Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 31
Tvær gerðir Mydoom-tölvu-vírusa dreifa sér nú hratt milli tölva í gegnum tölvupósta. Annars vegar er það Mydoom.A og hins vegar Mydoom.B. Þessir tölvuvírusar eru þannig hannaðir að reynt er að lokka viðtakendur til að opna viðhengi sem til þeirra eru send í tölvupósti. Þessi við- hengi hafa oft endingar sem eru kunnuglegar, svo sem .zip end- ingu. Þegar þetta viðhengi er opnað setur vírusinn upp forrit í notendakerfi viðtakandans og sendir afrit af sjálfum sér á alla þá aðila sem finnast í netfanga- skrá viðkomandi. Ekki er hægt að ganga út frá því tölva þess sem sendir tölvuorminn sé raunveru- legur sendandi, því ormurinn er þannig hannaður að hann velur einhvern úr netfangaskránni sem er til staðar og áframsendir póst undir því nafni. Ormurinn er ekki einungis hannaður til að senda fjölmarga tölvupósta til að ná sem bestri dreifingu heldur skilur hann eftir hugbúnað sem gerir höfundi ormsins kleift að brjótast inn í sýktar tölvur og fjarstýra þeim. Einnig er Mydoom.B talinn hannaður til að hindra aðgang að vefsíðum, eins og vefsíðum þeirra sem selja vírusvarnir. Besta leiðin til að koma í veg fyrir dreifingu tölvu- vírusa er að opna ekki óþekkt viðhengi, sem í þessu tilfelli eru oft send með titil tölvupósts eins og „hi“ eða „test“, jafnvel þó svo slík viðhengi komi frá sendanda sem fólk þekkir og treystir. ■ MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004 ÚTSALA Merkjavara og tískufatnaður á 50-70% afslætti og nú 50% AUKA AFSLÁTTUR við kassa + + + m e r k i f y r i r m i n n a + + + Faxafeni 10 - sími: 533 1710 O U T L E T 1 0 O U T L E T 1 0 Jakkaföt Dragtir frábær verð Gallabuxur Bolir Peysur Kápur Skyrtur Úlpur Skór Stígvél 990 500 990 3900 900 3900 990 1500 frá: frá: frá: frá: frá: frá: frá: frá: Gallabuxur Buxur Úlpur Peysur Strigaskór Skór Skyrtur Jakkaföt VÖRUR FRÁ VERSLUNUM: 990 990 3900 990 990 990 990 9990 frá: frá: frá: frá: frá: frá: frá: frá: Opið: Laugardag 11-17 Mán - fös 11-18 dömu dæmi: herra dæmi: FRÁBÆR KAUP Jogging-gallar 1.990 NÝ SENDING: Renndar FLÍSPEYSUR allar stærðir margir litir 1.990 kr. Stærðir á alla AUK A- Sent heim: SJÓFRYST ÝSA Roðlaus og beinlaus Hagfiskur Lyngási 12 - Garðabæ - S. 567 7033 www.hagfiskur.is Mydoom? MYDOOM-ORMURINN Ef vírussýkt fylgiskjal er opnað birtist notepad-gluggi og innihald skjalsins virðist bara vera bull. Þýska hljómsveitin Die Herrensérhæfir sig í því að leika lög með U2 sem er uppáhaldshljóm- sveit meðlimanna. Þeir hafa haft það sem aðalstarf síðastliðin 15 ár að ferðast um heiminn og spila U2 lög og eru nú væntanlegir til Ís- lands og munu spila á NASA næstu helgi. Íslenskir aðdáendur U2 ættu því að geta lyft sér á kreik og þó ekkert jafnist á við frummyndina þá gerast eftirhermurnar víst ekki betri en Die Herren. Söngv- ari sveitarinnar kallar sig Mono og gefur hinum eina sanna Bono lítið eftir ef marka má þá sem heyrt hafa til kauða. Sigurður Samúelsson, bassaleikari Írafárs, er einn þeirra en hann sá Die Her- ren á sviði í Kaupmannahöfn í vor. „Mér fannst þeir rosalega góðir. Bandið er þétt, söngvarinn syngur eins og Bono og umgjörðin er geð- veikt flott. Ég mæli með þessari grúppu.“ Idol-stjarnan Kalli Bjarni hitar upp fyrir þessa tignu þýsku gesti og mun án efa syngja nýja lagið sitt auk þess sem honum ætti ekki að vera skotaskuld úr því að bregða Bono-töktum fyrir sig en hann tók gamla U2-slagarann I Still Haven’t Found What I’m Looking For með miklum til- þrifum á sviðinu í Smáralind. ■ SIGURÐUR SAMÚELSSON Bassaleikari Írafárs mælir hiklaust með Die Herren sem kunna það upp á sína tíu fingur að stæla U2. U2 Eru ekki væntanlegir til landsins á næstunni en ákafir aðdáendur sveitarinnar geta huggað sig við það að þýska hljómsveitin Die Herren ætlar að spila U2 lög á NASA um helgina. Þeir eru næstum því jafn góðir og fyrirmyndin. Eftirhermur ÞÝSKA HLJÓMSVEITIN DIE HERREN ■ sérhæfir sig í því að herma eftir Bono og félögum í U2. Hún treður upp á Íslandi um næstu helgi og sjálfur Kalli Bjarni sér um að trylla lýðinn áður en þeir stíga á stokk. Mono stælir Bono ■ Hvað er...

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.