Fréttablaðið - 08.02.2004, Síða 30
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Icelandic Hotel Selfoss . Eyrarvegi 2 . 800 Selfoss . selfoss@icelandichotels. is . www.icelandichotels. is
l á t t u o k k u r u m
skipulagið
við gerum tilboð í
aðrar
árshátíðir, ráðstefnur,
fundi &
uppákomur
HOTELSELFOSS
SÍMI 480 2500
Það er ekki á hverjum degi semÍslendingum býðst beint flug á
Samaslóðir. Þó er flugtíminn
þangað ekki nema rétt rúmlega
þrír klukkutímar. Reynir Ingi-
bjartsson hefur haft veg og vanda
af skipulagningu ferðar á þessar
slóðir í sumar í samvinnu við
Samís, vináttufélags Sama og Ís-
lendinga, og Úrvals-Útsýnar.
Hann var spurður um tildrög þess
að hann tengist þessum nyrsta
hluta Evrópu.
„Fyrir 30 árum stóð Norræna
félagið fyrir námskeiði í sænsku í
Norður-Svíþjóð. Ég fór þangað í
fyrsta hópi Íslendinga og þar
kynntist ég konu minni. Síðan hef
ég tengst þessu svæði,“ segir
Reynir, sem síðan hefur ferðast
heilmikið um þessar slóðir.
Á árum áður voru farnar all-
nokkrar ferðir á þessar slóðir en
síðan féllu þær niður um skeið.
Það var svo eftir að Samís var
stofnað að áhugi vaknaði að nýju á
þessum ferðum og fyrir algera til-
viljun komst skyndilega skriður á
málið nú um miðjan janúar. „Ég
var í sundi og heyrði í íslenskum
manni í heita pottinum sem er bú-
settur rétt sunnan við Kirkenes.
Hann var þá að vinna í því að
koma á ferð til Íslands. Það er svo
mikið af fólki á
þessum slóðum
sem hefur áhuga
á að koma hing-
að. Þær eru
stundum skrýtn-
ar tilviljanirn-
ar.“
Árangurinn
er 10 daga ferð
um fjögur lönd,
Noreg, Svíþjóð,
Finnland og
Rússland. „Við
köllum þetta
Jónsmessuferð
á Samaslóðir –
fjögurra landa
sýn.“
Reynir bend-
ir á að þessi
svæði sem farið
verði um séu al-
veg gríðarlega
n o r ð a r l e g a .
„Þarna sest sól-
in ekki í tvo
mánuði á ári og
að sama skapi
verður ekki
heldur bjart í
tvo mánuði á
ári.“ Veðráttan
er þó ótrúlega
mild og jafnvel
meiri hiti þar á
sumrin en hér á
Íslandi að sögn
Reynis.
Ferðast verður í rútum um
löndin fjögur og í ferðinni eru
innifaldar allar rútuferðir, gisting
og uppihald. Að sjálfsögðu gefst
fólki líka kostur á að kaupa ein-
göngu flugfarið. „Þarna eru auð-
vitað möguleikar að ferðast um á
eigin vegum og fyrir útivistarfólk
er þarna úr miklu að moða, til
dæmis er verið að skipuleggja
gönguferðir á Kólaskaga og svo
eru þarna miklar laxveiðiár.“
Flogið verður héðan 25. júní og
komið heim aftur aðfaranótt 5.
júlí. Nánari upplýsingar eru veitt-
ar hjá Úrvali-Útsýn í Kópavogi. ■
Á FERÐAKAUPSTEFNU Á NORDICA
Icelandair stóð fyrir ferðakaupstefnunni Mid Atlantic um helgina. Þetta er tólfta ár kaupstefn-
unnar, sem er mikilvægur liður í markaðsstarfi Icelandair til þess að fjölga erlendum ferða-
mönnum til Íslands ásamt því að auka ferðamannastraum milli Evrópu og Bandaríkjanna.
ÍT ferðir/
Bjóða
gönguferðir
á Spáni
Eins og í fyrra býður Ferðaskrif-stofan ÍT ferðir upp á viku
gönguferð í Pýreneafjöllunum á
Spáni og verður flogið utan þann 5.
júní. Á vefsíðu ÍT ferða segir að
gengið verði milli fjallaskála í Or-
desa-þjóðgarðinum í fylgd frá-
bærra spænskra leiðsögumanna og
gengið yfir til Frakklands þar sem
gist verði í tvær nætur.
Gangan mun frekar ætluð vönu
göngufólki og er boðið upp á auka
viku í strandbænum Tossa de Mar.
ÍT ferðir kynna einnig lúxus-
gönguferð um Costa Brava á Spáni
á sama tíma en þar verður gengið
milli þorpa á ströndinni. Gangan er
tilvalin fyrir fjölskyldur og aðra
hópa sem vilja ferðast saman og
verður gist í bæjunum Tossa de Mar
eða Playa d’Aro, rétt norðan
Barcelona. Í boði er auka vika í
Tossa de Mar. ■
Bobby Charlton-skólinn
Ian Bateman, skólastjóri Bobby Charlton-skólans, kem-ur til Íslands og verður með kynningu á skólanum á
morgun og þriðjudag. Á morgun verður sýnikennsla í
Boganum á Akureyri kl. 17 og kynningarfundur í félags-
heimili Þórs að Hamri. Á þriðjudag verður kynningar-
fundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík kl.
20. Félögum býðst einnig að fá Ian í heimsókn eftir því
sem tími hans leyfir. Viku til tíu daga ferðir verða í lok
júlí og byrjun ágúst en lið geta einnig komist að um pásk-
ana. Nánari upplýsingar fást hjá ÍT ferðum og á www.it-
ferdir.is ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
NORDKALOTTEN
Hér sást löndin fjögur sem farið verður til.
KIRKENES
Flogið verður í beinu flugi til Kirkenes.
Ferð á Samaslóðir:
Sprottin upp úr heita pottinum
REYNIR INGI-
BJARTSSON
Reynir hefur haft
veg og vanda af
skipulagningu 10
daga ferðar á Sama-
slóðir í sumar.