Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 10
10 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL Kristin Halvorsen, for- maður Sósíalíska vinstri flokks- ins í Noregi, sat stofnfund nor- ræns bandalags vinstri grænna á Nordica-hóteli í gær. Flokkur hennar vann mikinn sigur í síð- ustu kosningum í Noregi og fékk um 13% atkvæða. Kristin segir fylgisaukninguna sýna að norsk- ir kjósendur séu reiðubúnir að styðja hreyfingu sem berst gegn hægri öflunum sem hafi verið við völd, en Sósíalíski vinstri flokkurinn hefur unnið mikið að velferðar- og menntamálum. Kristin telur að Noregur gangi ekki í Evrópusambandið á næstu árum. „Ég tel að Noregur eigi eftir að standa utan ESB í mörg ár og held að í því felist miklir mögu- leikar fyrir landið og það verði áhugi á að nýta betur þá mögu- leika í framtíðinni. Staða Íslands og Noregs er sérstök, meðal ann- ars vegna EES-samningsins. Að mínu mati hafa löndin mikla möguleika á að láta sameiginlega til sín taka á alþjóðavettvangi og leggja þannig áherslu á mál sem kunna ekki endilega að vera í takt við stefnu Evrópusambands- ins,“ segir Kristin. ■ Norrænir vinstri grænir héldusameiginlegan fund á Nor- dica- hóteli í gær, þar sem spjót- unum var meðal annars beint að Evrópumálunum. Með undirritun svokallaðs Reykjavíkursamkomu- lagsins stofnuðu formenn allra flokkanna norrænt flokksbanda- lag og samþykkt var pólitísk stefnuyfirlýsing sem samstarfið byggist á. Stofnun bandalagsins hefur lengi verið í undirbúningi, en Norðmenn hafa tekið að sér að gegna formennsku fyrsta starfs- árið. Steingrímur J. Sigfússon und- irritaði samkomulagi fyrir vinstri græna á Íslandi, Aulis Ruuth fyrir Vinstra bandalagið í Finnlandi, Ingrid Burman fyrir Vinstri flokkinn í Svíþjóð, Kristin Halvor- sen fyrir Sósíalíska vinstri flokk- inn í Noregi og Holger K. Nielsen fyrir Sósíalíska þjóðarflokkinn í Danmörku. „Markmiðið er að styrkja og formbinda margvíslegt samstarf flokkanna sem munu standa að sameiginlegum ráðstefnum og fundum. Með norrænu bandalagi gefst flokkunum tækifæri til að láta til sín taka í alþjóðlegu sam- starfi og skapa vettvang til að ræða sameiginleg áherslumál,“ sagði Ingrid Burman á blaða- mannafundi sem boðaður var vegna undirritunarinnar. Í pólitískri stefnuyfirlýsingu norrænu vinstri grænu flokkanna er lögð áhersla á hefðbundin vel- ferðarmál í anda þess besta að nor- rænni fyrirmynd. Megináhersla er á fólk og umhverfi þess og meðal helstu markmiða er að tryggja frið og stöðugleika á Norðurlöndunum, í Evrópu og heiminum öllum. Flokkarnir vilja ennfremur stuðla að frelsi og jafnrétti kynjanna og alþjóðasamstöðu. Þá telja þeir að styrkja og breyta verði skipulagi Sameinuðu þjóðanna þannig að ákvörðunartaka stofnunarinnar leiði til friðsamlegra lausna. „Flokkarnir eiga það sameigin- legt að vera á vinstri kantinum og leggja áherslu á umhverfismál og auk þess eiga Norðurlöndin sem slík margt sameiginlegt. Þetta tvennt gerir flokkunum ekki síst kleift að mynda norrænt bandalag. Það sem gerir samstarfið líka spennandi er það sem flokkarnir eru ósammála um, til dæmis af- staðan til Evrópusambandsins. Ég tel mikilvægt að skapa þennan grundvöll til að flokkarnir geti starfað saman,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs. Norrænir vinstri grænir stefna að því að funda saman að minnsta kosti einu sinni á ári og sérstök framkvæmdanefnd skipuleggur starfið. Sameiginlegar ráðstefnur verða fyrirhugaðar þar sem spennandi viðfangsefni verða tek- in fyrir. Í þremur af fimm Norður- löndum eru vinstri flokkarnir jafn- framt helstu umhverfisverndar- flokkarnir, á Íslandi, í Noregi og í Danmörku. „Í Svíþjóð og í Finnlandi er staðan svolítið önnur þar sem grænir flokkar umhverfisverndar- sinna eru jafnframt vinstri flokk- unum inni á þingi. Engu að síður eru bæði finnski og sænski flokk- urinn að leggja aukna áherslu á umhverfismál og því fögnum við auðvitað,“ segir Steingrímur. bryndis@frettabladid.is STOFNUN NORRÆNS BANDALAGS Formenn allra flokka vinstri grænna á Norðurlöndunum fögnuðu stofnun norræns bandalags á Nordica-hóteli í gær. Með bandalaginu er markmið flokkanna að láta til sín taka í alþjóðlegu samstarfi. VINNUVÉLADEILD RAUÐI KROSSINN Reykjanesbær tekur við umönnun og þjónust við hælisleitendur af Rauða kross- inum. Aðstoð við hælisleitendur: Spennandi verkefni FÉLAGSMÁL „Þetta er nokkuð sem við hlökkum til að taka við og er mjög spennandi verkefni til við- bótar þeirri félagsþjónustu sem við höfum fyrir í bænum,“ segir Hjördís Árnadóttir, félagsmála- stjóri í Reykjanesbæ. Sveitar- félagið er að taka við umönnun og þjónustu við hælisleitendur af Rauða krossinum. Upphaflega stóð til að Rauði krossinn léti af starfinu um ára- mót en Reykjanesbær fékk hann til að halda því áfram þar til starfsmaður hefði verið ráðinn sem heldur utan um starfið. Hann tekur við starfinu núna í byrjun febrúar og þá flyst verkefnið á Reyknesinga. ■ KRISTIN HALVORSEN Formaður Sósíalíska vinstri flokksins í Noregi segir að Ísland og Noregur geti sameiginlega látið til sín taka á alþjóða- vettvangi. Markmiðið að styrkja alþjóðlegt samstarf Formenn allra vinstri grænna flokka á Norðurlöndunum undirrituðu svokallað Reykjavíkursamkomulag um stofnun bandalags á Nordica-hóteli í gær. Umhverfisvernd, félagshyggja og alþjóðahyggja höfð að leiðarljósi. EITT ÁR FRÁ SLYSINU Minningarathöfn vegna þeirra sem fórust með Columbia-geimskutlunni 1. febrúar í fyrra var haldin á Kennedy-geimferða- stofnuninni í Flórída í gær. Formaður norska Sósíaslíska vinstri flokksins um Ísland og Noreg: Hafa mikla mögu- leika utan ESB STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Formaður vinstri grænna segir að það sem geri samstarfið spennandi sé ekki hvað síst það sem flokkarnir séu ósammála um, til dæmis afstaðan til ESB.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.