Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 22
22 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Fyrrum þungaviktarmeistarinní hnefaleikum, Mike Tyson, var
dæmdur í árs fangelsi í Maryland
eftir að hafa veist að tveimur öku-
mönnum eftir umferðaróhapp
sem hann lenti í í ágúst árið áður.
Tyson missti stjórn á sér eftir
áreksturinn og sló 62 ára gamlan
mann í andlitið og sparkaði í klof
fimmtugs karlmanns.
Tyson hafði oft áður komist í
kast við lögin og var fundinn sek-
ur um nauðgun og dæmdur til
fangelsisvistar árið 1992. Fanga-
vistin virtist hafa haft góð áhrif á
villidýrið sem tók búddatrú og var
tíðrætt um þá stóísku ró sem hann
hefði fundið. Hann losnaði fyrr úr
fangelsinu en dómurinn sagði til
um og var því á skilorði þegar
hann réðist á bílstjórana tvo.
Skapofsinn hélt síðan áfram að
koma kappanum í bobba og flest-
um er sjálfsagt enn í fersku minni
þegar hann beit stykki úr eyra
andstæðings síns, Evanders
Hollyfield í hnefaleikahringnum
fyrir nokkrum árum.
Dómstóllinn í Maryland gerði
Tyson að sæta geðrannsókn til að
fá úr því skorið hvort hann væri
hæfur til að losna fyrr úr fangelsi
og fá að dvelja á vinnuheimili. ■
Friðjón Þórðarson, fv. ráðherra, er 81
árs.
Jónas Kristjánsson ritstjóri er 64 ára.
Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri
umferðarráðs er 61 árs.
Bessí Jóhannsdóttir sagnfræðingur er
56 ára.
Bolli Héðinsson hagfræðingur er 50 ára.
Gísli Sigurjónsson flugvélastjóri, Þórs-
götu 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 3.
febrúar.
Karl Friðrik Schiöth, Mávanesi 15,
Garðabæ, lést mánudaginn 2. febrúar.
Guðfinna Þóra Snorradóttir lést
fimmtudaginn 29. janúar.
Kristín Guðmundsdóttir, Vatnsnesvegi
27, Keflavík, lést sunnudaginn 25. janú-
ar. Jarðaförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Þórhildur Salómonsdóttir, fyrrum for-
stöðumaður Þvottahúss ríkisspítalanna,
lést laugardaginn 31. janúar.
Guðbjörg Bjarnadóttir, Einibergi 3,
Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 3. febrúar.
Björn. I. Kristjánsson, Gunnarsbraut 8,
Búðardal, lést laugardaginn 31. janúar.
Matthías Viðar Sæmundsson, dósent,
lést þriðjudaginn3. febrúar.
??? Hver?
Framkvæmdarstjóri fyrir hundrað ára
afmæli heimastjórnar.
??? Hvar?
Í forsætisráðuneytinu.
??? Hvaðan?
Er Reykvíkingur en á ættir að rekja að
mestu til Norðurlands.
??? Hvað?
Það eru fáar frístundir þessar vikurnar
en ég les svolítið bækur, ættfræði og
ævisögur. Ég fer reglulega í veiðitúr og
við hjónin förum dálítið til útlanda.
Börnin búa bæði erlendis þannig að við
heimsækjum þau. Á sumrin förum við
mikið út á land í stuttar ferðir.
??? Hvers vegna?
Vegna þess að það er langur vinnudag-
ur, sérstaklega þegar koma álagspunkt-
ar. Eiginkonan er einnig í krefjandi starfi
sem framkvæmdarstjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar.
??? Hvernig?
Til þess að svona verkefni heppnist
sæmilega þarf undirbúningurinn að
vera góður og það kallar á mikið verk á
öllum stigum undirbúningsins.
??? Hvenær?
Þetta verður svona alveg fram í septem-
ber þegar hátíðarhöldum lýkur með
útgáfu á bók um alla forsætisráðherra
Íslands.
■ Persónan
Það verður ekkert tilstand á af-mælinu. Síðast hélt ég upp á
fertugsafmælið í stórum sal en í
dag verða hátíðarhöldin í formi
kótiletta, segir Friðrik Rafnsson
ritstjóri, þýðandi og bókmennta-
fræðingur, sem í dag fagnar 45
ára afmæli sínu. Hann segir hefð
fyrir því að afmælisbarnið ráði
matseðli kvöldsins. „Í mörg ár hef
ég óskað eftir þeim stórmerkilega
rétti, lambakótelettur í raspi, eld-
að í anda ömmu og mömmu. Þrátt
fyrir að ég hafi búið erlendis í
nokkur ár, og þyki alls kyns furðu-
legur matur góður, leitar hugur-
inn stöðugt í kóteletturnar. Ég er
dálítið veikur fyrir öllu með raspi
utan á. Bæði er þetta yndislega
óhollt og gott.“
Friðrik er kunnur fyrir þýðing-
ar sínar á erlendum skáldverkum
meðal annars eftir höfunda á borð
við Milan Kundera og Michel
Houellebecq. Nýlega sendi hann
frá sér grein til birtingar í frans-
ka bókmenntatímaritinu L’Atelier
du roman þar sem hann ber sam-
an bókina Heimsljós eftir Halldór
Laxness við skáldverk Kundera
Lífið er annars staðar. Þá stendur
til að þýða greinina á fleiri tungu-
mál meðal annars ítölsku og rúss-
nesku. „Bækurnar eiga það sam-
eiginlegt að aðalpersónurnar eru
ungskáld. Ég set fram þá bráða-
birgðatilgátu að Jaromil, persóna
Kundera, sé fagurfræðilegt fram-
hald af Ljósvíkingi Laxness.“
En er inni í myndinni að Frið-
rik vendi sínu kvæði í kross og
sendi frá sér frumsamda skáld-
sögu? „Nei, ég held ég hlífi fólki
algerlega við því. Það eru margar
bókmenntaperlur eftir óþýddar
og farsælast að ég haldi mig við
þá deild.“
Friðrik starfar sem ritstjóri
heimsíðu Háskóla Íslands. Hann
segir starfið krefjandi og um leið
geysilega skemmtilegt. „Það er
alltaf mikið um að vera. Vefurinn
er orðinn ein aðalupplýsingaveita
skólans og skiptir stofnun að þess-
ari stærðargráðu gífurlega miklu
máli.“
Það sem hæst ber hjá Friðriki
um þessar mundir er undirbún-
ingur ráðstefnu sem haldin
verður 14. febrúar næstkom-
andi. Þar gefst íslenskum fræði-
mönnum kostur á að draga upp
mynd af því sem verið er að
rannsaka og snertir þróunar-
mál. „Síðan er alltaf eitthvað um
að vera í tölvunni minni,“ segir
Friðrik að lokum og var ófáan-
legur til að segja hvaða verkefni
það væri. ■
Afmæli
FRIÐRIK RAFNSSON
■ er 45 ára og ræður því matseðli
kvöldsins.
BOBBY BROWN
Söngvarinn, vandræðagemlingurinn
og eiginmaður Whitney Houston
er 35 ára í dag.
5. febrúar
■ Þetta gerðist
1631 Roger Williams, sem síðar nam
land á Rhode Island, kemur til
Boston frá Englandi.
1881 Phoenix í Arizona fær kaupstað-
arréttindi.
1917 Mexíkó eignast stjórnarskrá og
fagnar þeim tímamótum árlega
á þessum degi.
1937 Franklin D. Roosevelt, forseti
Bandaríkjanna, leggur til að
dómurum við hæstarétt landsins
verði fjölgað.
1962 Charles de Gaulle, forseti Frakk-
lands, lýsir yfir stuðningi við sjálf-
stæði Alsír.
1994 Byron De La Beckwith er dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á
mannréttindafrömuðinum
Medgar Evers árið 1963.
MIKE TYSON
Hnefaeikakappinn hefur átt erfitt með að
hemja skap sitt og var dæmdur í árs-
fangelsi árið 1999 fyrir líkamsárás.
Tyson tapar sér aftur
MIKE TYSON
■ Hnefaleikakappinn er alræmdur fyrir
ofsafengna geðsmuni sína og var á þess-
um degi dæmdur í fanglesi fyrir tvær
líkamsárásir.
5. febrúar
1999
Lambakótelettur
og Ljósvíkingur
Ástkær móðir okkar, unnusta, dóttir, systir
og mágkona,
GUÐFINNA ÞÓRA SNORRADÓTTIR
andaðist á heimili sínu þann 29. janúar
síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Fella- og
Hólakirkju 6. febrúar og hefst athöfnin kl. 13.30
Kristín Harpa Hermóðsdóttir, Anton Helgi Hermóðsson,
Birgitta Ír Guðmundsdóttir, Guðmundur Eyjólfur Sigurðsson,
Hjördís Björg Hjörleifsdóttir, Snorri Ársælsson,
Stefán Hjörleifur Snorrason, Þórunn María Pálmadóttir,
Guðbjörg Sigríður Snorradóttir, Unnar Sæmundsson,
Jónína Kristrún Snorradóttir, Einar Jónsson.
13.30 Ásmundur J. Jóhannsson tækni-
fræðingur, Hlíðarhúsum 3-5,
Reykjavik, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
13.30 Guðmundur Þorkell Jónsson,
Laugalæk 1, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
14.00 Aðalheiður Jónsdóttir, Heiðar-
hrauni 51, Grindavík, verður jarð-
sungin frá Grindavíkurkirkju.
15.00 Aðalbjörn Guðmundsson, fyrr-
verandi kaupmaður, Ísafirði, verð-
ur jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju.
15.00 Elín Þórdís Björnsdóttir verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju.
JÚLÍUS HAFSTEIN
Stjórnar og skipuleggur hátíðarhöld vegna
hundrað ára afmælis heimastjórnar. Vegna
anna er lítið um frístundir hjá honum
þetta árið.
FRIÐRIK RAFNSSON
Það sem hæst ber hjá Friðriki um þessar mundir er undirbúningur ráðstefnu sem haldin
verður 14. febrúar næstkomandi. Þar gefst íslenskum fræðimönnum kostur á að draga
upp mynd af því sem verið er að rannsaka og snertir þróunarmál.
Það vakti athygli fyrr í vikunni aðútvarpsmaðurinn spræki, Gulli
Helga, var mættur í Ísland í bítið og
er því þriðji nýi maðurinn þar á
stuttum tíma. „Ég leysi af annan
hvern mánudag og annan hvern
þriðjudag,“ segir Gulli. „Ég er
Heimir og Heimir er Fjalar. Þessi
bransi er þannig að það eru ör
mannaskipti og ef maður þolir það
ekki ætti maður bara að gera eitt-
hvað annað.“
Gulli er ekki alls ókunnur starfs-
umhverfinu þar sem hann var með
innslag þættinum í heilt ár undir
heitinu „Gulli byggir“ þangað til
það fór í hlé. „Þetta er bara hobbí
hjá mér,“ segir Gulli um veru sína í
Ísland í bítið. „Ég starfa sem bygg-
ingameistari en þar sem ég vinn hjá
sjálfum mér get ég hlaupið í skarð-
ið einu sinni í viku.“ Auk þess er
hann áfram á Bylgjunni þar sem
hann sér um laugardagsmorgna.
Sjónvarpsefni eins og Bítið
krefst góðrar samvinnu stjórn-
enda auk þess sem góðir stjórn-
endur morgunþátta um allan heim
eru þekktir sem heimilisvinir. Því
geta þessi öru skipti komið illa við
áhorfendur. Gulli hefur þó litlar
áhyggjur af því þar sem áhorf-
endur eru kannski búnir að venj-
ast sér á Bylgjunni, þó svo það sé
ekki sjálfgefið að hann verði eins
í sjónvarpi. „Þetta er spurning um
samvinnu og að taka tillit til hvors
annars. Það er rosalega gott að
vinna með Ingu Lind. Hún er
hvers manns hugljúfi í starfi.
Þetta er klár kona og það er það
sem þarf í þetta.“ ■
Sjónvarp
GULLI HELGA
■ segist vera Heimir og að Heimir sé
Fjalar. Enn einar mannabreytingar í
Ísland í bítið.
Þetta er bara hobbí
GUNNLAUGUR HELGASON
Vill lítið segja til um hvort hans sé að
koma í sjónvarp til frambúðar. „Ég veit
ekkert um framtíðina. Á heildina litið er
voðalega gaman í öllu sem ég geri, hvort
sem það er í sjónvarpi, útvarpi eða sem
smiður.“
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup er 57
ára.
■ Afmæli
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I