Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R Hundurinn Hundurinn blés út með hverjumdeginum og fjölskyldan öll var í öngum sínum. Hann hafði fulla matar- lyst en ekkert sem hann innbyrti að framan skilaði sér út að aftan. Drengur á sjötta ári sem af einhverjum ástæð- um notaði enn snuð varpaði ljósi á út- þenslu dýrsins þegar hann uppgötvaði að varasnuðið hans hafði verið klippt í sundur svo af var túttan. Skýringin lá í augum uppi. Hundurinn hafði ekki að- eins nagað skó heimilisfólks og étið gardínur heldur hafði snuðið lent milli skolta hans. Fróðra manna ráð urðu til þess að hundurinn var færður í baðkar og matarolíu dælt upp í báða enda hans. Skyndilega heyrðist holur smellur líkt og hleypt væri af loftbyssu. Túttan skaust úr dýrinu og í kjölfar hennar kom mikill mórauður elfur. Dýrið skrapp saman í eðlilega stærð. En hundurinn lærði ekki af mistökum sínum og hann hélt áfram að éta allt í kringum sig án tillits til efnisins. Næsta afrek hans og það síðasta í þessari sögu var þegar honum var komið í fóstur um vikutíma hjá langömmu barnanna. Þar át hann heila forstofu að því marki að einungis stóðu eftir útveggirnir. Þá var hann sendur í sveit. NÆSTI HUNDUR var einstaklega fallegur íslenskur fjárhundur með hárnákvæma ættartölu. Hann kostaði sitt en á það var bent að dropinn myndi greiða upp kostnaðinn þar sem fjölskyldan gæti fengið undan honum hvolp og annan og selt heilan ættbálk. En þegar dýrið óx úr grasi kom í ljós að einungis var að finna eitt eista og aukinheldur sat hundur- inn eins og hestur sökum mjaðma- galla. Þetta breytti þó ekki ástinni á dýrinu sem í fötlun sinni naut góðs atlætis til æviloka. ÞRIÐJI HUNDURINN er kominn til sögunnar. Sá er fokdýr af gerðinni amerískur lubbi og varð í frumbernsku dálæti allra. Af fyrri reynslu var fólk þó á varðbergi gagnvart mögulegum göllum. Ljóst er að dýrið situr ekki eins og hestur en annað og að því er virtist stærra vandamál kom upp þegar glögg- skyggn húsbóndinn uppgötvaði að ekki vantaði bara annað eistað heldur bæði. Uppnám ríkti um stund og sérfræðing- ar voru kallaðir til að lesa í meintan galla. Hundafræðingur úr Hafnarfirði þuklaði dýrið á meðan fjölskyldan fylgdist grannt með. Eftir nokkra stund leit fræðingurinn upp frá rannsóknum sínum og sagði gáfulega. „Þetta er allt eðlilegt“. Húsbóndinn, enn brenndur eftir að hafa uppgötvað eineistunginn, spurði með þjósti hvað hann meinti eig- inlega. Svarið var stutt og laggott: „Jú, þetta er tík“. ÓKEYPIS LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ á hverju fimmtudagskvöldi kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012. ORATOR, félag laganema við Háskóla Íslands.Dalvegur 16a, 562-2445 www.amor.is OPNUNARTILBOÐ Dalvegi 16a Video frá 990 Allt DVD Á 2.490 SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar REYNIS TRAUSTASONAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.