Fréttablaðið - 05.02.2004, Qupperneq 38
34 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
RALF SCHUMACHER
Ökumaður BMW-Williams á Montmelo-
brautinni við Barcelona á Spáni.
Formúla 1
NBA verðlaunar bestur frammistöðuna í janúar:
Garnett bestur annan mánuðinn í röð
KÖRFUBOLTI Kevin Garnett hjá
Minnesota Timberwolves og Mich-
ael Redd hjá Milwaukee Bucks voru
í gær valdir bestu leikmenn janúar-
mánaðar í NBA-deildinni í körfu-
bolta, Garnett í Vesturdeildinni en
Redd í Austurdeildinni. Þetta er
annar mánuðurinn í röð sem Gar-
nett hlýtur þessi verðlaun en hann
hefur leikið frábærlega með Tim-
berwolves í vetur og þykir líklegur
til að vera kosinn leikmaður ársins.
Garnett skoraði 23,8 stig, tók nið-
ur 14,7 fráköst, sendi 5,1 stoðsend-
ingu að meðaltali í 15 leikjum
Minnesota í janúar en liðið vann 12
af þeim sem er félagsmet í janúar
hjá liðinu í þessum fyrsta mánuði
ársins. Garnett náði 14 tvennum og
einni þrefaldri tvennu í þessum 15
leikjum. Redd skoraði 22,4 stig, tók
4,2 fráköst og sendi 1,9 stoðsend-
ingu að meðaltali í 16 leikjum Bucks
en liðið vann 11 leiki í janúar. Redd
skoraði tvisvar 40 stig í mánuðinum
sem er það besta sem hann hefur
gert til þessa í NBA-deildinni.
Aðrir sem þóttu skara fram úr af
leikmönnum NBA-deildarinnar í
janúar voru Carlos Boozer og Le-
Bron James hjá Cleveland, Dirk
Nowitzki hjá Dallas, Ben Wallace
hjá Detroit, Jermaine O'Neal hjá
Indiana, Elton Brand hjá Los Angel-
es Clippers, Sam Cassell hjá
Minnesota, Tracy McGrady hjá
Orlando og Peja Stojakovic hjá
Sacramento. ■
„Eftir hverju eru
mennirnir að slægjast?“
Viggó Sigurðsson hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari Íslandsmeistara Hauka í handbolta.
Áður hafði honum verið tilkynnt af stjórn félagsins að hann yrði rekinn eftir þessa leiktíð.
HANDBOLTI Viggó var með samning
við Hauka til loka næstu leiktíðar.
Hann ákvað að hætta störfum und-
ir eins í staðinn fyrir að klára
þessa leiktíð eins og stjórn félags-
ins hafði falast eftir við hann.
Haukar eru sem stendur í öðru
sæti suðurdeildar Íslandsmótsins
og luku nýverið þátttöku sinni í
meistaradeildinni eftir frækilega
frammistöðu.
Viggó segist vera leiður yfir
málavöxtum. „Það er ekki hægt að
segja annað. Þetta kom mér mjög
á óvart.“ Hann segir að skýringin
fyrir uppsögninni hafi verið sú að
hann hefði ekki lengur traust
stjórnarinnar og henni hefði fund-
ist komið nóg. „Það er þá væntan-
lega af minni persónu. Ég spurði
hvort það væri komið nóg af titl-
um eða velgengni en ég fékk eng-
ar frekari skýringar. Við ræddum
saman í morgun [gærmorgun].
Þeir lögðu hart að mér að klára
tímabilið en með þetta á bakinu þá
get ég ekki unnið ef það er ekki
traust stjórnarinnar.“
Viggó vill ekkert láta hafa eftir
sér um vinnubrögð stjórnarinnar
og vill frekar láta aðra dæma um
það. „Við höfum átt gott samstarf.
Þessi blessaða stjórn sem kemur
með þessa samþykkt, ég hef aldrei
séð hana. Ég veit ekki einu sinni
hverjir sitja í stjórn handknatt-
leiksdeildar Hauka. Einu sam-
skiptin sem ég á eru við formann
deildarinnar, Eið Arnarson, og þau
hafa alla tíð verið mjög góð. Sem
og við aðra í Haukum, bæði leik-
menn og aðra,“ segir Viggó.
Hann játar að eiga erfitt með
að skilja ákvörðun stjórnarinnar.
„Ef maður horfir á árangurinn
sem liðið hefur náð undir minni
stjórn miðað við 70 ára sögu
félagsins þá spyr maður auðvitað:
„Eftir hverju eru mennirnir að
slægjast? Hvaða markmiðum á
nýr þjálfari eiginlega að ná? Ég
hef unnið níu titla á þremur og
hálfu ári,“ segir hann.
Viggó þvertekur fyrir að eitt-
hvað annað sé í sigtinu núna og
segist einungis vera að sleikja sár-
in og safna orku. „Það var ekkert
annað í sigtinu en að klára þennan
samning, en auðvitað veit maður
aldrei hvað framtíðin ber í skauti
sér.“ Hann bætir því við að ekki
komi til greina að taka við öðru liði
á þessari leiktíð, hvorki innlendu
né erlendu. „Ég er með stóra fjöl-
skyldu og hef ekki tök á að rjúka
til útlanda. Ég sé ekki fyrir mér að
ég fari að taka við einhverju liði
núna.“
Viggó fékk nýverið fyrispurn
frá liði í þýsku Bundesligunni
þegar hann var enn samnings-
bundinn Haukum. Þess vegna
ákvað hann að hafna frekari við-
ræðum. Hann segist ekki vera
svekktur núna yfir því að hafa
tekið þá ákvörðun. „Ég er ekkert
ákveðinn í því að fara aftur út.
Það hefði þurft ansi mikið til að ég
færi af stað á þeim tímapunkti. En
eins og ég segi þá gekk ég út frá
því að ég væri áfram við stjórn-
völinn hjá Haukum og vissi ekki
betur.“
Halldór Ingólfsson, fyrirliði
Hauka, stjórnaði æfingu liðsins í
fyrrakvöld. Ekki er víst hvort
hann verði næsti þjálfari liðsins,
eða hvort Páll Ólafsson aðstoðar-
þjálfari taki við stjórnartaumun-
um. Eiður Arnarson, formaður
handknattleiksdeildar Hauka,
vildi ekki tjá sig um málið við
blaðamenn í gær og sagðist vera í
felum.
freyr@frettabladid.is
BESTU LEIKMENN
MÁNAÐARINS Í NBA
Nóvember 2003
Austurdeildin: Baron Davis, New Orleans
Vesturdeildin: Peja Stojakovic, Sacramento
Desember 2003
Austurdeildin: Jermaine O'Neal, Indiana
Vesturdeildin: Kevin Garnett, Minnesota
Janúar 2004
Austurdeildin: Michael Redd, Milwaukee
Vesturdeildin: Kevin Garnett, Minnesota
KEVIN GARNETT
Hefur verið valinn besti leikmaður Vestur-
deildarinnar tvo mánuði í röð.
Jacques Santini, landsliðsþjálfari Frakka, er tilbúinn að grafa stríðsöxina:
Á Anelka afturkvæmt í landsliðið
FÓTBOLTI „Nicolas Anelka útilokaði
sjálfan sig með því að afþakka sæti
í landsliðshópnum,“ sagði Jacques
Santini, landsliðsþjálfari Frakka.
„Ef hann breytir ekki yfirlýsingum
sínum og afstöðu að eigin frum-
kvæði verður að mínu mati ógjörn-
ingur að velja hann.“
Ef marka má þessi orð þá er An-
elka ekki inni í myndinni þegar
Frakkar búa sig undir Evrópumótið
í Portúgal í sumar. Anelka afþakk-
aði sæti í hópnum sem lék við
Möltumenn og Slóvena í und-
ankeppni EM í október 2002. Hon-
um var misboðið vegna þess að
hann var aðeins valinn í forföllum
annarra og Santini gerði honum
strax ljóst að með þessari ákvörðun
væri hann að útiloka sjálfan sig frá
landsliðinu í framtíðinni.
Thierry Henry og David
Trezeguet verða án nokkurs vafa í
hópi Frakka en óljóst er hvaða aðrir
framherjar Santini velur. Djibril
Cisse, sem fer til Liverpool fyrir
næstu leiktíð, kom sterklega til
greina. Hann fékk hins vegar fimm
leikja bann fyrir að sparka í mót-
herja í leik með U21 landsliðinu og
hefur UEFA aftekið með öllu að
milda dóminn.
Steve Marlet hjá Olympique
Marseille hefur verið meiddur í vet-
ur og Daniel Moreira hjá Lens og
Sidney Govou hjá Olympique Lyon
hafa ekki fundið sig í vetur. Louis
Saha, sem gekk til liðs við
Manchester United í síðasta mán-
uði, og Peguy Luyindula hjá Lyon
koma einnig til greina.
Santini hefur ekki gefið neitt upp
um hugsanlega endurkomu Anelka
en Claude Simonet hjá franska
knattspyrnusambandinu gaf í skyn
að breytingar gætu verið í vændum.
„Kannski var þetta unggæðings-
háttur hjá Nicholas sem við ættum
að gleyma,“ sagði Santini.
Sjálfur kallar Anelka þetta sam-
skiptaörðugleika. „Ég hef aldrei
skilið hvað Santini er að reyna að
segja mér,“ sagði Anelka.
Robert Pires, leikmaður Arsenal,
telur að Anelka eigi að vera í liðinu.
„Nicolas á skilið sæti í liðinu, bara
vegna hæfileikanna.“ Möguleikinn
á því virðist þó frekar byggja á auð-
mýkt en hæfileikum. „Ef hann
skríður fyrir mér og biðst afsökun-
ar mun ég hugleiða málið,“ sagði
Santini landsliðsþjálfari. ■
NICOLAS ANELKA
Ég hef aldrei skilið hvað Sant-
ini er að reyna að segja mér.
VIGGÓ SIGURÐSSON
Sleikir sárin og safnar orku.
Hann skilur hvorki upp né
niður í ákvörðun stjórnar
Hauka.
Enskur umboðsmaður:
Ólögleg
félagaskipti
algeng
FÓTBOLTI Ölögleg félagaskipti eru
mjög algeng í enska boltanum, að
sögn vinsæls umboðsmanns í
landinu. Hann sagði í samtali við
BBC að bæði félög og umboðs-
menn brjóti hvað eftir annað
reglugerðir bæði FIFA og enska
knattspyrnusambandsins.
Graham Bean, fyrrum yfir-
maður hjá enska knattspyrnusam-
bandinu, viðurkennir að nánast
ómögulegt sé fyrir sambandið að
eiga við þessi félagaskipti. „Í
hvert skipti sem maður heldur að
allt sé komið í réttan farveg sést
alltaf einhver glufa í reglunum,“
sagði hann. Ólöglegt er fyrir félög
eða umboðsmenn að ræða við leik-
menn annarra liða nema bæði
félögin sem um ræðir hafi þegar
samþykkt félagaskiptin. „Raun-
veruleikinn er sá að oftast er talað
við leikmenn áður en tilboð kemur
inn,“ sagði Bean. „Það þýðir að
félagið sem kaupir leikmanninn
hefur þegar góða hugmynd um
það hvort leikmaðurinn vill koma
eða ekki áður en það skellir tilboð-
inu á borðið.“ ■
KEVIN KEEGAN
Manchester City ætlar að áfrýja rauða
spjaldinu sem Nicolas Anelka fékk gegn
Arsenal á sunnudaginn.
Kevin Keegan:
City ætlar að
áfrýja
FÓTBOLTI Kevin Keegan, knatt-
spyrnustjóri Manchester City, ætl-
ar sér að áfrýja rauða spjaldinu
sem franski framherjinn, Nicolas
Anelka, fékk gegn Arsenal á
sunnudaginn og hefur hann beðið
Alan Wiley, dómara leiksins, að
viðurkenna að hann hafi haft rangt
fyrir sér þegar hann vísaði Anelka
út af og draga spjaldið til baka.
Keegan sagði strax eftir leik að
það væri tilgangslaust að reyna að
áfrýja spjaldinu en honum hefur
greinilega snúist hugur eftir að
hann sá atvikið á nýjan leik í sjón-
varpinu. Anelka mun missa af
þremur leikjum ef hann fær ekki
rauða spjaldið fellt niður, nokkuð
sem er bagalagt fyrir Kevin Keeg-
an þar sem Frakkinn hefur verið
langhættulegasti leikmaður liðsins
í vetur. ■