Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 2
2 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR „Ekki ennþá.“ Haraldur Briem læknir er sérfræðingur í smitsjúk- dómum en nú hafa menn miklar áhyggjur af útbreiðslu svonefndrar fuglaflensu. Spurningdagsins Haraldur, er þetta slæmur faraldur Hætta á heimsfaraldri ef veiran breytir sér Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir ástæðu til fylgjast vel með þróun fuglaflensunnar. Ef veiran breytist og fer að smitast frá manni til manns er hætta á heimsfaraldri. FUGLAFLENSAN „Talið er að svín hafi verið milliliður í spænsku veik- inni. Því er verið að velta því upp hvort svín í Asíu séu að sýkjast eða ekki,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir um fuglaflens- una í Asíu. Haraldur segir að upphaf spænsku veikinnar árið 1918 hafi verið að svín hafi sýkst af fuglaflensu og í þeim hafi orðið breyting á veirunni sem gerði það að verkum að menn sem smitast fengu nýja veiru sem barst manna á milli. Hann segir að menn og svín séu með sína eigin infúlensu- veiru í sér og að hún geti bland- ast nýju fuglaflensuveirunni og úr því komið nýr inflúensustofn sem ekki eru til mótefni fyrir. Það gæti valdið því að nýr heimsfar- aldur færi af stað og sé hann eins skæður og fuglaflensan í Asíu er nú gæti það orðið mjög alvarlegt mál því um leið og flensan berst frá manni til manns er hættan mikil. Haraldur segir að margar fuglaflensur hafi komið og farið en þessi fuglaflensa sem nú geisi í Asíu sé svo útbreidd og svo marg- ir sem hugsanlega hafa komist í snertingu við hana að líkur á far- aldri eru meiri en oft áður. Því sé mun meiri ástæða nú að vera vak- andi og fylgjast með hvernig flen- sa þróast. „Við viljum ekki setja bann við ferðalögum til Asíu eins og staðan er í dag en ráðleggjum fólki að fara ekki á kjúklingabú eða dýramarkaði. Hins vegar ef þetta verður slæm inflúensa sem berst manna á milli gætum við beint þeim tilmælum til fólks að ferðast ekki til Asíu.“ Haraldur segir að nú á dögum höfum við betri möguleika til að bregðast við slæmum inflú- ensutilfellum en þegar spænska veikin breiddist út árið 1918. Aft- ur á móti geti tekið marga mánuði að þróa nýtt bóluefni. Þá þarf líka að taka inn í myndina hversu auð- velt sé að ferðast heimshorna á milli sem auðveldar alla út- breiðslu. hrs@frettabladid.is Ríkisráðsfundur án forseta: Í fyrsta sinn í yfir fjörtíu ár STJÓRNMÁL Haldinn var fundur í rík- isráði Íslands í gær án þátttöku Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Haft var eftir Davíð Oddssyni for- sætisráðherra í kvöldfréttum RÚV í gær að hann vissi ekki til þess að haldinn hafi verið fundur í ríkis- ráði í fjarveru forseta í um fjörtíu ár. Sigurður Líndal lagaprófessor segir að það hafi komið sér á óvart að forseti Íslands hafi ákveðið að vera fjarverandi á aldarafmæli heimastjórnarinnar en að sér sýn- ist að rétt hafi verið staðið að fund- inum. Að sögn Ólafs Davíðssonar, ráðuneytisstjóra í forsætisráðu- neytinu og ritara ríkissráðs, var vitað að Ólafur Ragnar Grímsson yrði staddur erlendis og því hafi ekki verið gert ráð fyrir þátttöku hans á fundinum. Á fundinum var samþykkt breytt auglýsing um starfsemi Stjórnar- ráðs Íslands en að sögn Ólafs hafði verið stefnt að því að samþykkja þær breytingar á hundrað ára afmæli Stjórnarráðsins en ekki hafi orðið ljóst hvort það tækist fyrr en skömmu fyrir helgi. „Forseti fór til útlanda fyrir nokkru síðan og það var tilkynnt að hann yrði fjarver- andi fram í febrúar,“ segir Ólafur. Stefán Lárus Stefánsson for- setaritari hafði ekki fengið upp- lýsingar um áætlaðan ríkisráðs- fund fyrr en hann frétti af honum í gær. ■ Eldfimt ástand: Leiðtogarnir skotmörk JERÚSALEM, AP Varnarmálaráðherra Ísraels sagði í gær að leggja þurfi áherslu á að ráðast á leiðtoga her- skárra íslamskra samtaka. Hótunin kemur í kjölfar ummæla andlegs leiðtoga Hamas-samtakanna, Sheik Ahmed Yassin, sem sagði að samtök- in muni leggja sig öll fram við að ræna ísraelskum hermönnum. Við þessar yfirlýsingar aukast enn líkurnar á frekari átökum á svæðinu. Í síðustu viku felldu Ísrael- ar átta Palestínumenn í skotbardaga í Gazaborg en Palestínumaður felldi ellefu manns í sjálfsmorðsárás í Jer- úsalem. Hamassamtökin lýstu sig ábyrg fyrir þeirri árás. ■ ANDERS FOGH RASMUSSEN Fór að dæmi fleiri vestrænna þjóðar- leiðtoga og skrapp til Íraks án þess að til- kynna um það fyrirfram. Forsætisráðherra Dana: Í heimsókn til Íraks KAUPMANNAHÖFN, AP Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, skaut óvænt upp kollinum í suðurhluta Íraks um helgina, þar sem danskir hermenn eru að störfum. Fogh Rasmussen hélt frá Dan- mörku á laugardaginn án þess að tilkynna um ferð sína. Hann kom til Íraks seint um kvöld og gisti í dönsku herbúðunum Eden. Í gær heimsótti hann síðan landa sína í borgunum Qurnah og Basra. Hann sagði heimsóknina hafa verið „athyglisverða reynslu“ og hrósaði dönsku hermönnunum fyrir að hjálpa til við að „koma hinu nýja Írak aftur á fæturna“. ■ Hornafjörður: Gengu út á sjó LÖGREGLAN Lögreglan á Höfn kall- aði út björgunarsveit Hornafjarð- ar vegna þriggja drengja á ung- lingsaldri sem gengið höfðu út á ís í Hornafirði og voru komnir um 300 metra frá landi. Drengirnir höfðu staðið í stað í nokkrar mínútur og ekki var vitað hvort þeir væru komnir í sjálf- heldu og ekki var hægt að ná sam- bandi við þá vegna fjarlægðarinn- ar. Björgunarsveitarmenn fór til drengjanna í þar til gerðum göll- um og fylgdi þeim í land meðfram eyjum í firðinum. Lögreglan á Hornarfirði vill beina þeim til- mælum til foreldra að brýna fyrir börnum að stórhættulegt sé að fara út á ísinn þó hann þykkur. Á köflum er ísinn þunnur og straumur er undir honum sem gerir það að verkum að sá sem dettur niður úr ísnum fer strax undir hann. ■ Patreksfjörður: Tekinn með kannabis FÍKNIEFNI Lögreglan á Patreksfirði fann átján grömm af kannabisefn- um í fórum manns sem var að koma frá Reykjavík. Hann gekkst við því að vera eigandi fíkniefnanna og telst mál- ið upplýst. Maðurinn sem er á fer- tugsaldri hefur ekki komið áður við sögu lögreglu vegna fíkniefna- mála. Hann má búast við sekt vegna málsins. ■ MINA, SÁDI-ARABÍU, AP Nærri 250 manns tróðust undir og týndu lífi við trúarlega athöfn í gær í bænum Mina, sem er næsti bær við Mekka í Sádi-Arabíu. Álíka margir særð- ust. Harmleikurinn varð þegar píla- grímaferðir múslima náðu há- marki með táknrænni athöfn, þar sem mannfjöldinn kastaði grjóti í steinsúlu. Með grjótkastinu er fólk- ið að „grýta djöfulinn“ með tákn- rænum hætti, og vilja margir heit- trúaðir gleyma sér í þessari tilfinn- ingaþrungnu athöfn þar sem þeir kasta grjóti af öllu afli, æpa ókvæðisorð og kasta jafnvel skó sínum í súluna til þess að sýna með ótvíræðum hætti fyrirlitningu sína á hinu illa í heiminum. Býsna algengt er að hættulegur troðningur verði í pílagrímaferð- um múslima til Mekka og Medína, og kostar troðningurinn ekki ósjaldan mannslíf. Stundum verða pólitísk eða trúarleg átök til þess að troðningur myndast, sem verður fjölda fólks að bana. Mannskæðasti harmleikurinn varð árið 1990 þeg- ar 1426 pílagrímar fórust í troðn- ingi í Mekka þegar hin táknræna „grýting djöfulsins“ átti sér stað. ■ HALLDÓR BLÖNDAL Í FORSÆTI Í fjarveru Ólafs Ragnars Grímssonar stjór- naði forseti Alþingis fundi ríkisráðs Íslands. MÚSLIMAR „GRÝTA DJÖFULINN“ Þessi táknræna athöfn á sér stað árlega í borginni Mina í Sádi-Arabíu. Í gær hófst jafn- framt fjögurra daga fórnarhátíð múslima, þar sem þeir minnast fórnar Abrahams þegar Guð leyfði honum að fórna hrúti í staðinn fyrir son sinn. Grunur um smit milli manna Alþjóðlega heilbrigðisstofn-unin, WHO, óttast að tvær víetnamskar systur, sem létust úr fuglaflensunni, gætu hafa smitast af bróður sínum. Ef rétt reynist, þá er þetta fyrsta tilvikið svo vitað sé þar sem veiran berst á milli manna. Enn hefur smitleiðin þó ekki verið staðfest. Fuglaflensan hefur valdið dauða milljóna hænsna í tíu Asíu- ríkjum. Hún hefur smitast til manna í að minnsta kosti tveim- ur þessara ríkja, og valdið dauða að minnsta kosti tíu manna. ■ FUGLAR SÓTTIR TIL SLÁTRUNAR Fuglaflensan hefur greinst í fiðurfénaði í Víetnam, Taílandi, Indónesíu, Kambódíu, Taívan, Japan, Suður-Kóreu, Pakistan, Laos og Kína. „ Við viljum ekki setja bann við ferðalögum til Asíu eins og staðan er í dag en ráð- leggjum fólki að fara ekki á kjúklingabú eða dýra- markaði. Harmleikur í helgri borg: 244 fórust í troðningi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.