Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 27
23FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004 Litli leikklúbburinn á Ísafirðiætlar að frumsýna leikritið Ísaðar gellur eftir Paul Harrison næsta föstudag í Sundartanga við Sundahöfn á Ísafirði. Leikritið fjallar um þrjár breskar stúlkur sem fara að vinna í fiski á Suður- eyri, samskipti þeirra sín á milli og við verkstjórann. Leikritið þykir bæði drepfyndið og alvar- legt í senn og nægjanlega fjörugt til þess að barnaverndaryfirvöld á Ísafirði hafa gefið út þá tilskip- un að börnum undir 12 ára skuli ekki hleypt á sýninguna án fylgd- ar fullorðinna. ■ Fjör í fiski Hvernig væri að hleypa svo litlu lífi í veggina, hurðina eða t.d. kommóðuna heima? Það er e.t.v. einfaldara en þú heldur. N Á M S K E I Ð S E M G E R A L Í F I Ð S K E M M T I L E G R A Skreytimálun 16 st. • Verð: 16.000 kr. Mán., 9.–23.feb. Kl. 17.00–20.00. Kennari: Helgi G. Kristinsson. Sögun á steini, slípun og pólering. Steinar gerðir tilbúnir til notkunar í skartgripi. Steinaslípun 21 st. • Verð: 21.000 kr. Mið., 11. feb.–24. mar. Kl. 17.30–19.45. Kennari: Snæbjörn Þ. Snæbjörnsson. Litríkt og spennandi námskeið um hin fjölbreyttu form og liti marmarans. Marmaramálun 18 st. • Verð: 18.000 kr. Mið. 11.–25. feb. Kl. 17.00–20.00. Kennari: Helgi G. Kristinsson. Langar þig að smíða fallegan hlut í tré við bestu aðstæður og undir leiðsögn fagmanna? Opin vinnustofa í trésmíði 34 st. • Verð: 32.000 kr. Mið., 11. feb.–17. apr. Kl. 18.00–21.00. Kennarar trédeildar. Nú er tækifærið til að kveikja á pinnanum eða endurnýja kunnáttuna. Rafsuða fyrir byrjendur 20 st. • Verð: 24.000 kr. Mán.,16. feb.–15. mar. Kl. 18.00–20.40. Kennari: Sigurður Steingrímsson. Lærið undirstöðuatriði í hlífðargassuðu. Þátttakendur sjóða lágréttar suður MAG-suða – Rafsuða með hlífðargasi 20 st. • Verð: 24.000 kr. Mið., 18. feb.–17. mar. Kl. 18.00–21.40. Kennari: Alfreð Harðarsson. Hér getur þú lært að smíða fallegan hlut úr eðalmálmum við bestu aðstæður og undir leiðsögn fagmanns. Gullsmíði – grunnnámskeið 30 st. • Verð: 32.000 kr. Byrjar 23. feb. Hópur 1, mán. kl. 18.00–21.40. Hópur 2, mið. kl. 18.00–21.40. Kennari: Harpa Kristjánsdóttir. Langar þig að smíðasólpallinn sjálf(-ur)? Fjallað er um unidrstöður, burðarvirki, klæðningar og viðhald. Skjólveggir og sólpallar 9 st. • Verð: 9.000 kr. Mið., 14.–28. apríl. Kl. 18.00–20.00. Kennari: Jón Eiríkur Guðmundsson. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍKSkólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is Skoðaðu möguleikana og smelltu þér á vefslóðina: http://namskeid.ir.is GÚSTA ÍSAÐAR GELLUR Litli leikklúbburinn á Ísafirði setur upp verk sem er bannað innan 12 ára. Flateyringar slá upp sinni ár-legu Stútungsveislu á laugar- daginn en sögu Stútungs má rekja allt aftur til ársins 1930. Hann er því orðinn 74 ára en ekki 10 ára eins og sagt var í Fréttablaðinu á dögunum. Þegar skemmtunin var fyrst haldin var boðað til hennar með auglýsingu sem borin var í hús á Flateyri og þar kom fram að ein- ungis „giftir og húsráðendur“ hefðu rétt til þátttöku í gleðinni. Stútungur hefur í gegnum tíðina tekið nokkrum form- breytingum og segja má að nú sé hann orðinn að almennu þorrablóti þá hann hafi upphaf- lega verið hjónaball. ■ LÝÐUR ÁRNASON Hinn glaðbeitti læknir þeirra Flateyringa lætur væntanlega til sín taka á Stútungi en sjálfur Hemmi Gunn verður veislustjóri. Stútungur eldri en tíu vetra M YN D B B .IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.