Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 30
Hrósið 30 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
Það má nálgast nánast allt semhugurinn girnist á upp-
boðsvefnum www.ebay.com en
hann komst meðal annars í heims-
fréttir þegar nýra úr manni var
boðið þar til sölu. Nú virðist nokk-
urs konar íslenskur flóamarkaður
hafa myndast á vefnum og varn-
ingurinn sem þar er í boði er öllu
saklausari.
Þannig má til dæmis kaupa
lýsistöflur fyrir 20 dollara, Bar-
bie dúkku í íslenskum þjóðbún-
ingi fyrir 50 dollara en það fylgir
sögunni að þessi barbie-dúkka sé
afkomandi víkinga og það megi
sjá merki þess á klæðnaði henn-
ar. Þá er ekki minni fengur í ís-
lenskri þýðingu bókarinnar Mr
Murder, eða Slátrarinn, eftir
Dean Koontz. Bókin kom út hjá
Skjaldborg árið 1994 og þetta til-
tekna eintak er áritað af höfundi.
Bók Jónasar Þórs um landnám Ís-
lendinga í Vesturheimi fæst
keypt á 16 dollara og hljómplatan
Jack Magnet með Jakob Magnús-
syni er seld á 3,20 pund í góðu
ásigkomulagi.
Íslenska ullin er áberandi í
vöruúrvalinu en þarna fást ullar-
sokkar fyrir 14 dollara, skandin-
avísk herrapeysa frá hinu heillum
horfna Sambandi, vissulega safn-
gripur fyrir þá sem sakna gamla
SÍS. Hetjuljómi víkingana er væn-
legur til markaðssetningar eins
og sést svo best á Icelandic True
Viking rakspíranum sem er seld-
ur í eftirlíkingu af drykkjar-
horni. ■
Uppboð
ÚRVAL ÍSLENSKS VARNINGS
■ á uppboðsvefnum eBay er fjöl-
skrúðugt og gefur skemmtilega mynd af
þeim magnaða suðupotti sem íslensk
menning er.
... fær Sophia Hansen fyrir að
gefast aldrei upp.
ÍSLENSKAR KONUR
Í ferðaauglýsingu frá 1906. Það er varla
hægt að segja að þessi auglýsing um
siglingar á milli landa gefi forsmekkinn
af seinni tíma auglýsingum Flugleiða en
hún er engu að síður skemmtileg og
fæst keypt á fjóra dollara.
Veljum íslenskt á Netinu
í dag
Allt um
Survivor
All-Stars
Viggo og
Baltasar í
Hollywood
Arnold aflífar
í fyrsta sinn
Það er nú svo langt síðan að églék í myndinni að ég var eigin-
lega búinn að gleyma henni,“ seg-
ir Þröstur Leó Gunnarsson leikari
um spennumyndina Third name,
eða Þriðja nafnið, eftir Einar Þór
Gunnlaugsson en hún verður
frumsýnd í Laugarásbíói þann 13.
febrúar.
Þriðja nafnið fjallar um ungan
erlendan ofurhuga sem tekur upp
á því að stela skipi á Íslandi. Hann
tekur einnig áhöfn og farþega
sem gísla. Maðurinn heimtar að fá
að tala við fyrrverandi kærustu
sína. Þegar lögreglan hefur sam-
band við stúlkuna segist hún
aldrei hafa heyrt hans getið.
„Það eru tvö ár síðan við tókum
þetta en ég man að ég lék húsvörð
í félagsheimili sem lögreglan not-
ar fyrir samskiptamiðstöð og er í
sambandi við mannræningjann
þaðan,“ segir Þröstur Leó. „Hjalti
Rögnvaldsson lék í flestum atrið-
unum með mér og við vorum hálf-
gert teymi í myndinni. Elma Lísa
Gunnarsdóttir lék kærustu
mannsins.“
Á heimasíðu myndarinnar
www.thirdname.com kemur fram
að myndin er gerð eftir svokölluð-
um deltareglum sem eru sniðnar
að stafrænni kvikmyndagerð. Er
myndin þá í einhvers konar
dogmastíl?
„Ég veit það ekki alveg,“ segir
Þröstur Leó, „ég hef ekki séð hana
og veit ekkert hvernig þetta kem-
ur út. Hún var gerð fyrir lítinn
pening og ég var hálfpartinn bú-
inn að afskrifa hana.“
Deltareglurnar kveða á um að
aðalatburðarásin megi aðeins eiga
sér stað á tveimur tökustöðum en
sú krafa á að reyna á handritshöf-
unda og skila sér einnig í lægri
framleiðslukostnaði. Þá mega tök-
ur aðeins standa yfir í fjórar vik-
ur og höfuðáherslan er því lögð á
undirbúning og æfingar.
Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Moses Rockman, Hjalti Rögn-
valdsson, Glenn Conroy, Þröstur
Leó Gunnarsson og Guðfinna
Rúnarsdóttir fara með helstu
hlutverk í myndinni en ein delta-
krafan krefst þess að í það
minnsta tvö tungumál séu töluð í
myndinni meðal annars til þess að
auka á fjölbreytnina.
Þriðja nafnið var tekin á
Íslandi síðla árs 2001 og eftir-
vinnsla fór fram á Íslandi og í
Rússlandi árið 2002 en það er
fyrst núna sem hún fer í almennar
sýningar hérlendis en fjárskortur
hefur væntanlega ráðið mestu um
tafirnar en Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að ekki hafi
enn verið gert upp við alla þá sem
komu að gerð myndarinnar. ■
Myndin sem
gleymdist frumsýnd
HJALTI RÖGNVALDSSON
Er einn þeirra íslensku leikara sem koma fram í Þriðja nafninu. Spennumynd sem fjallar
um mann sem rænir skipi frá afskekktu sjávarþorpi og krefst þess að fá að tala við fyrrum
kærustu sína.
Ef við höldum svona áfram getum við bráðum
fengið vinnu sem útkastarar!
Við þurfum þá að redda okkur
einhverjum kúl götunöfnum!
Ég held að mitt verði Fituklumpur...
Rocky Fréttiraf fólki
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
RÚV.
Brynjólfur Bjarnason.
Tinni.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt:
1 borð, 6 upphaf, 7 lík, 8 ármynni, 9
elskar, 10 kasta upp, 12 rödd, 14 hnoðri,
15 þegar, 16 rothögg, 17 vætu, 18 beinir
að.
Lóðrétt: 1 vel heima, 2 hellti úr sér, 3
bardagi, 4 ástúðleg, 5 stuldur, 9 fæða, 11
afkimi, 13 kögur, 14 sjáðu til, 17 rykkorn.
Lausn:
Lárétt: 1fjalir, 6rót,7ná,8ós,9ann,10
æti,12alt,14ský,15er, 16ko,17aga,
18otar.
Lóðrétt: 1fróð,2jós,3at,4innileg,5
rán,9ala,11skot,13traf, 14sko,17ar.
Það hefur að vonum vakiðnokkra athygli að Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, skuli vera
fjarverandi þeg-
ar 100 ára
afmæli heim-
stjórnar á Ís-
landi er fagnað.
Björn Bjarnason
dómsmálaráð-
herra segist á
vefsíðu sinni hafa orðið var við
það að fjölmiðlamenn hafi þótt
þessi fjarvera sæta tíðindum.
Ráðherrann tekur undir það í
þessu felist vissulega ákveðin
tíðindi þegar
„litið er til
sögu ríkisráðs-
ins og stjórnar-
ráðsins“ en
bendir jafn-
framt á að
þetta sé ekki
einsdæmi.
„Sagan geymir
ýmis dæmi um að handhafar for-
setavalds sitji ríkisráðsfundi. Í
stjórnarráðssögunni, sem út
kemur í dag, er til dæmis mynd
frá því fyrir um það bil 40 árum,
sem sýnir ríkisráðið undir for-
sæti Birgis Finnssonar, þáver-
andi forseta sameinaðs alþingis,
en honum til vinstri handar situr
Þórður Eyjólfsson, forseti hæsta-
réttar, og Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra á hægri hönd
Birgis.“ Björn treystir sér ekki
til að fullyrða að þetta hafi ekki
gerst aftur fyrr en nú en telur
það þó líklegt.
Þriðja nafnið
EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON
■ tók þessa spennumynd upp á Íslandi
árið 2001. Hún ratar nú loks í
kvikmyndahús í Reykjavík.