Fréttablaðið - 02.02.2004, Side 19
19MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004
Það besta í bílnum:
Góð sæti og þýður í akstri
VIÐ RÁÐHÚSIÐ
Blaðið er tileinkað Freelander-jeppanum
og Íslandi. Hér sést jeppinn fyrir utan
Ráðhús Reykjavíkur.
Nýjasta tölublað Land
Rover:
Tileinkað
Freelander
og Íslandi
Í nýjasta tölublaði Land Rover,sem er tileinkað nýjum
Freelander-jeppa, er íslenskt
landslag víða notað í bakgrunni.
Einnig er fjallað umtalsvert um
Ísland í blaðinu. Blaðinu er dreift
til 250 landa og er þetta því ákaf-
lega góð landkynning.
Á forsíðu blaðsins má sjá jepp-
ann fyrir utan Ráðhúsið í Reykja-
vík og í umfjöllum um miðborg-
ina sést jeppinn fyrir utan veit-
ingastaðinn 22. Einnig sést hon-
um bregða fyrir við Geysi í
Haukadal. ■
Bandarískir
bílaframleiðendur:
Ráða hetjur-
nar frá Írak
Bandarískir bílaframleiðendurog samtök bílasala ætla að
leggja sitt af mörkum til hjálpa
þeim hermönnum sem koma úr
herþjónustu í Írak að aðlagast
hefðbundu lífi með því að ráða þá
á bílaverkstæði sín.
Talið er að um þúsundir starfa
sé að ræða. Mikill skortur hefur
verið á starfskröftum á bílaverk-
stæði með þeim afleiðingum að
þeir sem þegar starfa í faginu
hafa hækkað gífurlega í launum.
Ráðningarátakið kallast „Hire the
Heros“, eða „Ráðið hetjurnar“. ■
ENGAR HENDUR
Nýr Toyota Prius með búnaði sem leggur
bílnum sjálfkrafa í stæði, kom nýverið á
markað í Japan. Hér sést starfsmaður
Toyota sleppa höndunum af stýrinu í þann
mund sem tölvan bakkar bílnum í
nærliggjandi stæði.
Herbert Guðmundsson, tónlist-armaður, íssali og bókasölu-
maður, ekur um á svörtum Benz
SE 220 sem hann keypti sér fyrir
tveimur árum.
„Það er eiginlega allt best í
honum,“ segir Herbert og hlær.
„Það var búinn að vera draumur
að eignast Benz og svo loksins lét
ég verða af því. Ég var búinn að
eiga Lödu og alla Toyota-familí-
una.“ Herberti finnst ákaflega
þægilegt að sitja í bílnum og nefn-
ir einnig hljóðeinangrunina sem
góðan kost. „Það besta við bílinn
er eiginlega hvað hann gerir vel
við mig úti á vegum. Sætin eru
góð og hann er þýður.“
Herbert segist vera áhugamað-
ur um bíla en ekkert sjúkur sem
slíkur. „Ég fylgist með og vil
meina að Benzinn sé bestur. Ég
stefni á að fá mér nýrri Benz í
framtíðinni, svolítið fullkominn,
svartan og með góðum græjum.“
Herbert starfar um þessar
mundir sem sölu- og markaðs-
stjóri fyrir Vegahandbókina og er
búinn að keyra um allt land síðan
í september til að kynna bókina.
Hefur bíllinn því komið að mjög
góðum notum á löngu og ströngu
ferðalaginu. „Þú lifir ekki á ísnum
á veturna. Ég er búinn að sjá um
ensku og íslensku Vegahandbók-
ina í nokkur ár. Þetta er rosa-
hringur því ég þarf að þræða allt
landið. Núna á ég Suðurnesin og
Vestmannaeyjar eftir og svo
Reykjavík, Kópavog og Hafnar-
fjörð,“ segir Herbert. „Þetta er
gefandi starf. Ég var í bókasölu í
gamla daga og þetta er framhald
af því. Maður þekkir annan hvorn
kjaft á landinu. Þetta er orðið
voða mikið svona persónuleg sam-
bönd,“ segir hann að lokum og
brunar af stað. ■
HERBERT
Bíllinn gerir vel við Herbert úti á vegum
enda nauðsynlegt fyrir mann í hans starfi.