Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 11
11MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐIN KROPPUR
Samvinnufélag útgerðarmanna í Nes-
kaupstað færði bænum að gjöf þann
búnað sem er í líkamsræktarstöðinni.
Austurland:
Kroppurinn
vel sóttur
LÍKAMSRÆKT Frá því að líkams-
ræktarstöðin Kroppurinn var
opnuð í Neskaupstað 10. nóvem-
ber síðastliðinn eru um 4000 kom-
ur þangað. Að sögn Víglundar
Gunnarssonar sem sér um rekst-
ur stöðvarinnar eru 40–70 komur
á dag og er hann ánægður með að-
sóknina.
Það var Samvinnufélag útgerð-
armanna í Neskaupstað sem færði
bænum að gjöf þann búnað sem er
í líkamsræktarstöðinni. Gjöfin
var gefin í tilefni 60 ára afmælis
sundlaugarinnar í Neskaupstað og
er þessum tækjum ætlaður staður
í framtíðarhúsnæði sundlaugar-
innar sem byggt verður á næstu
árum.
Í gjafabréfinu segir að það sé
því von stjórnar SÚN að þessi
tæki muni skjóta enn fleiri stoð-
um undir starfsemi sundlaugar-
innar í framtíðinni og verða gest-
um hennar til gagns og ánægju.
Þetta er þriðja líkamsræktar-
stöðin sem rekin er í Neskaupstað
en sú eina sem starfar núna. Hin-
ar voru Kroppakjör og Nýung. ■
OFSAAKSTUR Nítján ára piltur
var tekinn á 160 kílómetra hraða
á Hafnarfjarðarvegi seint á
föstudagskvöld.
SNJÓFLÓÐ TAFÐI UMFERÐ Lítið
snjóflóð féll fyrir munna Stráka-
ganga Siglufjarðarmegin í fyrra-
dag og tafði umferð. Flóðið var
um metri á þykkt og um einn og
hálfur metri á breidd. Hríð og
frost var á Siglufirði.
ÞRÍR FLUTTIR Á SLYSADEILD
Árekstur tveggja bíla varð á
Vesturlandsvegi á veginum við
Grundartanga á laugardaginn.
Þrír voru fluttir á slysadeild.
STRANDAGLÓPAR Björgunarsveit
á höfuðborgarsvæðinu fór til að
sækja ungt fólk út í Akurey í
fyrradag eftir að gúmmíbátur
sem þau voru á bilaði. Ekkert
amaði að fólkinu sem gat látið
vita af sér í gegnum farsíma.
SJÁVARÚTVEGUR Landssamband
smábátaeigenda hefur í nokkurn
tíma barist gegn aukinni notkun
flottrolls við síldar- og kolmunna-
veiðar.
Í Fréttablaðinu á laugardaginn
lýsti Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur og einn helsti sérfræð-
ingur Hafrannsóknastofnunar,
efasemdum um veiðar á uppsjáv-
arfiski í flotvörpu. Landssamband
smábátaeiganda benti á vandann
á aðalfundi sínum fyrir rúmu ári
síðan.
„Það sjá allir sem þora að vera
heiðarlegir að þessi stóru troll
sem dregin eru heilu og hálfu sól-
arhringana, veiða ýmislegt annað
en síld og kolmunna,“ segir í
ályktuninni. „Það er undarlegt
meðan stjórnendur fiskveiða á Ís-
landi telja sig vera að byggja upp
fiskistofna, fái þessar veiðar að
viðgangast athugasemdalaust.
Allir þeir sem gætu breytt þessu
brjálæði, loka augunum og þykj-
ast ekkert vita. Þetta má ekki einu
sinni ræða. Fundurinn krefst þess
að allar flottrollsveiðar innan 50
mílna verði bannaðar þangað til
sannað verði opinberlega með
rökum að ekki séu árlega tugir
eða hundruð tonna af þorskseið-
um og fleiri tegundum fiska sett í
bræðslu eða dælt hökkuðu í sjó-
inn. Þetta þolir enga bið.“ ■
Heimskir strákar:
Ekki lengur
í boði
NEW YORK, AP Þrjár bandarískar
verslanakeðjur hafa neitað að
selja meira af bolum með áritun-
um á borð við „Strákar eru
heimskir - hendum steinum í þá“
og „Heimskuverksmiðjan - þar
sem strákar verða til“ eftir mikil
mótmæli. Bolir með áritununum
og teikningum hafa selst vel um
tveggja ára skeið en eftir að vin-
sæll þáttastjórnandi í útvarpi sá
þá og gerði að umræðuefni, hefur
mótmælunum rignt inn.
„Ef einhverjum finnst þetta
ekki fyndið þá geta þeir sleppt því
að kaupa bolina,“ segir hönnuður-
inn, Todd Goldman. ■
Landssamband smábátaeigenda hefur
áhyggjur af notkun flottrolla:
Segja stjórnvöld
með augun lokuð
VIÐ VEIÐAR
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur hefur lýst yfir efasemdum um notkun flotvörpu.
■ Lögreglufréttir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M