Fréttablaðið - 05.02.2004, Síða 45
FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004
Lærið gundvallaratriðin í þessu vinsæla
teikniforriti.
N Á M S K E I Ð
F R A M U N D A N
AutoCad
– grunnnámskeið
Gerð PDF-skjala fyrir hina ýmsu miðla:
Netið, rafbækur, laserprentara o.m.fl.
Acrobat (PDF)
– grunnnámskeið
Viltu læra að taka upp vídeó, klippa
og hljóðsetja fyrir kennslu eða vefinn?
Nánari upplýsingar á vefnum:
http://namskeid.ir.is
og í síma 522 6500
Stafræn
myndvinnsla,
t.d. fyrir kennara
Fullt af
skemmtilegum
námskeiðum
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Skólavörðuholti • 101 Reykjavík
Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is
GÚSTA
DREW BARRYMORE
Leikkonan Drew Barrymore fékk
loks stjörnu með nafni sínu á stétt
göngugötunnar Hollywood Walk
of Fame á þriðjudag. Hér sést hún
við það tækifæri á athöfninni
þegar stjarnan var opinberuð.
KVIKMYNDIR Bresku leikkonurnar
Emma Thompson og Martine
McCutcheon, sem báðar fóru með
stór hlutverk í rómantísku gaman-
myndinni Love Actually, stálu sen-
unni á Empire-verðlaunahátíðinni í
London í gærkvöld. Thompson var
valin besta breska leikkonan og
McCutcheon, sem heillaði Hugh
Grant upp úr skónum í Love Actu-
ally, var valin besti nýliðinn fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
Love Actually gerði það yfir höf-
uð gott á þessari árlegu verðlauna-
athöfn breska kvikmyndatímarits
en myndin var einnig valin besta
breska myndin.
Það kom fáum á óvart að The Re-
turn of the King skyldi valin besta
myndin en þetta er þriðja árið í röð
sem lesendur Empire velja mynd úr
Hringadróttinssögu í þessum flok-
ki. Andy Serkis, sem leikur Gollum
í LOTR, var valinn besti breski leik-
arinn.
Aliens-stjarnan Sigourney Wea-
ver var verðlaunuð fyrir ævistarf
sitt í kvikmyndum. Johnny Depp
var valinn besti leikarinn fyrir The
Pirates of the Carribean og Uma
Thurman vann sem besta leikkonan
fyrir leik sinn í Kill Bill Vol 1.
Quentin Tarantino fékk verðlaun
fyrir bestu leikstjórn fyrir Kill Bill
en hann er í sérstöku uppáhaldi hjá
ritstjórn Empire sem hampar hon-
um við hvert tækifæri. Það er þó
ekki ritstjórnin sem ræður úrslitun-
um heldur lesendur en þeir greiddu
alls 15.000 atkvæði í kosningunum
sem verðlaunin byggja á.
Jude Law, Ewan McGregor, John
Hurt, Kenneth Branagh, Claudia
Schiffer og David Ginola voru í
stjörnufansinum sem mætti á verð-
launaafhendinguna. ■
JOHNNY DEPP
Er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir túlk-
un sína á sjóræningjanum Jack Sparrow
og er nú þegar búinn að krækja í Empire-
verðlaunin.
MARTINE MCCUTCHEON
Kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarps-
þáttunum EastEnders, sló síðan í gegn í
Love Actually og kom, sá og sigraði á
Empire-verðlaununum.
Ástin hirðir
verðlaunin
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvar barnið þitt er í kvöld?