Fréttablaðið - 08.02.2004, Page 10
Davíð Oddsson, forsætisráð-herra, og Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, gerðu
fréttavikuna að sinni með föst-
um skotum hvor á annan í fjöl-
miðlum. Deilan snerist um fund-
arboð og skíðaferðir og þótt að-
alleikendurnir hafi tekið sér
fastmótuð og gamalkunn hlut-
verk er almenningur hálf ráð-
villtur eftir snerruna og veit
ekki hvað snýr upp né niður í
stóra heimastjórnarmálinu. Dav-
íð lék eineltispúkann með bravúr
og Ólafur Ragnar glansaði sem
regnbogabarnið og klagaði Dav-
íð til yfirmanna beggja, íslensku
þjóðarinnar, sem brást við eins
og kleyfhuga skólastjóri sem
veit ekki hvernig hann á að
greiða úr stympingum á skóla-
lóðinni.
Deila forsetans og forsætis-
ráðherrans er flókin og illskilj-
anleg en þar sem hún virðist í
grunninn vera persónuleg væri
ekki úr vegi að þeir leiddu hana
til lykta með gamaldags burt-
reiðum í Lækjargötu að hætti
miðaldariddara. Davíð var ein-
mitt teiknaður í fullum herklæð-
um vopnaður lensu í útskriftar-
bókinni Faunu í MR á sínum
tíma og Ólaf ætti ekki að muna
um að ríða gegn ráðherranum
vopnaður skíðastaf.
Þessar skærur Davíðs og
Ólafs eru í hnotskurn álíka kjána-
legar og deilan sem blossaði upp
milli rokkhundanna í Mínus og
miðaldra æskulýðsfulltrúa í vik-
unni. Mínusmenn hafa gaman af
því að tala digurbarkalega um
kynlíf og dóp svo lengi sem ömm-
ur þeirra frétti ekki af því en
æskulýðsfulltrúarnir vilja ekki
bara hlífa ömmunum við munn-
söfnuðinum, heldur íslenskri
æsku eins og hún leggur sig.
Hljómsveitin og forræðishyggju-
fulltrúarnir virðast þó vera sam-
mála um það að íslenskir ung-
lingar séu viljalausir kjánar.
Fulltrúarnir vilja vernda krakk-
ana fyrir Mínus og Mínus vill
bjarga unga fólkinu frá því að
verða steypt í eitt SAMFÉS-mót.
Deilur forseta og forsætisráð-
herra gera lítið úr almenningi og
deilur rokkaranna og æskulýðs-
páfanna gera lítið úr unga fólk-
inu. Það versta við þetta inni-
haldslausa moldviðri er svo að
stærsta frétt vikunnar, um
barnaklámssafnara sem bíður
dóms en lætur það ekki aftra sér
frá því að tæla unglinga á Net-
inu, týndist í látunum. Það er
móðgun við heilbrigða skyn-
semi, almenning og börn sem
þarf að vernda fyrir einhverju
miklu hættulegra en kjaftagleið-
um þungarokkurum. ■
Al Gore, fyrrum varaforsetiBandaríkjanna og forseta-
frambjóðandi Demókrataflokks-
ins, er einhver þekktasti stjórn-
málamaður Bandaríkjanna. Hann
vann í raun sigur á George W.
Bush í síðustu forsetakosningum,
sé einungis litið á fjölda atkvæða.
Þrátt fyrir allt þetta, og hina yfir-
gripsmiklu þekkingu sem Al Gore
hefur á stjórnmálum, virðist
stuðningsyfirlýsing frá þessum
mikla stjórnmálamanni ekki
gagnast neitt sérstaklega vel. Að
minnsta kosti hefur hún ekki
reynst Howard Dean sá happa-
fengur sem Dean sjálfur taldi að
hún yrði framboði hans.
Gore magnaði andstöðuna
Allt frá því að Al Gore lýsti
yfir stuðningi við Dean, og kom
brosandi fram með hinum sigur-
vissa frambjóðanda í forvali
Demókrataflokksins, hefur Dean
tapað fylgi hægt og bítandi. Gár-
ungar í stjórnamálakreðsunni í
Washington ganga jafnvel svo
langt að kenna Al Gore alfarið um
að Dean hafi misst fylgi, og gant-
ast gjarnan með kenningar þess
efnis. Talað er um hina dauðu
hönd Al Gore. Þá vakti það athygli
að Howard Dean sjálfur lýsti því
yfir í viðtali hjá Larry King, að
hann sæi ekki betur en upphafið
að falli hans mætti rekja til stuðn-
ingsyfirlýsingar Gores. En það
var ekki vegna þess, hélt Dean
áfram, að Gore væri svona slæm-
ur heldur þvert á móti: „Þegar Al
Gore lýsti yfir stuðningi við mig,
þá magnaðist andstaðan gegn
mér, því hinir frambjóðendurnir
sáu að ég gat raunverulega orðið
forseti.“
Gekk framhjá Lieberman
Fólk veltir því nú fyrir sér hvort
Gore hafi verið full fljótfær þegar
hann lýsti yfir stuðningi við Dean.
Hann gæti þurft að súpa seyðið af
þeirri ákvörðun sinni. Hugsanlega
vildi Gore tryggja að hann yrði þar
með áberandi í stjórnmálum allt
fram á kjördag, á miðju sviðinu,
þegar sigurganga Deans færi fram.
Þar með hefði hann getað haldið
sjálfum sér í umræðunni og haldið
opnum þeim möguleika að hann
yrði forsetaefni árið 2008. En Gore
virðist ekki ætla að verða kápan úr
því klæðinu.
Það vakti jafnframt athygli að
Gore skyldi hafa verið svo fljótur
að lýsa yfir stuðningi við Dean,
einkum í ljósi þess að á meðal
frambjóðenda var Joseph
Lieberman, sem var varaforseta-
efni Gore árið 2000. Að Gore
skyldi ganga svo ákveðið fram hjá
honum þykir benda til þess að
hann hafi hugsanlega látið tæki-
færismennsku leiða sig í gönur að
þessu sinni. ■
10 8. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Rafpóstur auglýsingadeildar:
auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Í svari viðskiptaráðherra til míná Alþingi um eftirlit með fjár-
málafyrirtækjum kemur fram að
Fjármálaeftirlitið hafi í nokkuð
mörgum tilfellum gert athuga-
semdir við afgreiðslu lánveitinga
til stjórnarmanna, framkvæmda-
stjóra og aðila tengda þeim. Í
mörgum tilvikum gerði Fjármála-
eftirlitið athugasemdir um hæfi
til afgreiðslu lánveitinga og að
lánveitingar til forsvarsmanna
lífeyrissjóðanna hafi verið hærri
en hámarkslán samkvæmt lána-
reglum sjóðins og veðhlutfall ekki
í samræmi við lánareglur. Það er
auðvitað grafalvarlegt mál ef for-
svarsmenn lífeyrissjóða eru að
misnota aðstöðu sína og hygla
sjálfum sér eða tengdum aðilum
með lánveitingum sem hvorki
standast lög eða reglur.
Úrræði Fjármálaeftirlitsins
Það vekur líka upp áleitnar
spurningar þegar forsvarsmenn
lífeyrissjóða verða uppvísir að
lögbroti og alvarlegum siðferðis-
bresti. Nauðsynlegt er að fara yfir
ákvæði laga og reglna sem lúta að
hagsmunatengslum og hæfi
stjórnenda og skoða hvort rétt sé
að skerpa á þeim ákvæðum gagn-
vart forsvarsmönnum lífeyris-
sjóða. Jafnframt þarf að fara yfir
þau úrræði sem Fjármálaeftirlitið
getur beitt til að sporna gegn því
að stjórnendur lífeyrissjóða mis-
noti aðstöðu sína og þarf eftirlitið
að hafa skýr úrræði til að beita
viðurlögum við slíkum brotum.
Jafnframt þarf að tryggja að Fjár-
málaeftirlitið hafi heimild til að
greina opinberlega frá beitingu
slíkra viðurlaga.
Hagsmunaárekstrar
Í svari ráðherra kemur einnig
fram að um 70% stjórnarmanna
stærstu lífeyrissjóða sitji í stjórn-
um hlutafélaga eða einkahluta-
félaga. Að meðaltali sitja þessir
stjórnarmenn í fjórum stjórnum
félaga, hlutafélaga eða einka-
hlutafélaga. Spyrja má hvort það
sé eðlilegt að stjórnarmenn sitji í
stjórnum fyrirtækja sem þeir
fjárfesta í, að ekki sé talað um hjá
mörgum fyrirtækjum í atvinnulífi
og á fjármálamarkaði. Það getur
hugsanlega boðið upp á ýmsa
hagsmunaárekstra og misnotkun
á aðstöðu, bæði í fjárfestingum og
eigin þágu. Stjórnarmennirnir
starfa í umboði fólksins í landinu
sem á lífeyrissjóðina og þeir eiga
ekki að vera í þeirri aðstöðu að
trúverðugleiki þeirra sé dreginn í
efa. Vissulega er eðlilegt að þegar
lífeyrissjóðirnir fá í krafti mikilla
fjárfestinga seturétt í stjórnum
fyrirtækja sé þar gætt hagsmuna
lífeyrissjóðanna og fulltrúar
þeirra eigi þar sæti. Eðlilegra og
réttara væri þó að stjórnir lífeyr-
issjóðanna tilnefndu óháða aðila í
stjórnir fyrirtækja sem þeir fjár-
festa í, sem síðan væru ábyrgir
um allar gjörðir sínar fyrir stjórn-
um lífeyrissjóðanna. Full ástæða
er líka til að hugleiða hvort ekki
eigi að setja þak á stjórnarsetu
stjórnarmanna í lífeyrissjóðum,
þannig að sömu mennirnir sitji
þar ekki árum og áratugum sam-
an, enda sitja þeir ekki þar í krafti
eigin eigna í fyrirtækjunum held-
ur í umboði fólksins sem á lífeyr-
issjóðina.
Lagabrot gerð opinber
Eignir landsmanna í lífeyris-
sjóðunum nema um 800 milljörð-
um króna, sem samsvarar nálægt
þreföldum fjárlögum íslenska rík-
isins. Stjórnarmenn lífeyrissjóða
bera því gífurlega ábyrgð, ekki
síst varðandi arðsama fjárfest-
ingu á þessum sjóði fólksins.
Ástæða er til að nefna að í árs-
skýrslu Fjármálaeftirlitsins fyrir
sl. ár kemur fram að brögð hafi
verið að því að fjárfestingar-
stefna lífeyrissjóða hafi ekki ver-
ið í samræmi við reglur sem um
hana gildir og hafa margvíslegar
athugasemdir verið gerðar við
sjóðina í þessu sambandi og kraf-
ist úrbóta. Full ástæða er til að
Fjármálaeftirlitið hafi heimildir
til að birta það opinberlega þegar
lög og reglur eru brotnar hjá líf-
eyrissjóðum, tryggingafélögum
eða fjármálafyrirtækjum. Það
veitir markaðnum nauðsynlegt
aðhald að hafa slíkt gegnsæi ef
misfarið er með fé, hagsmuna-
árekstrar eru uppi eða hæfisskil-
yrði ekki uppfyllt. Því ber að
fagna að Fjármálaeftirlitið sjálft
hefur sett af stað umræðu m.a.
innan fjármálafyrirtækja um
hvort rýmka eigi heimildir Fjár-
málaeftirlitsins til að greina opin-
berlega frá framkvæmd eftirlits
og niðurstöðum í einstökum mál-
um. Eftirlitsskyldir aðilar eiga þó
ekki að hafa úrslitaáhrif á hvort
gegnsæi í störfum Fjármálaeftir-
litsins verður aukið, heldur Al-
þingi. ■
Um gyð-
ingahatur
Þorsteinn Baldursson skrifar:
Íslendingurinn IngimundurKjarval, búsettur í New York,
skrifaði pistil í Fréttablaðið 2.
febrúar um gyðingahatur sem
honum finnst Íslendingar vera illa
haldnir af.
Eins og Ingimundur veit voru
90% Íslendinga jákvæð gagnvart
gyðingum þar til fyrir þremur
árum, en í dag eru jafnvel 90% Ís-
lendinga mjög neikvæð gagnvart
gyðingum. Hvers vegna?
Sharon forsætisráðherra Ísra-
els er dæmdur stríðsglæpamaður
og það af ísraelskum dómstól fyrir
glæpaverk og morð í Líbanon fyrir
nokkrum árum. Fyrir yfirstand-
andi morð og glæpaverk er ekki
búið að dæma Sharon og hans
stjórn. En það er alveg dagljóst að
stjórn hans og ísraelski herinn
verði dæmd af stríðsglæpadómstól
í náinni framtíð rétt eins og þýsku
nasistarnir voru á sínum tíma.
Þegar ísraelskum gyðingum er
bent á hversu alvarlegt þetta er þá
er eina svarið, þetta er bara gyð-
ingahatur. Íslendingnum í New
York er vorkunn, hann veit ekki
betur, enda er New York höfuð-
borg gyðinga í heiminum. Annað
líka, fjölmiðlar í Bandaríkjunum
eru flestir undir stjórn gyðinga,
samanber að CNN játaði að vera
með tvær útgáfur af fréttum um
morð og glæpi í Palestínu. Önnur
útgáfan er sú rétta, fyrir Evrópu-
búa, en hin þar sem verstu glæpa-
verkum ísraelska hersins er sleppt
eða mildað fyrir Bandaríkjamenn.
Höfundur þessa pistils dvelur oft í
Bandaríkjunum og veit af eigin
raun að fólk fær ekki rétta mynd
af málunum þar. ■
Umræðan
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
■
skrifar um lífeyrissjóði.
Brotalamir í starf-
semi lífeyrissjóða
■ Bréf til blaðsins
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
Opið í dag frá kl. 13.00 - 17.00
Útsölulok
Algjört verðhrun
Smáa letrið
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
■ er sármóðgaður fyrir hönd barna,
unglinga og kjósenda eftir að hafa fylgst
með helstu fréttum vikunnar.
Úti í heimi
■ Al Gore virðist hafa veðjað á rangan
hest þegar hann lýsti yfir stuðningi við
Howard Dean.
HOWARD DEAN
Stjórnmálaspekingar í Bandaríkjunum velta því nú fyrir sér hvort það sé gott eða slæmt
að fá stuðningsyfirlýsingu frá Al Gore. Það virðist ekki hafa gagnast Dean.
Dean nýtur ekki
góðs af Al Gore
Ólafur og Davíð í mínus