Fréttablaðið - 05.02.2004, Side 30
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Helgarslaufur
fyrir hópa, klúbba og félög af öllum stærðum.
Hafðu samband við
Bergþóru eða Kristjönu
í síma 570 30 75
hopadeild@flugfelag.is
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
34
42
01
/2
00
4
Í hjarta Mi›-Ameríku liggur Panamaskur›urinn
sem er ein stórkostlegasta siglingalei› í heimi.
fia› tekur a›eins 1 dag a› sigla í gegnum skur›inn
en minningin endist alla ævi. Á›ur en hápunkti
fer›arinnar er ná› í Panamaskur›inum eru
sko›a›ar perlur á lei›inni eins og Grand Cayman
og Aruba.
Sigmundur Andrésson fararstjóri kynnir fer›ina
í Skálanum á Hótel Sögu í kvöld kl. 20:00.
Nánari uppl‡singar um fer›ina á
www.urvalutsyn.is
og á skrifstofu okkar a› Lágmúla 4.
Farseðill gildir í eitt ár!
Verð á mann frá 19.500 kr.
All
taf
ód‡rast á netinu
Á skútu í Miðjarðarhafinu 22 sumur:
Sjóræningjar
og ofviðri
Hin franska Daniele Fernandez,kennari við Ármúlaskóla, er
ævintýrakona. Frá því hún kom til
Íslands 1974 hefur hún notað flest
sumur til ferðalaga af einhverju
tagi. Fyrstu árin fóru í að kynnast
Íslandi og síðustu ár hefur hún snú-
ið sér að Afríku. Um tuttugu og
tveggja ára skeið varði hún sumr-
unum við skútusiglingar um Mið-
jarðarhafið. Oftast gekk allt eins og
í sögu en einnig lenti hún í hremm-
ingum eins og illviðrum og sjóræn-
ingjum. Hún segir frá:
„Ég var að vinna á skútu sem
sigldi með litla hópa um Miðjarðar-
hafið. Nýtt fólk kom um borð viku-
lega og þeir sem vildu fengu tilsögn
í siglingum, aðrir notuðu tímann til
að slappa af og sóla sig, auk þess að
synda og kafa þegar færi gafst. Ég
gerði allt mögulegt um borð annað
en að elda. Stýrði, hagræddi segl-
um, kenndi farþegunum og passaði
upp á að ekkert skorti.
Eitt sinn við Sikiley kom bátur
á móti okkur, og um borð í honum
voru menn sem miðuðu á okkur
byssum og heimtuðu peninga. Ég
var við stýrið þá. Við kölluðum
strax á hjálp í talstöðina og um
leið og eigandi skútunnar skipaði
öllum konum að fela sig greip
hann eigin riffil og beindi honum
að bófunum. Þeir hættu því ekki á
að koma um borð. Hjálpin kom og
við fengum fylgd eins langt og
þörf krafði.
Tvívegis lentum við svo í brjál-
uðu veðri. Í annað skiptið vorum við
nærri Korsíku við Suður-Frakkland.
Vegna bilunar í tækjum heyrðum
við ekki veðurspá og stormurinn
brast á eins og hendi væri veifað.
Við börðumst við öldur sem náðu
tveimur þriðju af hæð mastranna.
Skipið var sterkt og við höfðum
þetta af en fimm skip fórust. Sonur
minn sem alltaf var með mér á skút-
unni hefur ekki siglt síðan. Hann
fékk alveg nóg. En ég hélt áfram
eftir þetta. Ég elska hafið.“ ■
DANIELE ELSKAR HAFIÐ
Hún er fædd í Marokkó og flutti til Suður-Frakklands ellefu ára gömul.
TRAUST SKIP OG GOTT
Við strendur Korsíku.