Fréttablaðið - 02.02.2004, Side 16

Fréttablaðið - 02.02.2004, Side 16
Ég byrja daginn á því að faratil tannlæknis,“ segir Kjartan Guðjónsson leikari sem er 39 ára í dag. „Þegar maður er orðinn svona gamall fara tennurnar að detta úr manni og því fer ég þessa dagana til tannlæknis á hverjum degi í massíva aðgerð.“ Síðar í dag segist hann ætla á æfingu í Þjóðleikhúsinu en hann er einn leikara í Þetta er allt að koma sem byggt er á samnefndri bók eftir Hallgrím Helgason. „Ég verð að læra texta fyrir leikhús- ið. Sem betur fer þurftum við ekki að búa til allt leikritið upp úr bókinni því það var alltaf til 140 blaðsíðna handrit sem við höfum verið að klippa til. Fyrst hélt ég að við þyrftum að spinna allt upp úr bókinni en sem betur fer var svo ekki. Það hefur verið tínt úr henni allt það fyndna og skemmtilega þannig að útkoman er fyndin.“ Leikritið verður frumsýnt þann 20. febrúar þan- nig að æfingar eru að komast á lokasprettinn og mikið er að gera í leikhúsinu. „Hvað ég geri annað í dag verður bara að koma í ljós, en yngri sonurinn er alltaf að spyrja hvenær ég eigi afmæli og hvenær hann fái að borða kök- una. Mögulega verð ég eitthvað að hugsa til þess. Annars vill ég horfa fram hjá því að ég eigi af- mæli. Það þýðir að aldurinn sé að færast yfir, tennurnar og hárið er að fara. Stundum vill maður bara leggjast í þunglyndi og spyrja af hverju varð ég ekki læknir eins og pabbi en það er sérstaklega þegar horft er í launaumslagið.“ Í stað þess að setja sér ára- mótaheit, segir Kjartan að hann hafi það fyrir sið að strengja af- mælisheit. „Í fyrra ætlaði ég að hætta að reykja en nú ætla ég að standa við það. Það er alltaf verið að taka feil á mér og Árna Pétur, bróður mínum sem er 14 árum eldri en ég. Hann lítur nú mjög vel út eftir aldri en þetta þýðir líka að ég fer í heilsuátak, fer að stunda líkamsrækt og svona.“ ■ 16 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR ■ Andlát ■ Afmæli Einn alræmdasti einræðisherraog harðstjóri í sögu síðustu ald- ar, Idi Amin, komst til valda í Úg- anda á þessum degi árið 1971 eftir að forseta landsins, Milton Obote, var steypt af stóli með valdaráni. Idi Amin stjórnaði landinu með járnhnefa og var ekkert að hafa fyrir því að klæða hann í silki- hanska og stjórnartíð hans er ein sú blóðugasta í átakanlegri sögu landsins. Hann myrti eða hrakti í útlegð alla þá sem efuðust um stjórn hans. Idi Amin er talinn hafa að minnsta kosti 400.000 mannslíf á samviskunni. Hrottalegar sögur eru til af því hvernig hann drap eða lét drepa þegna sína. Líkunum var síðar kastað í ána Níl, þar sem menn höfðu ekki undan að taka grafir. Eitt sinn var svo mörgum líkum kastað fyrir krókódílana í Níl að líkamsleifar stífluðu vatns- inntök raforkuversins í Jinja, stærsta vatnsorkuvers í Úganda. Árið 1976 útnefndi Amin sjálfan sig forseta landsins til æviloka en honum var hins vegar steypt af stóli árið 1979 og hrakinn úr landi. Hann fór fyrst til Líbýu, þaðan til Íraks en síðasta áratug dvaldi hann í Sádi Arabíu þar sem hann lést á sjúkrahúsi 16. ágúst árið 2003. ■ Sigurbjörn Bárðarson tamningamaður er 52 ára. Jón Axel Björnsson myndlistarmaður er 48 ára. Erlendur Jónsson, Hraunbæ 99, Reykja- vík, lést laugardaginn 10. janúar. Útförin hefur farið fram. Guðrún Laxdal Jóhannesdóttir, Hrafn- istu í Reykjavík, lést fimmtudaginn 29. janúar. Ísak Elías Jónsson tónlistarkennari, Bollebygd, Svíþjóð, lést fimmtudaginn 15. janúar. Bálför hefur farið fram. Jóhann Freyr Ásgeirsson, Kambaseli 64, Reykjavík, lést sunnudaginn 25. janúar. Sigmunda Kolbrún Guðmundsdóttir, Furugrund 44, Akranesi, lést sunnudag- inn 18. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Afmæli KJARTAN GUÐJÓNSSON ER 39 ÁRA ■ Er með afmælisheit í stað áramótaheita. CHRISTIE BRINKLEY Súpermódelið og fyrrum eiginkona söngv- arans Billy Joel er fimmtug í dag. 2. febrúar ■ Þetta gerðist 1999 Kviðdómur í Portland kemst að þeirri niðurstöðu að maður sem setti upp vefsíðu með nöfnum og heimilisföngum fóstureyð- ingamiðstöðva skuli greiða 107 milljónir dollara í skaðabætur. 1996 Leikarinn og dansarinn Gene Kelly deyr á heimili sínu í Beverly Hills 83 ára að aldri. 1995 Leiðtogar Egyptalands, Jórdaníu og Palestínu koma saman í Kaíró til að koma á friði í lönd- unum fyrir botni Miðjarðarhafs. 1990 F.W. de Klerk, forseti Suður-Afr- íku heitir því að láta pólitíska fangann Nelson Mandela lausan. 1943 Þýskar hersveitir gefast upp fyrir Rússum eftir orrustuna um Stalín- grad í seinni heimsstyrjöldinni. 1653 Borgin New Amsterdam sem heitir nú New York verður til. IDI AMIN Sagt er að hann hafi eitt sinn hrósað Hitler fyrir morðin á sex milljónum gyðinga, sagt þau réttmæt. Þá sagðist Amin til í að verða konungur Skotlands, ef leitað yrði eftir því. IDI AMIN ■ Þessi alræmdi harðstjóri komst til valda í Úganda. 2. febrúar 1971 Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. Síðasta útsöluvika 50% afsláttur af öllum vörum! 221 listamaður hefur sótt um að-stöðu í Klink og Bank listsmiðj- unni í Hampiðjuhúsinu í Skipholti. „Við erum mjög þakklát fyrir þann mikla áhuga sem starfsemin hefur fengið,“ segir Nína Magnús- dóttir í Gallerí Kling og Bang en hópurinn sem stendur að gallerí- inu sér um framkvæmd Klink og Bank verkefnisins með stuðningi Landsbankans. „Við auglýstum eftir áhuga- sömum listamönnum á mánudag- inn og umsóknunum hefur rignt inn þannig að nú bíður okkar að fara skilmerkilega yfir allar um- sóknirnar og svara fólki. Við erum tíu sem skoðum þetta og vonumst til að geta lokið því sem fyrst svo húsið geti farið að fyll- ast af lífi.“ Umsækjendur vinna á sviði myndlistar, tónlistar, leikhúss, hönnunar og fleira. Nína segir að þessi mikli áhugi sýni svo ekki verði um villst að sköpunarkraft- urinn í íslensku listafólki sé gríð- arlegur. „Þetta endurspeglar líka aðstöðuleysi listamanna og við vonum bara að þetta hafi fjölföld- unaráhrif og fleiri taki við sér og fylgi fordæmi Landsbankans. Það væri mjög skemmtilegt ef fyrir- tæki sæju sér hag í því að styðja við bakið á listamönnum í land- inu.“ Nína gerir ráð fyrir að úthlut- unarnefndin ljúki störfum í lok næstu viku en segir það nú þegar ljóst að ekki muni allir komast að þó það liggi ekki endanlega fyrir hversu marga listamenn Hamp- iðjan geti hýst. ■ ■ Jarðarfarir 13.30 Emilía Líf Jónsdóttir, Grænukinn 7, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.30 Guðmundur Óskar Guðmunds- son bifvélavirki, Austurbergi 28, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju. 13.30 Jóhanna Bárðardóttir frá Ísafirði verður jarðsungin frá Neskirkju. 13.30 Sverrir Ósmann Sigurðsson, Bárugötu 2, Dalvíkurbyggð, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju. 15.00 Ólöf Álfsdóttir, Háagerði 37, Reykjavík, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins í Reykjavík. Slátrarinn frá Afríku KJARTAN GUÐJÓNSSON Eftirminnilegasta afmælisgjöfin er þegar samnemendur hans í Leiklistarskólanum slógu sam- an í ritsafn Helga Hálfdánarsonar handa honum. Líklega fór stór hluti námslána þeirra í það. KLING OG BANG Hópurinn sem standur að galleríinu mun nota næstu viku til að fara yfir umsóknir lista- manna um að fá að komast að í Klink og Bank listsmiðjunni. Það er þó þegar ljóst að færri munu komast að en vilja. Allir vilja komast í klinkið List KLINK OG BANK ■ Verkefnið hefur vakið mikla athygli og á nokkrum dögum sóttu rúmlega 200 listamenn um að fá að vera með. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Á stefnumót við tannlækni FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.