur eru með
skemmtilegasta kveðskap hans en
þar stælir hann ljóðagerð helstu
skálda 19. aldar. Hannes gaf ekki
svör við því hvaða ljóðskáld hann
hafði í huga en ljóðelskir menn
hafa fundið svörin. Hér eru nokk-
ur sýnishorn af Þerriblaðsvísum.
I
Blaðið góða, heyr mín hljóð
hygg á fregnir kvæða mínar,
minna ljóða blessað blóð
blætt hefur gegnum æðar þínar.
II
Því var þerriblað
í þegna heimi
oft í eld hrakið
að entu starfi,
að það aldregi,
sem önnur blöð,
dugði til kamars
né kramarahúsa.
III
Þurrkutetur, þægðarblað,
þú, sem ástarklessur drekkur.
Ljúft þú unir þér við það,
þurrkutetur, gljúpa blað.
Hverfur þér að hjartastað
hver einn lítill pennaflekkur,
þurrkutetur, þægðarblað,
þú, sem ástarklessur drekkur.
IV
Hvar sem hnígur hortittur,
hlussum mígur ritvargur,
brátt upp sýgur blekdrekkur
bull, sem lýgur mannhundur.
V
Síðasti slagurinn, er hann sló -
slettist á blaðið klessa.
En með blaðinu þerri þó
þurrkaði ‘ann vætu þessa.
Rennvotar þerrar það rúnar.
VI
Á himinskýjum skáldsins andi flaug
sem skrýtinn bláfugl eða apótek,
og himinljósa leiftur í sig saug
líkt eins og þerripappír drekkur blek.
VII
Þerripappír þóknast mér,
því hann drekkur, eins og ég.
Blekaður því hann einatt er.
Allt er þetta’ á sama veg.
VIII
Pappír pettaði
penninn flughraði,
hljóp of hugstaði
hratt á blekvaði.
En í óðhlaði
ei varð stórskaði,
því ég þurrkaði
á þerriblaði.
IX
Það tekur svo ákaft en öfugt við
því orði’, er á pappírinn festist,
og erfi drekkur að íslenskum sið
þess alls, sem varð blautt og
klesstist.
X
Ég vildi óska’ að það ylti nú blek
í ærlegum straumi yfir blaðið
hjá mér,
svo ég gæti sýnt hve mín
framkvæmd er frek
og fádæma gott mitt þerriblað er.
XI
Það ber við tíðum hjá lenskum lýð,
að letragjörðin vill þorna síð.
Þerriblöð hafa því hlutverki að inna
ef höfð eru rétt, verja klessu’ og blett.
Og einatt úr huganum hugsjón
má detta,
ef hægt er ei blaðinu strax við
að fletta
og áfram skal halda og skrifa
í skyndi
þá skáldafjörið er best í lyndi.
Vor fátæka þjóð má við minna,
en missa hugsjónir skáldanna sinna.
XII
Frá Englum og Þjóðverjum
gæfan oss gaf
hin gagndræpu blöðin, sem þerra.
Það blek, sem þau leirburði
uppsugu af,
það er ekki smáræði, herra.
Sem Danskurinn útsýgur
íslenska þjóð
og andann þurrkar upp trúin,
sem ígla sýgur upp sjúks manns blóð,
svo sjúga þau. - Nú er ég búinn.
19SUNNUDAGUR 25. janúar 2004
pnar upp
verða 80 bílar á sérstöku tilboðsverði. Einnig mikið úrval af notuðum
vélsleðum. Sölumenn okkar eru í hátíðarskapi, nýttu þér það. Komdu í
fjörið, njóttu gæðanna og skoðaðu nýjungarnar. Komdu á
Nýbýlaveginn um helgina, - það verður bara skemmtilegt. Boðið er
upp á glæsilegar veitingar alla helgina. Opið laugardag kl. 12-16 og
sunnudag kl. 13-16. www.toyota.is
*
RX 300
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
Í fyrsta sinn í sjö árum fenguþýsku systurnar Corinna og
Nicola að eyða jólum með fjölskyldu
sinni. Stúlkurnar voru á sínum tíma
teknar frá foreldrum sínum, ekki
vegna þess að foreldrarnir hefðu
lagt hendur á þær eða verið afskipt-
ir foreldrar heldur vegna þess að
þeir voru taldir of heimskir til að
geta sinnt þeim.
Fyrir rúmu ári fyrirskipaði
mannréttindadómstólinn í Strass-
borg þýskum yfirvöldum að skila
börnunum til foreldra sinna en þeir-
ri fyrirskipun var ekki hlýtt fyrr en
í desember síðastliðnum. „Við erum
ekki fullkomin fjölskylda en við
erum góð fjölskylda,“ segir móðirin,
Annette Kutzner, sem er 35 ára göm-
ul. Í þau sjö ár sem fjölskyldan var
aðskilin fengu foreldrarnir einungis
að sjá börn sín einu sinni í mánuði
og þeir máttu ekki snerta þau, ekki
kyssa og ekki ræða tilfinningaleg
málefni.
„Þegar börnin voru tekin frá okk-
ur vissum við ekki hvað við ættum
að segja stelpunum svo við sögðum
þeim að þær væru að fara í frí og að
við vonuðum að þær kæmu aftur
heim innan viku,“ segir Annette. Níu
mánuðum seinna fengu foreldrarnir
að heimsækja börn sín í fyrsta sinn.
Það verður að viðurkennast að
Kutzner-fjölskyldan er sérvitur.
Hún býr í litlum bóndabæ ásamt
ömmu og afa, einum frænda, þrem-
ur páfagaukum, hundi og rúmlega
fjörutíu uppstoppuðum dýrum. Það
er afinn í fjölskyldunni sem hefur
ástríðu fyrir því að stoppa upp dýr.
Þegar ung kona, félagsráðgjafi,
heimsótti fjölskylduna blöskraði
henni og að sögn fjölskylduföðurins
Ingo Kutzner fékk hún samstundis
andúð á fjölskyldunni. Unga konan
hafði komið að beiðni Annette, sem
átti í erfiðleikum með að sjá um tvö
ung börn og veikan tengdaföður sem
þurfti að þvo og raka á hverjum
morgni. Það var félagsráðgjafinn
sem beitti sér fyrir því að börnin
yrðu tekin frá foreldrunum. Það
nægði yfirvöldum þó ekki því þau
skildu einnig systurnar að eftir ár. Í
skýrslu yfirvalda stóð að foreldrarn-
ir hefðu haft neikvæð áhrif á greind-
arþroska barna sinna og best væri
að skilja systurnar að því annars
myndi eldri systirin vera ráðandi í
samskiptum og hamla þroska þeirr-
ar yngri. Foreldarnir börðust fyrir
því að fá dætur sínar aftur, réðu sér
lögfræðing og sendu bréf til þýska
þingsins og kanslarans Gerhards
Schröder. Foreldrarnir töluðu fyrir
daufum eyrum þar til yfirmaður
samtaka sem berjast fyrir réttind-
um barna sendi málið til mannrétt-
indadómstólsins í Strassborg.
Kutzner-fjölskyldan vann málið.
Ingo Kutzner segir fjölskylduna
enn lifa í ótta um að börnin verði
tekin burt að nýju. Fyrir jólin báðu
stúlkurnar um að fá hjól í jólagjöf
því þannig gætu þær hjólað heim til
foreldra sinna ef þær yrðu aftur
teknar frá þeim. ■
Á sínum tíma orti Hannes Hafstein
vísur í orðastað nokkurra þjóðþekktra skálda:
Hver
orti hvað?
KUTZNER-FJÖLSKYLDAN
Eftir sjö ára aðskilnað er
fjölskyldan loks sameinuð.
Of heimsk til að
vera foreldrar
Svör:
ISigurður Breiðfjörð
II Bjarni Thorarensen
III Jónas Hallgrímsson
IVBólu-Hjálmar
VGrímur Thomsen
VIBenedikt Gröndal
VIIPáll Ólafsson
VIIIMatthías Jochumsson
IXSteingrímur Thorsteinsson
XHannes Hafstein
XIEinar Benediktsson
XIIÞorsteinn Erlingsson