Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 31
27FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004 Icelandic Hotel Selfoss  . Eyrarvegi 2 . 800 Selfoss . selfoss@icelandichotels. is . www.icelandichotels. is l á t t u o k k u r u m skipulagið við gerum tilboð í aðrar árshátíðir, ráðstefnur, fundi & uppákomur HOTELSELFOSS SÍMI 480 2500                  !          "#   "$"         "$%$     ##   '  (  )*$  +  " $$        Lalandia er frábær sumarhúsa- og fjölskyldu- garður á Lálandi í Danmörku, aðeins í 1 1/2 klst. akstursfjarlægð frá Kaupmannahöfn. Lalandia er sannkölluð paradís fyrir fjölskylduna og hefur slegið í gegn á Norðurlöndum. Þar eru þarfir barna í algerum forgangi og mikið lagt upp úr því að vel fari um foreldrana líka. Hægt er að fá 30 síðna glæsilegan bækling á íslensku hjá okkur eða fá hann sendan í pósti. Einnig er hægt að skoða staðinn á www.lalandia.dk. Verðdæmi: kr: 58.090- kr á mann, miðað við 2 fullorðna og 2 börn. Innifalið: flug, skattar og gisting í húsi B2 í 2 vikur í júní. Nánari upplýsingar og bókanir í síma 5854100 eða sendið fyrirspurnir á smarinn@uu. LALANDIA -stærsti sumarleyfisstaður á Norðurlöndum SAMA V ERÐ Á ÍSLANDI OG DAN MÖRKU Einkaum boð á Í slandi Úrval Ú tsýn Sm árinn í Smáranum, sími 585 4100 Lífshættuleg umferð Við Gunnar og Þórir ætlum aðsegja ykkur lesendum Frétta- blaðsins frá ferðum okkar á ferð- lagi okkar um heiminn sem mun taka um það bil 120 daga. Við hóf- um för okkar 1. febrúar en þá flug- um við frá London til Delhí með stoppi í Frankfurt. Vorum búnir að bóka hótel fyrir fram og létum sækja okkur á flugvöllinn, sem við mælum eindregið með. Það er svo mikið af fólki sem reynir að blekk- ja mann annars. Það sem sló mann fyrst er að það er rosalega skítugt í Delhí og fátæktin er mikil. Við vor- um bara eina nótt þar og munum enda för okkar þar áður en við för- um til Taílands. Við fórum að skoða Taj Mahal í dag. Það er ólýsanlega fallegt og eiginlega ekki hægt að lýsa því í orðum og við vonum bara að þið skoðið myndirnar á heima- síðunni okkar (www.heims- fari.com). Umferðin er lífshættuleg og við myndum ekki vilja keyra sjálfir hérna. Það eru engar eiginlegar akreinar og flautan virðist vera það mikilvægasta í bílum ásamt því að vera nógu frekur. Maður er með hjartað í buxunum fyrst um sinn en síðan venst maður þessu furðu fljótt, náðum meira að segja að sofna í bílum á leiðinni þar sem við sváfum bara þrjá tíma fyrstu nótt- ina. Það er kalt á nóttunni hérna og það veitir ekkert af því að sofa í föt- unum. Erum með leiðsögumann hérna í 10 daga sem mun fara með okkur hvert sem við viljum (hótelið reddaði því) og það er mjög sniðugt þegar maður er hérna í svona stutt- an tíma. Við biðjum bara að heilsa í bili. Kveðja, Gunnar og Þórir. ■ NIÐURSTÖÐUR KYNNTAR Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs, Oddný Þóra Óladóttir verkefnastjóri og Magnús Oddsson ferðamálastjóri kynntu niðurstöður könnunarinnar. Könnun á ferðavenjum Íslendinga: 70% vilja ferðast meira innanlands Nærri 70% Íslendinga vilja ferð-ast meira innanlands en þá skortir tíma eða finnst það vera of dýrt. Samt ferðuðust átta af hverj- um tíu landsmönnum innanlands á síðasta ári. Þetta kemur fram í könnun Gallups á ferðavenjum Ís- lendinga sem var gerð fyrir Ferða- málaráð Íslands í desember sl. Alls ferðuðust 80,6 % Íslend- inga innanlands árið 2003, sem er heldur minna en í sambærilegri könnun sem var gerð árið 2000. Þá ferðuðust 81,4% innanlands. Langflestir, eða 88%, ferðuðust á eigin vegum og flestir nýttu sér gistingu hjá vinum og ættingjum. Sund, gönguferðir og náttúru- skoðun var vinsælasta afþreying- in. Áhugi á Vestfjörðum og há- lendinu jókst mikið frá síðustu könnun. Heildarútgjöld vegna ferðalaga innanlands í fyrra voru að jafnaði 97 þúsund krónur. Rúmlega helmingur lands- manna fór utan á síðasta ári. Að jafnaði voru farnar tvær ferðir og var meðaldvalarlengd tuttugu nætur. Magnús Oddsson ferðamála- stjóri telur það geysilega mikil- vægt að ferðaþjónustan nýti sér könnunina. „Í því liggur gífurleg áskorun að 70% vilja ferðast meira. Ég tel að ef mann skorti tíma for- gangsraði maður. Við þurfum að fá fólk til að velja það frekar að ferð- ast meira,“ sagði Magnús. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Þórir Tryggvason og Gunnar Freyr Gunnarsson: Umhverfis jörðina á 120 dögum Ferðalangarnir Þórir Tryggvasonog Gunnar Freyr Gunnarsson eru leið umhverfis jörðina á 120 dögum. Þeir héldu af stað frá London til Delhí 1. febrúar. Frá Indlandi er ferðinni heitið til Bangkok og þaðan til Víetnam, Laos og Kambodíu. Þá fara þeir til Peking og svo til Phuket í Taílandi. Þá er ferðinni heitið til Kuala Lumpur og svo til Brunei. Svo fara þeir til Singapúr og þaðan til Balí og Jakarta. Þá fara þeir til Ástr- alíu og Nýja-Sjálands og svo til Sam- oa eyja. Þaðan fara þeir til Los Ang- eles þaðan sem þeir munu ferðast um Bandaríkin og Kananda síðustu þrjár vikur ferðalagsins. Lesendur Fréttablaðsins munu fylgja þeim félögum í vikulegum pistlum á Ferðum o.fl. á fimmtudög- um. ■ Heimsferð GUNNAR OG ÞÓRIR ■ skrifa ferðapistla úr 120 daga heimsreisu sinni. KYNNINGARFUNDUR UM GÖNGUFERÐIR ERLENDIS Á sunnudaginn verður haldinn kynningarfundur um dagskrá gönguferða á vegum Úrvals Út- sýnar á Hótel Loftleiðum. Á fundinum verður myndasýning og ferðalýsingar. Boðið er upp á gönguferðir í hefðbundum takti, gönguferðir í léttari takti og gönguferð fyrir matgæðinga. Áfangastaðir í ár Majorka, Pyr- eneafjöll, Toscana, Krít, Dóló- mítafjöll á Ítalíu, Tatrafjöll í Slóvakíu og Thüringen í Þýska- landi. Fundurinn verður haldinn í Víkingasal kl. 15 og kostar að- gangur með kaffi og kökum kr. 600. ■ Á döfinni Á LEIÐ TIL AGRA Þórir og Gunnar eru á ferðalagi um heiminn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.