Fréttablaðið - 02.02.2004, Page 1
BAGDAD, AP Bandaríkin hafa notað
sér upplýsingar, sem fengnar eru
frá yfirheyrslum yfir Saddam
Hussein, til þess að hafa hendur í
hári uppreisnarmanna í Írak.
Þetta fullyrðir háttsettur maður í
bandaríska hernum, sem þó vill
ekki láta nafns síns getið.
Yfirmenn í bandaríska hernum
telja að um það bil fjórtán hópar af
stuðningsmönnum Saddams séu
starfandi í höfuðborg Íraks, að því
er fyrrgreindur yfirmaður segir. Í
þessum hópum eru um það bil 250
til 300 manns í innsta kjarna.
Yfirmaðurinn segir að bæði
þau skjöl, sem fundust um leið og
Saddam var handtekinn, og upp-
lýsingar sem fengist hafa í yfir-
heyrslum, hafa gagnast banda-
rískum hermönnum við að trufla
starfsemi þessara uppreisnarhópa
og rekja fjármál þeirra. Hann
vildi þó ekki greina frá því hvaða
upplýsingar Saddam hafi gefið við
yfirheyrslurnar.
Bandarískir hermenn handtóku
Saddam 13. desember síðastliðinn.
Yfirmenn hersins hafa áður skýrt
frá því að skjöl, sem fundust við
handtökuna, hafi komið að gagni.
Þeir hafa hins vegar ekki fyrr en
nú fullyrt neitt um það, að yfir-
heyrslur yfir Saddam hafi leitt af
sér nothæfar upplýsingar.
Bandaríski herinn er með 26
bækistöðvar í Bagdad, höfuðborg
Íraks. Stefnt er að því að fækka
þeim niður í átta fyrir miðjan apr-
ílmánuð.
„Írakar eru ánægðir með ör-
yggið, þeir kunna að meta sam-
starfið, en ég held ekki að margir
þeirra vilji hafa okkur hérna
alltaf,“ sagði Mark Hertling, einn
yfirmanna bandaríska hersins þar
í borg. „Þeir vilja að eigin öryggis-
sveitir taki við.“
Um það bil 8000 íraskir lög-
reglumenn eru nú að störfum í
Bagdad, ásamt um það bil 6000
íröskum varnarliðsmönnum.
Bandaríski herinn telur að ekki
færri en 19.000 lögreglumenn
þurfi að vera að störfum í Bagdad.
Enn streyma erlendir stríðs-
menn til landsins, flestir koma þeir
í gegnum Sýrland. Í síðustu viku
týndu tveir Jemenbúar og einn Eg-
ypti lífinu í skotbardaga við banda-
ríska hermenn í Bagdad. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
MÁNUDAGUR
HEIMAFÆÐINGAR Félag áhugafólks
um heimafæðingar heldur fund klukkan
20 í Kvennagarði á 4. hæð í Kjörgarðs-
húsinu við Laugaveg 59. Verðandi foreldr-
ar eru sérstaklega boðnir velkomnir
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VAXANDI VINDUR Þykknar upp í
Reykjavík þegar líður á daginn og vindur fer
heldur vaxandi. Hvasst síðdegis á Vest-
fjörðum og norðvestan til á landinu annars
hægari. Hægt hlýnandi veður. Sjá síðu 6.
● fóð ráð ● rúður sem gráta
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Tekur skáldin
með í sófann
Anna Kristine Magnússon:
2. febrúar 2004 – 32. tölublað – 4. árgangur
● 39 ára í dag
Kjartan Guðjónsson:
▲
SÍÐA 16
Hittir
tannlækninn
● frumsýnd í febrúar
Þriðja nafnið:
▲
SÍÐA 30
Myndin sem
gleymdist
HÆTTA Á HEIMSFARALDRI Haraldur
Briem sóttvarnalæknir segir ástæðu til fylgj-
ast vel með þróun fuglaflensunnar. Ef veiran
breytist og fer að smitast frá manni til
manns er hætta á heimsfaraldri. Sjá síðu 2
HARMLEIKUR Í MINA Nærri 250
manns tróðust undir og týndu lífi við trúar-
lega athöfn í gær í bænum Mina, sem er
næsti bær við Mekka í Sádi-Arabíu. Álíka
margir særðust. Sjá síðu 2
FLUTT NAUÐUG TIL LÍBANON
Nítján ára stúlka var flutt nauðug til
Líbanon þar sem hún var látin giftast
manni. Henni var haldið í Líbanon í 28
daga og misnotuð kynferðislega. Sjá síðu 4
REYKJAVÍKURSAMKOMULAG For-
menn allra vinstri grænna flokka á Norður-
löndunum hafa með svokölluðu Reykjavík-
ursamkomulagi stofnað norrænt bandalag
flokkanna. Sjá síðu 10
HÁTÍÐARHÖLD Davíð Oddsson for-
sætisráðherra lagði blómsveig að
leiði Hannesar Hafstein í
Suðurgötukirkjugarði í gær í til-
efni þess að hundrað ár voru liðin
frá því að Íslendingar fengu
heimastjórn.
Fjölmargir afkomendur Hann-
esar Hafstein voru viðstaddir at-
höfnina í kirkjugarðinum og var
þeim boðið til kaffisamsætis á
Hótel Borg að henni lokinni.
Fyrr um daginn voru fyrstu
eintök nýrrar sögu Stjórnarráðs-
ins afhend forsætisráðherra. Rit-
stjóri verksins er Sumarliði Ís-
leifsson sagnfræðingur.
Í gærkvöldi var haldin hátíð í
Þjóðmenningarhúsinu þar sem
forsætisráðherra flutti ræðu um
stofnun heimastjórnarinnar og
Stjórnarráðs Íslands. Þar komu
einnig fram fjölmargir listamenn
og fluttu ljóð og tónlist í tilefni
dagsins. Dagskráin var sýnd beint
í ríkissjónvarpinu.
Í ræðu sinni gerði Davíð meðal
annars að umfjöllunarefni að
sumir stjórnmálamenn hefðu
þann ósið að tala um Ísland sem
örríki.
„Við erum að sönnu hvorki
mörg eða mikilvæg á heimsvísu,
en svona volæðistal er óþarft með
öllu og meðan aðrir tala ekki
svona til okkar getum við sleppt
því að gera það sjálf,“ sagði
Davíð.
Í Sjónvarpinu var einnig frum-
sýnd ný heimildarmynd um stofn-
un Stjórnarráðsins í gær.
Áfram verður haldið upp á ald-
arafmæli heimastjórnar meðal
annars með sýningum og ritgerð-
arsamkeppni framhaldsskóla-
nema þar sem þrír höfundar
hljóta eitt hundrað þúsund króna
peningaverðlaun. ■
Saddam Hussein
veitir upplýsingar
Yfirmaður í bandaríska hernum fullyrðir að Saddam Hussein hafi veitt gagnlegar upplýsingar í
yfirheyrslum. Með hjálp þeirra hefur tekist að trufla starfsemi stuðningsmanna Saddams.
Hátíðarhöld vegna hundrað ára afmælis heimastjórnarinnar:
Afmæli heimastjórnar fagnað
DAVÍÐ ODDSSON Í HÓLAVALLAKIRKJUGARÐI VIÐ SUÐURGÖTU
Forsætisráðherra lagði blómsveig að leiði fyrsta ráðherra Íslands, Hannesar Hafstein, og flutti stutt ávarp.
Fídel Kastró:
Sakar Bush
um samsæri
HAVANA, AP Fídel Kastró sakar Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseta um
að hafa lagt á ráðin með
kúbverskum flóttamönnum í Mi-
ami um að myrða sig.
Þetta kom fram í fimm og hálfs
klukkutíma ræðu Kastró á föstu-
daginn. Ásökunum Kastró fylgdi
enginn efnislegur rökstuðningur
en hann kvaðst mundu kjósa
dauða í orrustu ef Bandaríkja-
menn réðust á Kúbu.
Vitað er að stjórnvöld í Banda-
ríkjunum gerði tilraunir til þess að
myrða kommúnistaleiðtogann eftir
valdarán hans í byltingunni árið
1959. Árið 1976 voru sett lög í
Bandaríkjunum sem bönnuðu morð-
tilraunir á erlendum leiðtogum á
vegum bandarískra stjórnvalda. ■
Það besta
í bílnum
bílar o.fl.
Herbert Guðmundsson:
▲SÍÐUR 18–19
BANDARÍSKIR HERMENN Í BAGDAD
Bandaríski herinn hefur í nógu að snúast í
Írak, þrátt fyrir misjafnar vinsældir meðal
heimamanna.
● góð ráð ● fire cat
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M