Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 10
10 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
BÓKABRENNA
Úkraínskir rithöfundar brenndu bækur sín-
ar á báli fyrir framan stjórnarráðið í Kiev til
að mótmæla aukinni skattlagningu á
bókaútgáfu.
Tryggingastofnun ríkisins:
Lítil viðbrögð við
endurgreiðslum
TRYGGINGAMÁL Lítil viðbrögð hafa
verið við endurgreiðslum Trygg-
ingastofnunar ríkisins á útlögðum
kostnaði við læknisverk, meðan á
deilu sérfræðilækna og heilbrigð-
isyfirvalda stóð, að sögn Guðrún-
ar Jónsdóttir, upplýsingafulltrúa
hjá TR. Endurgreiðslurnar hófust
í fyrradag.
„Þetta getur verið að koma inn
allt árið, þannig að útilokað er að
gera sér grein fyrir hversu marg-
ir munu sækja endurgreiðslur,“
sagði hún. „Við finnum ekki fyrir
þessu núna, því það eru mánaða-
mót. Þetta er ekki að setja neitt úr
skorðum hér.“
Samkvæmt ákvörðun heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
Jóns Kristjánssonar, fær fólk,
sem hefur greitt læknisverk fullu
verði, 2/3 hluta endurgreidda um-
fram 18.000 krónur sem er há-
marksgreiðsla til afsláttar-
skírteinis. Gildir það sama um
alla þá sem borguðu fullt verð fyr-
ir þjónustu sérfræðilækna frá og
með 1. janúar til 13. janúar 2004.
„Þessar reglur taka jafnt til
allra landsmanna,“ sagði
Guðrún.
Til endurgreiðslnanna ætlar
heilbrigðisráðuneytið 6–7 milljón-
ir króna. ■
Lottósvikarar
herja á Ísland
Lottó- og happdrættissvindl eru algeng. Tilkynningar um háar vinningsupphæðir
berast fólki frá útlöndum. Lögreglan telur ástæðu til að vara fólk við.
SVINDL „Þetta er maskína sem
rekin er af mörgum misjöfnum
mönnum víða um lönd, Þúsundir
bréfa eru send út og þarf ekki
nema eitt hundrað manns til að
glepjast svo gróðafyrirtæki séu
farin að skila sér,“ segir Jón H.
Snorrason hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra um
lottó- og happdrættissvindl sem
mikið hefur borið á að undan-
förnu. Eitt ný-
legt dæmið er
póstur sem
sendur er í
nafni fyrirtæk-
isins WLC í
Hollandi.
Í bréfi sem
fólk fær í pósti
er sagt að við-
takandi hafi
unnið 50.000
dollara og seg-
ist fram-
kvæmdastjór-
inn undrandi
yfir að vinn-
ingshafinn hafi
ekki vitjað
vinningsins. Er
gefið í skyn að fyrra bréfið hljóti
að hafa týnst í pósti. Vinnings-
hafa er gefinn kostur á að senda
meðfylgjandi svarbréf innan sól-
arhrings með ítarlegum upplýs-
ingum, meðal annars greiðslu-
kortanúmeri. Til að fá vinninginn
verður sendandinn að taka þátt í
þýska lottóinu 6/49 sem fram fer
laugardaga og miðvikudaga í
hverri viku. Þrír kostir eru í boði
og felst mismunurinn hversu
margar raðir eru keyptar. Verðið
er misjafnt, hæst á rúmar 1.500
krónur íslenskar.
Jón segir ástæðu til að vara við
þessu svindli. Mikið sé lagt í allar
umbúðir í þeim tilgangi að skapa
trúverðugleika. „Við heyrum í
fólki af og til sem hefur látið glep-
jast. Þá eru dæmi þess að fólki sé
boðið til kaups valíum og viagra.
Við getum ekki beitt okkur gegn
þessum brotamönnum nema vara
við þessu.“
Jón segir aðgengi erlendra að-
ila að upplýsingum um einstak-
linga hér á landi auðvelt. „Síma-
skrá og netfangalistum er dreift
af ýmsum ástæðum. Þá eru dæmi
um að menn selji slíkar upplýs-
ingar. Það er í sjálfu sér ekki
refsivert en þá sem selja upplýs-
ingarnar getur í sumum tilfellum
rennt í grun að þær lendi í hönd-
um misjafnra manna.“
Jón segir mjög algengt að fólk
hér á landi fái fregnir um lottó-
vinninga á Spáni. „Íslendingar
ferðast mikið til Spánar og sumir
jafnvel keypt lottómiða. Af því
telur fólk ekki ólíklegt að hafa
unnið og vill gjarnan halda
áfram.“
kolbrun@frettabladid.is
„Það er í
sjálfu sér ekki
refsivert en
þá sem selja
upplýsingarn-
ar getur í
sumum tilfell-
um rennt í
grun að þær
lendi í hönd-
um misjafnra
manna.
Lærið gundvallaratriðin í þessu vinsæla
teikniforriti.
N Á M S K E I Ð
F R A M U N D A N
AutoCad
– grunnnámskeið
Gerð PDF-skjala fyrir hina ýmsu miðla:
Netið, rafbækur, laserprentara o.m.fl.
Acrobat (PDF)
– grunnnámskeið
Viltu læra að taka upp vídeó, klippa
og hljóðsetja fyrir kennslu eða vefinn?
Nánari upplýsingar á vefnum:
http://namskeid.ir.is
og í síma 522 6500
Stafræn
myndvinnsla,
t.d. fyrir kennara
Fullt af
skemmtilegum
námskeiðum
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Skólavörðuholti • 101 Reykjavík
Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is
GÚSTA
Árni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í SPRON:
Vill hætta við breyt-
ingu í hlutafélag
SPRON Árni Þór Sigurðsson, for-
seti borgarstjórnar og stjórnar-
maður í SPRON vill að hætt verði
nú þegar við áform um hluta-
félagavæðingu SPRON.
Á fundi stjórnar SPRON í gær
var rætt um málefni sparisjóðs-
ins, í ljósi stjórnarfrumvarps við-
skiptaráðherra um fjármálafyrir-
tæki. Ákveðið var að bíða með
ákvarðanir í málinu, en í bókun
sem Árni lagði fram segist hann
telja rétt að hætta við áformin.
Árni vísaði til þess að við-
skiptaráðherra hefur lagt fram á
Alþingi stjórnarfrumvarp sem í
raun komi í veg fyrir löglegan
samning SPRON og KB-banka og
þess, að SPRON hafi ætíð ætlað
sér að vinna í samræmi við lög.
„Tel ég rétt að stjórn SPRON
ákveði nú þegar að leggja til hlið-
ar áform um að breyta SPRON í
hlutafélag,“ segir í bókun Árna. ■
SCHWARZENEGGER
Það kostaði Arnold Schwarzenegger hátt í
tvo milljarða íslenskra króna að sannfæra
kjósendur í Kaliforníu um að hann væri
hæfastur til að gegna embætti ríkisstjóra.
Ríkisstjórakosningar:
Kostuðu
sex milljarða
KALIFORNÍA, AP Kosningaherferðir
helstu frambjóðenda í ríkisstjóra-
kosningunum í Kaliforníu í október
á síðasta ári kostuðu sem svarar yfir
sex milljörðum íslenskra króna sam-
tals. Kvikmyndaleikarinn Arnold
Schwarz-enegger, sem fór með sigur
af hólmi, eyddi um þriðjungi þessar-
ar upphæðar. Hann dró sem svarar
um 700 milljónum úr eigin vasa en
afgangurinn kom frá ýmsum fyrir-
tækjum og fjármálastofnunum.
Heildarkostnaðurinn við kosn-
ingabaráttuna þykir mjög hár í ljósi
þess að hún stóð aðeins yfir í tæpa
tvo mánuði. ■
ENDURGREIÐSLUR
Reikningar fyrir læknisverk sem sjúklingar greiddu að fullu á deilutíma sérfræðilækna og
heilbrigðisyfirvalda geta verið að skila sér fram til næstu áramóta.
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
Forseti borgarstjórnar og stjórnarmaður í
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis
segir rétt að leggja nú þegar til hliðar
áform um hlutafélagavæðingu SPRON.
ÞÚ VANNST 50.000 DOLLARA!
Þessa dagana berst einstaklingum bréf í pósti þar sem þeim er tjáð að þeir hafi unnið
50.000 dollara. Er um að ræða eitt af mörgum lottó- og happdrættissvindlum sem berast
erlendis frá.
VILJA SKAPA TRÚVERÐUGLEIKA
Mikið er lagt í umbúðir til að skapa
trúverðugleika.
Aldraðir vistmenn:
Fluttir í lík-
húsið
SVÍÞJÓÐ, AP Um það bil 30 vistmenn á
dvalarheimili aldraðra í Arvika í
Svíþjóð verða fluttir í líkhús staðar-
ins nokkru fyrr en þeir höfðu gert
ráð fyrir. Ráðast á í endurbætur á
dvalarheimilinu og því þarf að koma
vistmönnum fyrir annars staðar á
meðan. Húsnæðið sem varð fyrir
valinu er líkhús bæjarins.
Lítið verður þó eftir til að minna
á líkhús þegar vistmennirnir flytjast
þangað því allur búnaður líkhússins
verður fluttur á brott en þess í stað
komið upp öldrunardeild til bráða-
birgða, segir yfirmaður félags-
þjónustunnar á staðnum. ■