Fréttablaðið - 25.01.2004, Page 28
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Dekurferð til Kenýa:
Fyrir hressar konur í ævintýraleit
Enn eru nokkur sæti laus í 16daga ævintýra- og dekurferð
fyrir konur um miðjan febrúar á
vegum Úrvals-Útsýnar. Förinni er
heitið til Kenýa í Afríku, á slóðir
hinnar dönsku Karenar Blixen.
Fararstjórar eru þær Elín Þor-
geirsdóttir og Linda Hilmarsdótt-
ir. Að sögn Elínar er um að ræða
frábæra ferð fyrir hressar konur í
upplifunar- og ævintýraleit.
Flakkað verður um Kenýa og
hefst sú ferð í höfuðborg landsins,
Nairobi. Síðan verður ferðast um
þjóðgarða, meðal annars Masaii
Mara, sem er sá frægasti í Kenýa.
Þar má finna flest þau dýr sem
við tengjum við Afríku; fíla, ljón,
flóðhesta, hlébarða og fleiri, og
gist á glæsilegum stað. Þarna lifir
hinn stolti Masaii-þjóðflokkur enn
við gamlar hefðir. Konurnar þar
verða heimsóttar og fylgst með
hvernig þær stýra búi en Masaii-
menn hafa oft nokkrar konur hver
og þær setja upp girðingu
kringum skýli sem þær smíða.
Innan hennar eru konur og kofar
hvers karls.
Í Carter Lake-garðinum er
ótrúlega fjölbreytt náttúra. Þar
verður gist í glæsilegum safarí-
tjöldum sem reist eru í skógar-
þykkni við vatnið.
Síðan verður farið að ströndum
Indlandshafs þar sem gist er með-
al annars í snyrtilegum makuti-
strákofum og hægt verður að
skoða þorp og kynnast lífi inn-
fæddra. Þarna eru frábærir veit-
ingastaðir með ferskt sjávarfang
og framandi krydd, að sögn Elín-
ar. Sjórinn er ylvolgur og hún seg-
ir tilvalið að stunda sjávaríþróttir,
fara í skútusiglingu eða bara
dorma á ströndinni. „Þetta er ný
tegund húsmæðraorlofs sem allar
konur dreymir um, upplifun, úti-
vera, skemmtun, hvíld og dekur.
Linda er heilsuræktarkennari og
mun hún bjóða upp á leikfimi sem
miðar að jafnvægi á líkama og sál
í hlýrri veðráttu og töfrandi
landslagi.“
Hópurinn takmarkast við 20
manns. Verðið er 279.600 krónur
og innifalið í því er allt flug, gist-
ing, aðgangur að þjóðgörðum, inn-
fæddir leiðsögumenn þegar þess
þarf og þrjár máltíðir á dag, flesta
dagana. Nánari upplýsingar má
finna á slóðinni www.afrika.is.
gun@frettabladid.is
■ Út í heim
GOLFFERÐ TIL DUBLIN Plúsferðir
bjóða golfferð til Dublin um pásk-
ana. Flogið er í leiguflugi með
Flugleiðum til Dublin og gist á
City West en akstur þangað tekur
um 40 mínútur. Spilað er golf á
Executive Course og Champions-
hip Course. Verð miðað við gist-
ingu í tveggja manna herbergi er
67.670. Innifalið er flug, flugvall-
arskattar, gisting á City West með
morgunverði, ferð til og frá flug-
velli erlendis, fjórir golfhringir
og íslensk fararstjórn. Verð fyrir
eins manns herbergi 80.630. Verð
án golfs er 51.670.
VERÐLISTAR 2004 KOMNIR Hjá
ferðaskrifstofunni Fylki eru sum-
arhúsaverðlistar 2004 komnir.
Hægt er að nálgast verðlistana á
Reykjavíkurvegi 27 í Hafnarfirði
(sími 555 2733) og Engjasmára 5 í
Kópavogi (sími 554 0298). Sömu-
leiðis er hægt að panta verðlista í
síma 456 3745.
Uppáhaldsstaður Ólafs Gunn-arssonar rithöfundar innan-
lands er Hólar í Hjaltadal. „Það
er sérstök og yndisleg stemning
sem þar er. Skagafjörðurinn og
Hólar er þar sem mér líður
einna best,“ segir Ólafur. „Ég
reyni að fara þangað á hverju
sumri og hef gert það undanfar-
in ár.“ Á Hólum leigir Ólafur
sumarbústað, borðar flatkökur
og rækjusalat og hefur það al-
mennt mjög náðugt.
Ólafur á sér líka uppáhalds-
stað í útlöndum sem er Róm.
Þangað hefur hann komið
nokkrum sinnum og þykir staður-
inn notalegur. „Fyrst þegar ég
kom þangað hafði ég þær hug-
myndir, og þá helst úr mafíu-
myndum, að Ítalir væru hálf
skelfilegir,“ segir hann. „Svo fer
ég einhvern tímann út að borða
með konunni minni á veitinga-
stað í Róm og átta mig á því þeg-
ar ég á að fara að borga að ég er
veskislaus. Það fór að fara um
mig og ég kallaði á yfirþjóninn og
bjóst við einhverjum hasar. En
hann sagði þá: „You’ve got a nice
face. Come again tomorrow, eat
again, pay then.“ Mér fannst
þetta voðalegt kompliment,“ seg-
ir hinn nýbakaði bókmenntaverð-
launahafi, sem slapp þar með
skrekkinn. ■
JÖRÐ Í AFRÍKU
Við heimili Karenar Blixen í Nairobi.
MEÐAL INNFÆDDRA
Ragna Sara Jónsdóttir er ein þeirra kvenna
sem hafa heimsótt Kenýa.
Uppáhaldsstaður Ólafs Gunnarssonar:
Yndisleg stemning á
Hólum í Hjaltadal
ÓLAFUR GUNNARSSON
Hólar í Hjaltadal og Róm eru
í mestu uppáhaldi.
Nýjung:
Þorraganga í
miðborginni
Með rísandi sól er sjálfsagt aðfagna þorra í miðborg
Reykjavíkur ekki síður en annars
staðar,“ segir
Birna Þórðar-
dóttir, sem
rekur fyrir-
tækið Menn-
i n g a r f y l g d
Birnu ehf.
Hún býður
upp á göngu-
ferð um
„ h e i ð n a “
hverfið, en
svo kallar hún
þær götur
sem nefndar
eru eftir Þór,
Óðni, Freyju „og allri þeirri fjöl-
skyldu,“ eins og hún orðar það.
Lagt er upp frá Skólavörðuholti
og spjallað um það sem fyrir augu
og eyru ber. Í göngulok er svo
boðið upp á þorramat.
Göngurnar eru tvisvar í viku,
föstudaga kl. 17.30 og laugardaga
kl. 17, og ferðin í heild tekur tvo
klukkutíma. „Það er upplagt fyrir
vinnustaðahópa, saumaklúbba,
vina- og vinkvennahópa, göngu-
hópa og menningarhópa að mæta í
þessar göngur og sameina hreyf-
ingu, menningu og mat,“ segir
Birna.
Verð ferðar er 4.500 kr. fyrir
manninn og panta þarf fyrir fram
í síma 862 8031. ■
BIRNA ÞÓRÐAR
Sameinar hreyfingu
menningu og mat.
FRÍTT TIL MADRIDAR? Í til-
efni opnunar á nýjum vef
Úrvals-Útsýnar hefur verið
ákveðið að allir þeir sem á
tímabilinu 13.-31. janúar
bóka sér ferð til Madridar
12.-15. mars eða 22.-25. apríl
fari í sérstakan pott sem
dregið verður úr 1. febrúar.
Sá/sú sem dregin(n) verður
og ferðafélagi munu fá ferð-
ina frítt.