Fréttablaðið - 02.02.2004, Side 17
17MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004
Grunnskólarnir sex við utan-verðan Eyjafjörð taka allir
virkan þátt í Olweusverkefninu
gegn einelti. Einn liðir í því starfi
var slagorðasamkeppni sem efnt
var til á meðal barna í skólunum
sex. Þrjár stúlkur hlutu viður-
kenningar fyrir slagorðin sín á
föstudaginn og fór athöfnin fram
á kaffihúsinu Sogni.
Ingibjörg Víkingsdóttir, sem
stundar nám við Dalvíkurskóla,
fékk viðurkenningu fyrir slagorðið
Allir saman, enginn einn, Svanhild-
ur Kristínardóttir, Grunnskólanum í
Hrísey, fyrir Einelti brýtur, vinátta
styrkir og Adda María Ólafsdóttir
fyrir slagorðið Einelti. NEI TAKK.
Slagorðin eru komin á barm-
merki sem dreift verður til allra
nemenda og starfsfólks grunn-
skólanna sex en markmiðið með
útgáfu merkjanna er að gera
verkefnið sýnilegt, bæði meðal
þátttakenda þess sem og þeirra
sem standa utan þess.
Félagasamtök við utanverðan
Eyjafjörð styrktu útgáfum barm-
merkjanna og allir sem leitað var til
í þeim tilgangi voru mjög jákvæðir
og áhugasamir um verkefnið. ■
JAMES JOYCE
Írski rithöfundurinn fæddist á þessum degi
árið 1882, fyrir 122 árum.
KÍL&LÓ?
FÆRRI
ER KOMINN TÍMI Á
Í góðum málum
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
1
1
2
1
9
/ sia
JOSEPH BEUYS
Einn þekktasti listamaður flúxushreyfingar-
innar á verk á sýningunni í
Listasafni Íslands.
Beuys
og félagar
Listasafn Íslands opnaði á föstu-daginn stærstu yfirlitssýningu
á flúxusverkum sem haldin hefur
verið hérlendis. Sýningin spannar
tímabilið 1962–1994 og er fengin
hingað til lands frá Stuttgart.
Margir af þekktustu lista-
mönnum flúxushreyfingarinnar
eiga verk á sýningunni eins og
Josef Beuys, Robert Filliou,
Emmett Williams og George
Brecht. Á sýningunni gefst ein-
stakt tækifæri til að kynnast
verkum þeirra listamanna sem
mörkuðu hve dýpst spor í lista-
sögu 20. aldar.
Verk eftir Dieter Roth eru
einnig á sýningunni og húmorísk
verk Wolf Vostell, þar sem hann
breytir hversdagslegum hlutum í
skúlptúra, sem hafa verið kallaðir
fagurfræðileg eyðilegging. ■
Þetta alls ekki vonlaus bransi efmaður er duglegur að koma sér
á framfæri. Þá gengur þetta ágæt-
lega þannig að þetta er allt undir
manni sjálfum komið,“ segir Krist-
ian Guttesen sem gaf út sína fimm-
tu ljóðabók, Ígull, fyrir skömmu.
„Þetta er þriðja frum-orta bókin, sú
fyrsta, Ljóðdrekar, kom út 1994,
Afturgöngur 1995, Annó - úrval
1999 og Skuggaljóð 1998, þannig að
ég er búinn að yrkja í 11 ár.“
En hvað kom til að ungur maður
lagði ljóðlist fyrir sig þegar það er
frekar í tísku að tjá sig í popptext-
um og með tónlist? „Mér fannst
ljóð hallærisleg þegar ég var í
menntaskóla og leiðinlegt að læra
þau í barnaskóla. Ég var á þessari
hljómsveitarlínu og gaf út lög með
hljómsveitinni Vitrun á safnplötum
í kringum 1994. Það koma bara eitt-
hvað yfir mig textalega og ég fór
að rýna í ljóð. Þau drógu mig til sín
og ég gaf alla tónlist upp á bátinn.
Mér finnst einfaldlega meira varið
í ljóðagerðina.“
Þegar Kristian er beðinn um að
nefna uppáhaldsljóðskáldin sín
teflir hann fram skrautlegum hópi.
„Sigurbjörg Þrastardóttir er rosa-
lega skemmtilegt skáld og svo eru
það Hrafn Jökulsson og John
Lennon.“
Ígull er fáanleg í stærstu bóka-
verslununum á höfuðborgarsvæð-
inu en Kristian selur mest á göt-
unni. „Það er það sem maður þarf
að gera ef maður vill vera lesinn.
Ljóðabækur seljast ekki mjög mik-
ið í bókabúðum og það er best að
gera þetta maður á mann. Það get-
ur verið mjög gaman að selja bæk-
ur á götunni þegar vel tekst til og
manni tekst að sannfæra einhvern
um að kaupa. Því fylgir mikil
vellíðan en að sama skapi er vont
að fá mikla höfnun þannig að þetta
er tvíeggjað. Aðalmálið er að hark
afa sér og halda sig við efnið. Það
gera það margir gott í götusöl-
unni,“ segir Kristian og nefnir El-
ísabetu Jökulsdóttur sem dæmi.
„Þetta snýst allt um markaðssetn-
ingu og höfundar verða að kunna
að markaðssetja sig. Ætli tíundi
hver maður sem ég tala við sé ekki
líklegur kaupandi þannig að til að
selja 100 bækur þarf ég að tala við
1000 manns.“ ■
KRISTIAN GUTTESEN
Honum gengur best að selja ljóðin sín á götunni en hefur einnig tekið nútímatækni í
þjónustu sína og bíður þeim sem panta Ígull á netfanginu deus@internet.is á sérstöku
tilboðsverði. Hann tekur þátt í skáldaspírukvöldi, ásamt Hallgrími Helgasyni og fleirum, á
Jóni Forseta, áður Vídalín, klukkan 21 á þriðjudagskvöld.
INGIBJÖRG, SVANHILDUR OG ADDA MARÍA
Stúlkurnar þrjár sem unnu til verðlauna fyrir slagorð gegn einelti með viðurkenningar
sínar og að sjálfsögðu búnar að setja barmmerkin upp.
Einelti
GRUNNSKÓLAR VIÐ
UTANVERÐAN EYJAFJÖRÐ
■ taka virkan þátt í verkefni gegn einelti
og efndu til slagorðasamkeppni meðal
nemenda sinna. Einelti. Nei takk!
Ljóð
KRISTIAN GUTTESEN
■ Sneri baki við tónlistinni fyrir nokkrum
árum og helgaði sig ljóðagerð. Hann sel-
ur ljóðin sín á götunni og gengur vel.
Allir saman, enginn einn
Þúsund samtöl
selja hundrað bækur