Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Peninga- lýðræði Það var mikill feill að kaupa sérekki banka þegar ríkið setti bank- ana á útsölu nú fyrir skemmstu. Bankabransinn virðist gefa af sér góðar tekjur, til dæmis halaði Ís- landsbanki inn eina fimm, sex millj- arða í hagnað á síðasta ári, og jafnvel í góðæri hljóta sex milljarðar að telj- ast hugguleg upphæð. Ef maður hefði asnast til að kaupa Landsbankann á 12 milljarða hefði maður hugsanlega getað látið hann borga sig upp á tveimur árum, og átt hann skuldlaus- an uppfrá því með málverkasafni og bréfaklemmum. BÚNAÐARBANKINN hefði líka verið fín fjárfesting, en maður lét þetta upplagða viðskiptatækifæri framhjá sér fara og getur nú nagað sig í handarbökin yfir tækifærum sem ekki munu önnur slík sjást í fjár- festingum á landinu bláa á næstunni, nema ef vera kynni að maður rækist á munaðarlausan sparisjóð. KANNSKI maður gæti dottið í lukkupottinn með því að bjóða ríkinu að kaupa af því Landspítalaháskóla- sjúkrahús og ráða svo til sín nokkra röska lækna og fáeinar hjúkkur og bjóða upp lækningar samkvæmt gjaldskrá. Gjaldskrána mætti miða við greiðslugetu hvers og eins; og sjúkrastofur væri hægt að innrétta eins og fyrsta, annað og þriðja far- rými á skemmtiferðaskipi. Tvíbreið vatnsrúm á fyrsta farrými, kojur á þriðja. KANNSKI ætti maður að kaupa Ríkisútvarpið og hafa Spaugstofuna á hverju kvöldi og moka inn áskriftar- gjöldum, og bjóða bara upp á æsileg- ar og spennandi fréttir í staðinn fyrir eitthvert niðurdrepandi raus. Eða Háskólann, þar gæti maður fækkað prófessorum og fjölgað nemendum, og lagt af dagpeninga fyrir rannsókn- arleyfi í útlöndum. Hugsanlega væri hægt að græða fáeinar krónur á því að einkavæða Alþingi og selja hæst- bjóðendum þingsæti og ráðherrastóla í samræmi við peningalýðræði frjáls- hyggjunnar; ein króna, eitt atkvæði. ÞÓTT þetta séu í sjálfu sér ágætar viðskiptahugmyndir er ekki því að neita að sjúkrahús, útvarpsstöðvar, skólar og Alþingi eru ekki jafnpott- þéttar peningamyllur og bankarnir. Og jafnvel þótt það gæti verið gróða- vænlegt að manna sig upp í að ræna banka er þó allrabest að eiga þá. www. .is Taktu þátt í spjallinu á ...

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.