Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 8
8 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR ■ Evrópa Hver hefði trúað því? „Það verður sérkennileg tilfinn- ing fyrir fyrir bæði þingmenn og óbreytta sjálfstæðismenn að sjá Davíð Oddsson ganga út úr stjórnarráðinu og afhenda lylka- na formanni Framsóknar. Hver hefði trúað því? Mig grunar því að Sjálfstæðisflokkurinn geri honum ekki alltaf lífið léttara.“ Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar- innar, í Fréttablaðinu 1. febrúar. Ráðríkur og góður stjórnandi „Heima er ég af mörgum talinn ráðríkur en hér hins vegar tal- inn góður stjórnandi.“ Guðjón Þórðarson, sem líður vel sem knatt- spyrnustjóra hjá Barnsley, í Morgunblaðinu 1. febrúar. Órólegur „Ég verð alltaf órólegur, þegar menn taka sér skáldanafn í munn um mig.“ Davíð Oddsson vill ekki samanburð við Hannes Hafstein sem skáld, í Morgunblaðinu 1. febrúar. Orðrétt FERÐAMANNAIÐNAÐUR Sveitarstjórn Bláskógabyggðar fer fram á leyfi til að lýsa upp Gullfoss að kvöld- lagi og telur mögulegt að hrinda þessu í framkvæmd strax næsta haust. „Ferðamenn eru farnir að koma hér allt árið um kring og koma oft að fossinum í myrkri. Við teljum nauðsynlegt að bjóða þann möguleika að koma hér í vetrarferðir og sjá fossinn í full- um ljóma,“ segir Ragnar Sær Ragnarsson sveitarstjóri. „Helsta gagnrýni sem komið hefur fram er sú að við töpum myrkrinu. En ég held að menn séu sammála um að lýsingin hafi engin áhrif á um- hverfið í sjálfu sér. Þetta eru aft- urkræfar breytingar, nokkrar leiðslur og kastarar í felum sem auðvelt yrði að taka aftur niður. Með bréfi til umhverfisráð- herra biðjum við hann formlega að koma að málinu, og vísa því í eðli- legan farveg. Við höfum fengið þær upplýsingar að þetta sé ekki mjög flókið í framkvæmd. En end- anleg kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir. Við erum kannski að tala um tvær til þrjár milljónir. Fossinn er þjóðargersemi og við sendum líka fjárlaganefnd erindi en teljum að við getum fengið einkaaðila til að fjármagna þetta að mestu leyti. Við höfum heyrt frá áhugasömum aðil- um í ferðaþjónustu og víðar sem myndu vilja koma að málinu.“ ■ NEYSLA Kolsýrt vatn sem engum sykri hefur verið bætt í ber vöru- gjald sem nemur átta krónum á hvern lítra. Þessi vara ber 24,5% virðisaukaskatt, meðan önnur matvara ber 14% skatt, meðal annars mjólkurvörur sem í er töluverður viðbættur sykur. Jón Diðrik Jónsson, forstjóri Ölgerðarinnar, sem framleiðir meðal annars Egils Kristal, kallar vörugjaldið sykurskatt. „Þetta heitir reyndar vörugjald í dag, en var lagt á sælgætisiðnaðinn á sín- um tíma sem sykurskattur,“ segir Jón Diðrik. „Þá var lítið um sykur- lausa gosdrykki og kolsýrt vatn og þetta hefur haldist síðan.“ Jón Diðrik segir drykkjar- mjólk með viðbættum sykri sleppa við sykurskattinn, en auk þess sé hún í lægra virðisauka- skattsþrepi. „Svo er ekkert pökk- unargjald á henni. Við sendum allt í endurvinnslu, en Mjólkursam- salan ekki.“ Endurvinnslugjaldið er níu krónur. Jón Diðrik segist ekki tals- maður neyslustýringar með sköttum. „Samsetning í mataræði er mjög mikilvæg og ég er fylgj- andi því að allar upplýsingar séu um innihald vörunnar. Ef hins vegar uppruni gjaldsins er holl- usta, þá er það farið að snúast upp í andhverfu sína ef sætar mjólkurvörur bera ekki slík gjöld meðan vatn sem á erindi, sér- staklega til ungs fólks, er skatt- lagt út úr kortinu. Við endurskoð- un þessa gjalds hljóta menn að skoða upphaflega ástæðu þess og jafna aðstöðu fólks, þannig að all- ir sitji við sama borð.“ Í nýlegri könnun manneldis- ráðs kemur í ljós að ungt fólk sækir stóran hluta orku sinnar í neyslu á viðbættum sykri. Til dæmis er um 20% af orkuneyslu drengja á aldrinum 15–19 ára fengin með viðbættum sykri. Anna Elísabet Ólafsdóttir, for- stjóri Lýðheilsustöðvar, segir að þessi umræða hafi ekki komið inn á sitt borð. „Við höfum verið að kynna niðurstöður sem sýna mikla sykurneyslu Íslendinga. Í framhaldinu þurfum við auðvitað að spyrja okkur hvernig verði brugðist við því.“ Hún segir að umræðan um sykurneyslu verði tekin upp hjá Manneldisráði. haflidi@frettabladid.is GULLFOSS „Við gætum unnið að því í sumar að koma lýsingunni fyrir. Kastararnir þurfa í sjálfu sér ekki að vera svo stórir en þeir þurfa að kasta geislunum beint að fossinum og flúðunum, þannig að þeir lýsi fyrst og fremst upp fossinn, ekki umhverfið.“ Mjódd - Sími 557 5900 NÚ LÍÐUR AÐ ÚTSÖLULOKUM Enn meiri verðlækkun – Kíkið við! Verið velkomar Vilja lýsa upp Gullfoss: Ferðamenn sjái foss- inn í fullum ljóma Sykurskattur sem er óháður sykri Kolsýrt vatn ber vörugjald eins og sælgæti. Sykraðar mjólkurvörur bera ekkert slíkt gjald og eru auk þess í lægra virðisaukaskattsþrepi. Sykur- skatt kalla gosdrykkjaframleiðendur vörugjaldið og vilja endurskoðun. HÁSKÓLAR Flestir ríkisháskólar fá ríflegar fjárveitingar samanborið við Viðskiptaháskólann á Bifröst eða Háskólann í Reykjavík, sagði Runólfur Ágústsson, rektor Við- skiptaháskólans, við útskrift BS- nema um helgina. Hann fer fram á að menntamálaráðherra beiti sér fyrir því að hrópandi aðstöðu- munur verði leiðréttur. Runólfur mótmælti þeim rök- um að aðstaða sjálfstæðra háskóla sé betri þar sem þeir fá bæði framlag frá ríki og taka skóla- gjöld. Í yfirliti um fjármögnun og rekstur háskóla vegna ársins 2001 komi fram að Háskóli Íslands fái 851 þúsund á nemanda í ríkis- framlag en Viðskiptaháskólinn 433 þúsund. Sjálfsaflatekjur Bif- rastar hafi verið 355 þúsund á nemanda en sambærilegar tekjur Háskóla Íslands 446 þúsund. Heildartekjur HÍ á nemanda hafi því verið 1.297 þúsund en Bifrast- ar 788 þúsund. Runólfur benti jafnframt á að samkvæmt fjárlög- um 2004 er 3,3 milljörðum varið til háskólarannsókna. Af því fái sjálfseignarstofnanir 35 milljónir. Hér sé breytinga þörf. ■ Viðskiptaháskólinn: Óþolandi aðstöðumunur RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst. SKATTLAGÐUR FRÍSKLEIKI Sykurlaust kolsýrt vatn ber vörugjald sem framleiðendur kalla sykurskatt. Vörugjald var lagt á gosdrykki áður en kolsýrt sykur- laust vatn náði almannahylli. NÓBELSVERÐLAUNAHAFAR TIL- NEFNDIR George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, og Evr- ópusambandið eru meðal þeirra sem tilnefnd hafa verið til friðar- verðlauna Nóbels þetta árið. Frestur til þess að skila inn til- nefningum rann út í gær. Norska nóbelsnefndin skýrir svo frá vali sínu í haust. MICROSOFT FÆR STÓRSEKTIR Mario Monti, samkeppnisstjóri Evrópusambandsins, hyggst sekta hugbúnaðarrisann Microsoft um 100 milljón evrur fyrir að misnota markaðsráðandi aðstöðu sína. Þessi fjárhæð samsvarar um það bil 8.600 milljónum króna og mun vera hærri sekt en áður hefur þekkst í sambærilegu máli. Þetta er fullyrt í þýska tímaritinu Focus.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.