Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 39
35FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004 Í leikstjórn Sofia Coppola 3 GOLDEN GLOBE BESTA GAMANMYND, BESTI GAMANLEIKARI Í AÐALHLUTVERKI OG BESTA HANDRIT Á yfir 200 listum yfir tíu bestu myndir ársins hjá gagn- rýnendum um heim allan Allir þurfa félagsskap 4 ÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYND, BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI, BESTI LEIKSTJÓRI OG BESTA HANDRIT T I L N E F N D T I L Faxafeni 14, 108 Reykjavík, s: 568-0850. Fjölbreytt vöruúrval ÚTSALA Heimsmeistaramótið 2009: Átta borgir sækja um FÓTBOLTI Átta borgir í fjórum heims- álfum hafa sótt um að halda tólfta heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum árið 2009. Frestur til að sækja um rann út um mánaðamótin. Casablanca í Marokkó er eina borgin í Afríku sem sækist eftir gestgjafahlutverkinu. Asísku borg- irnar Daegu í Suður Kóreu og Delhi á Indlandi sóttu einnig um að halda mótið sem og Brisbane í Ástralíu. Berlín, höfuðborg Þýskalands, og Brussel, höfuðborg Belgíu, eru meðal umsækjenda, einnig króat- íska borgin Split og spánska borgin Valencia en næsta mót fer fram í Osaka í Japan. ■ KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar eru ekki sáttir við vinnubrögð aganefndar KKÍ í tengslum við eins leiks bann sem Páll Kristinsson var dæmdur í á þriðjudaginn en honum var vísað út úr húsi í leik Njarðvíkur og Ham- ars á sunnudagskvöldið. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem fram kom að vinnu- brögð aganefndar KKÍ hefðu ekki verið samkvæmt settum reglum. Njarðvíkingar voru ósáttir við að Páll skyldi vera dæmdur í bann án þess að félagið væri beðið um að skila inn gögnum. Þetta bann getur reynst Njarðvíkingum dýrkeypt því að Páll mun missa af bikarúrslita- leiknum gegn Keflavík á laugardaginn. Jafnframt telja Njarðvík- ingar það vera á mjög gráu svæði að for- maður aga- nefndar KKÍ, sem er harður s t u ð n i n g s - maður Kefla- víkur, skuli ekki hafa vikið sæti við fyrir- töku þessa máls. ■ PÁLL KRISTINSSON Páll missir af bikar- úrslitaleiknum gegn Keflavík. HENCHOZ Henchoz (til hægri) og Wayne Rooney, leikmaður Everton. Henchoz segir að Liver- pool í toppformi sé betra en United. Stephane Henchoz: Liverpool betra en United FÓTBOLTI Svisslendingurinn Steph- ane Henchoz segir að lið sitt Liverpool sé betra en Manchester United. Þessi yfirlýsing kemur vafa- lítið mörgum á óvart þar sem United vann Englandsmeistaratit- ilinn í fyrra á meðan Liverpool tókst ekki að komast í meistara- deildina. Liverpool er jafnframt í dag í fimmta sæti deildarinnar, 19 stigum á eftir United. „Þegar hver og einn leikmaður liðsins er í toppformi myndi ég jafnvel ganga svo langt að segja að við séum betri en Manchester United,“ sagði Henchoz. „Ef þú tekur hvern og einn leikmann okkar og berð hann saman við leikmenn United, þá held ég að við séum ekki með lakara lið.“ ■ TOTTENHAM Redknapp leikur brátt með félögum sínum í Tottenham eftir erfið meiðsli. Jamie Redknapp: Kominn á stjá eftir meiðsli FÓTBOLTI Ekki er langt í að Jamie Redknapp, fyrirliði Tottenham, komi aftur inn í liðið eftir hné- meiðsli. Redknappp lék 45 mínútur í leik varaliðsins gegn Fulham á dög- unum og fann sér hvergi meins. Hann hefur ekki spilað leik með aðalliðinu síðan í leik gegn Sout- hampton þann 20. september í fyrra. Þá var haldið að kappinn yrði frá í nokkrar vikur en á endanum þurfti hann að fara í uppskurð. Red- knapp hefur lengi átt við meiðsli að stríða á ferli sínum. Þegar hann lék með Liverpool þurfti hann m.a. að taka sér árshvíld vegna meiðsla á þessu sama hnéi. ■ Njarðvíkingar í körfunni: Ósáttir við KKÍ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.