Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 14
14 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
■ Bandaríkin
■ Afríka
APAKONUNGURINN SKREYTTUR
Ungur Malasíubúi leggur blómsveig um
háls apakonungsins í Kuala Lumpur í
tilefni af Thaipusam-hátíð hindúa. Hátíðin
á rætur að rekja til Indlands en þar er hún
bönnuð með lögum.
Opinberir styrkir til eldis sjávardýra:
Helmingurinn í lúðueldi
FISKELDI Fiskeldi Eyjafjarðar hefur
frá árinu 1991 fengið samtals 134
milljónir króna í styrki vegna verk-
efna sem tengjast eldi sjávardýra.
Styrkirnir hafa nær eingöngu verið
veittir vegna lúðueldis.
Þetta kemur fram í svari sjávar-
útvegsráðherra við fyrirspurn
Kristjáns L. Möller, Samfylking-
unni.
Samtals nema opinberir styrkir
til eldis sjávardýra rúmum 259
milljónum króna síðustu 13 ár.
Lúðueldi Fiskeldis Eyjafjarðar hef-
ur því fengið rúman helming allra
opinberra styrkja frá árinu 1991.
Á sama tíma hefur Stofnfiskur
fengið 20,3 milljónir króna í styrki
vegna ýmissa rannsókna, svo sem á
lúðu til eldis, á rauðu sæeyra og
vegna þorskeldis. Sæbýli í Vogum
hefur frá árinu 1996 fengið samtals
13,2 milljónir í styrki vegna eldis á
sæeyra.
Hafrannsóknastofnunin og
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
hafa samtals fengið 33,3 milljónir
króna, til sameiginlegra verkefna
eða einar sér. Samtals hafa fimm of-
angreindir aðilar fengið tæplega
80% allra styrkja til eldis sjávar-
dýra síðustu 13 ár.
Meðal verkefna sem hafa hlotið
styrki, auk þorsk- og lúðueldis, eru
meðal annars verkefni tengd eldi á
hlýra, barra, sandhverfu og ýsu. ■
Á fjórða þúsund
án heimilislæknis
Áætlað er að á fjórða þúsund manns séu nú án heimilislæknis á svæði
Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, að sögn forstjóra hennar.
Sjálfstætt starfandi heimilislæknum hefur farið fækkandi.
HEILBRIGÐISMÁL „Það má áætla að
á fjórða þúsund manns séu nú án
heimilislæknis á svæði Heilsu-
gæslunnar,“ sagði Guðmundur
Einarsson forstjóri hennar,
spurður um fjölda fólks á
biðlista eftir slíkri þjónustu.
Guðmundur undirstrikaði að
ekki lægju fyrir nákvæmar töl-
ur um þennan fjölda. Það svæði
sem Heilsugæslan þjónar nær
yfir Reykjavík, Kópavog, Sel-
tjarnarnes, Mosfellsbæ, Kjósar-
sýslu og Þingvallasveit.
„Það hefur
gengið erfiðlega
að keyra saman
skrár Trygg-
ingastofnunar
ríkisins yfir
sjálfstætt starf-
andi heimilis-
lækna annars
vegar og svo
þær skrár sem eru hjá heilsu-
gæslustöðvunum og jafnvel þær
skrár sem þar eru, innbyrðis,“
sagði Guðmundur. „Þannig getur
verið um tvítalningu að ræða í
einhverjum tilvikum.“
Ef við tökum hins vegar tölur
yfir þá sem eru skráðir og drög-
um það frá heildarfjöldanum eru
þetta ekki svo margir. En vegna
óvissu af þeim sökum sem ég
nefndi og svo því að það geta ein-
hverjir utan af landi verið skráð-
ir á einhverja lækna hér giska ég
á að á því svæði sem við þjónum
geti þeir verið á fjórða þúsund
sem hafa ekki heimilislækni.
Hægt verður að fá nákvæmar töl-
ur þegar búið verður að uppfæra
sjúkraskrárkerfin sem við erum
með núna. En það eru aðrir hlutir
í forgangi sem stendur.“
Guðmundur sagði enn fremur
að til stæði að opna nýja heilsu-
gæslustöð í Voga- og Heima-
hverfinu þar sem byggju um níu
þúsund manns. Stefnt væri að því
að hún tæki til starfa fyrir lok
þessa árs. Meðan engin stöð væri
til staðar á svæðinu væri það
erfiðleikum háð að veita fólki þar
nógu góða þjónustu. Það yrði að
vera hjá sjálfstætt starfandi
heimilislæknum eða á stöð sem
ætlað væri að þjóna öðrum
svæðum.
„Sjálfstætt starfandi heimilis-
læknum hefur fækkað að undan-
förnu,“ sagði Guðmundur. „Þeir
voru 16-17 fyrir fjórum árum en
eru nú 10 eða 11. Á sama tíma
hefur læknum á heilsugæslu-
stöðvunum fjölgað. Nú liggur
fyrir áætlun um fimm lækna til
viðbótar á þessu ári á svæði
Heilsugæslunnar. Inni í þeirri
aukningu eru ekki taldir læknar
á nýju Vogastöðinni, því ég er
ekki viss um að það takist að
koma henni í notkun á árinu. Ef
við teljum hana með geta verið
tveir læknar til viðbótar þar.“
jss@frettabladid.is
Bankar í samstarf:
Kortavæða
Kínverja
SHANGHAI, AP Fyrstu Kínverjarnir
fara fljótlega að greiða fyrir vörur
sínar með kreditkortum frá Visa.
Hingað til hafa stjórnvöld ekki leyft
greiðslukort frá alþjóðlegum keðj-
um en nú hefur Citigroup í samvinnu
við Shangai Pudong þróunarbankann
hafið útgáfu á Visa-kreditkortum í
Kína með leyfi stjórnvalda.
„Við höfum mjög, mjög stór
áform fyrir Kína,“ sagði Charles O.
Prince, forstjóri Citigroup. Erlendir
bankar telja að greiðslukortamark-
aðurinn í Kína geti reynst gullnáma
þar sem kínverskir neytendur séu að
vakna fyrir möguleikum greiðslu-
korta. ■
TAMAGOTCHI
Fyrri kynslóðin gat verið alsæl og vansæl
en nýja kynslóðin verður ástfangin.
Næsta kynslóð:
Ástfangin
leikföng
TÓKÍÓ, AP Þau fara á stefnumót,
verða ástfangin og eignast börn.
Þau eru ný kynslóð af Tamagotchi-
tölvugæludýrunum sem urðu vin-
sæl á síðasta áratug síðustu aldar
en voru tekin úr sölu skömmu fyr-
ir aldamót. Þá höfðu um 40 milljón
gæludýr selst á heimsvísu.
Nýja útgáfan, sem kemur á
markað í Japan í næsta mánuði,
getur haft samband við önnur
gæludýr og eigendur þeirra geta
látið þau taka þátt í átkeppnum eða
gefið öðrum gæludýrum blóm. ■
„Sjálfstætt
starfandi
heimilislækn-
um hefur
fækkað að
undanförnu.
KEIKÓ MINNST Í OREGON Þann
20. febrúar næstkomandi verður
haldin minningarathöfn um há-
hyrninginn Keikó í Oregon Coast-
sædýrasafninu. Keikó, sem
drapst í Taknesfirði í Noregi 12.
desember síðastliðinn, dvaldi í
þessu safni á árunum 1996 til
1998. Fyrirhugað er að setja upp
bronsstyttu af Keikó í safninu.
FARÞEGALESTIR RÁKUST Á Á
fimmta tug manna slasaðist lítil-
lega þegar tvær farþegalestir
rákust á í miðborg Chicago. At-
vikið átti sér stað á háannatíma.
Önnur lestin rakst aftan á hina í
beygju með þeim afleiðingum að
rúður brotnuðu í lestarvögnunum
og farþegar köstuðust til.
BISKUPSDÆMI GREIÐIR BÆTUR
Kaþólska biskupsdæmið í Spring-
field í Illinois hefur ákveðið að
greiða 28 fórnarlömbum kynferð-
islegrar misnotkunar sem svarar
yfir 200 milljónum íslenskra
króna í bætur. Fólkið var misnot-
að kynferðislega af einum af
prestum biskupsdæmisins á átt-
unda og níunda áratugnum. Bisk-
upsdæmið hefur beðist opinber-
lega afsökunar.
TUGIR FÓRUST ÞEGAR BÁTI
HVOLFDI Að minnsta kosti 42 fór-
ust þegar báti hvolfdi á stöðuvatni í
vestanverðu Úganda. 37 manns
hefur verið bjargað á lífi en ekki
liggur fyrir hversu margir voru
um borð í bátnum. Enn er leitað að
líkum meðfram ströndum Albert-
vatns. Talið er að báturinn hafi ver-
ið yfirfullur af fólki og farangri.
STARFSMANNI SÞ RÆNT Þýskum
starfsmanni Sameinuðu þjóðanna í
Sómalíu hefur verið haldið í gísl-
ingu síðan 29. janúar. Sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna hefur krafist
þess að Rolf Helmrich verði látinn
laus án tafar en ekki liggur fyrir
hverjir halda honum föngnum.
Engin viðurkennd ríkisstjórn hefur
verið í Sómalíu síðan árið 1991.
HEILSUGÆSLA
Þeir sem eru án heimilislæknis leita ýmist til sjálfstætt starfandi lækna eða fara á heilsu-
gæslustöðvar.
Umsvif vegna Impregilo hjá Vinnumálastofnun:
17 leyfi veitt og
30 umsóknir í bið
ATVINNUMÁL Um 30 umsóknir frá
ítalska verktakafyrirtækinu
Impregilo liggja nú fyrir hjá
Vinnumálastofnun. Fyrirtækið
sækir þar um atvinnuleyfi fyrir
erlenda starfsmenn sína á Íslandi.
Fyrir utan ofangreindar umsóknir
hefur Vinnumálastofnun þegar
veitt 14 erlendum starfsmönnum
frá Impregilo atvinnuleyfi það
sem af er þessu ári.
Heiða Gestsdóttir hjá Vinnu-
málastofnun sagðist ekki hafa
yfirsýn yfir það hvort einhverjir
hyrfu af landi brott í stað þeirra
sem sótt hefði verið um fyrir.
„Þeir sem sótt hefur verið um
fyrir nú hafa allir unnið hjá
fyrirtækinu áður,“ sagði hún.
„Þessir menn eru að koma frá
ýmsum löndum, þar sem þeir
hafa unnið.“
Af þeim ríflega 900 manns
sem starfa nú á Kárahnjúka-
svæðinu eru ríflega 40 prósent
Íslendingar. Hlutfall þeirra mið-
að við erlenda starfsmenn hefur
aukist jafnt og þétt frá því að
framkvæmdir við virkjunina
hófust. Lægst var það 20 pró-
sent íslenskra starfsmanna á
móti 80 prósentum erlendra. ■
Styrkir til eldis sjávardýra 1991-2003 í
milljónum króna
1991 19,7
1992 18,5
1993 18,4
1994 19,0
1995 19,4
1996 19,5
1997 19,0
1998 19,8
1999 21,1
2000 15,0
2001 25,493
2002 23,905
2003 20,287
Samtals 259,085
Styrkir til eldis sjávardýra 1991-2003
Hæstu styrkir í milljónum króna
Fiskeldi Eyjafjarðar 133,9 - 52%
Hafró og RF 33,3 - 13%
Stofnfiskur 20,3 - 8%
Sæbýli 13,2 - 5%
Samtals 200,7 - 78%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Á SJÚKRAHÚSI
Á þriðja hundrað manns eru særðir eftir
árásirnar.
Árásirnar í Irbil:
Yfir hund-
rað látnir
IRBIL, AP Í það minnsta 109 manns
hafa látist af völdum tveggja
sprengjuárása í kúrdísku borg-
inni Irbil um helgina. Búist er við
að tala látinna eigi enn eftir að
fara hækkandi.
Átta létust aðfaranótt miðviku-
dags að sögn Mahmouds Othman,
meðlims í framkvæmdaráði
Íraks. Á þriðja hundrað manns til
viðbótar eru sárir og eru menn
vonlitlir um líf sumra þeirra.
Sjálfsmorðsárásirnar tvær eru
þær mannskæðustu í Írak. Áður
höfðu flestir fallið í árás fyrir
utan mosku í borginni Najaf. Þá
létust 85 manns hið minnsta. ■
STARFSMANNAMÁL Á KÁRAHNJÚKASVÆÐINU
Starfsmenn Impregilo á virkjanasvæðinu norðan Vatnajökuls koma frá ýmsum löndum,
þar sem þeir hafa starfað á vegum fyrirtækisins.