Fréttablaðið - 08.02.2004, Síða 41
41SUNNUDAGUR 8. febrúar 2004
Erki Nool-mótið:
Jón Arnar sjötti eftir fyrri daginn í Tallinn
FÓTBOLTI Sigurmark Frank
Baumann á lokamínútu leiksins
gegn Borussia Mönchengladbach
færði Werder Bremen sjö stiga
forskot í þýsku Búndeslígunni í
gær. Baumann skoraði eftir mik-
inn atgang við mark Borussia.
Brasilíumaðurinn Ailton sendi
boltann fyrir markið úr horn-
spyrnu, Valérien Ismaël skallaði
boltann áfram til Ivan Klasnic
sem skaut að marki. Jörg Stiel
varði skotið en boltinn hrökk til
Baumann, sem sendi frákastið í
markið af markteig. Fyrri hálf-
leikur var án marka en Václav
Sverkos færði Borussia forystu á
51. mínútu og Ivan Klasnic jafn-
aði þremur mínútum síðar.
Dortmund vaknaði til lífsins og
vann Wolfsburg 4-2 á útivelli en
Bayer Leverkusen fataðist illa flug-
ið og tapaði 2-1 á heimavelli fyrir
Eintracht Frankfurt. Oliver Neu-
ville skoraði mark Bayer en Ingo
Hertzsch og Ioannis Amanatidis
skoruðu mörk Frankfurt, sem gerði
jafntefli við meistara Bayern
München um síðustu helgi.
Kaiserslautern vann mikilvæg-
an sigur á Köln í botnbaráttunni.
Tékkinn Vratislav Lokvenc skor-
aði eina mark leiksins um miðjan
fyrri hálfleik eftir sendingu
Portúgalans José Dominguez.
Hansa Rostock fékk dýrmæt
stig í botnbaráttunni með 4-1
sigri á Freiburg. Antonio di
Salvo færði Hansa forystuna
snemma leiks en Wilfried Sanou
jafnaði. Magnus Arvidsson,
Gernot Plassnegger og namib-
íski landsliðsmaðurinn Razund-
ara Tjikuzu skoruðu á síðast
korterinu og tryggðu Hansa ör-
uggan sigur.
Þórður Guðjónsson var ekki í
liði Bochum sem gerði 1-1 jafn-
tefli við Hamburg. Sören Cold-
ing skoraði fyrir Bouchm þegar
tuttugu mínútur veru til leiks-
loka en Bernardo Romeo jafnaði
með skalla tíu mínútum síðar. ■
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Jón Arnar
Magnússon er sjötti eftir fyrri
daginn á sjöþrautarmótinu í Tall-
in. Tékkinn Roman Sebrle er
fyrstur og hefur 134 stiga forskot
á Bandaríkjamanninn Bryan Clay.
Í gær var keppt í fjórum greinum
en í dag verður keppt í 60 metra
grindahlaupi, stangarstökki og
1.000 metra hlaupi.
Jón Arnar varð áttundi í fyrstu
grein mótsins, 60 metra hlaupi.
Hann hljóp á 7,09 sekúndum,
sama tíma og í fyrra, en það gaf
honum 851 stig. Bandaríkjamað-
urinn Bryan Clay varð fyrstur á
6,81 sekúndu, Eistlendingurinn
Kristjan Rahnu hljóp á 6,90 sek-
úndum og gestgjafinn Erki Nool
varð þriðji á 6,96 sekúndum.
Fjórði varð Hollendingurinn Chiel
Warners á 6,99 sekúndum en hann
sigraði í riðlinum sem Jón Arnar
Keppti í.
Jón Arnar stökk 7,31 metra í
langstökki og varð fimmti en
Tékkinn Roman Sebrle sigraði
með stökki sem mældist 7,84
metrar. Sebrle fékk 1.020 stig fyr-
ir langstökkið og tók forystu sem
hann hélt til loka keppninnar í
gær. Jón Arnar stökk 7,13 metra á
stigamóti Breiðabliks fyrir fjór-
um vikum.
Jón Arnar kastaði 15,95 metra í
kúluvarpi og varð þriðji. Á mótinu
í fyrra kastaði hann 15,08 metra en
á stigamóti Breiðabliks í síðasta
mánuði kastaði hann 16,07 metra.
Jón Arnar fékk 848 stig fyrir kúlu-
varpið og komast upp í fjórða sæt-
ið samanlagt. Tomas Dvorak sigr-
aði í kúluvarpinu, kastaði 16,11
metra, en Roman Sebrle var annar
með 16,08 metra kast.
Roman Sebrle sigraði í loka-
grein dagsins, hástökkinu, en
Eistlendingurinn Mikk Pahapill
varð annar. Báðir stukku 2,07
metra. Jón Arnar stökk 1,95 metra
og varð sjöundi. ■
STAÐA EFSTU MANNA
Roman Sebrle (Tékklandi) 3.618
Bryan Clay (Bandaríkjunum) 3.484
Erki Nool (Eistlandi) 3.456
Kristjan Rahnu (Eistlandi) 3.388
Indrek Turi (Eistlandi) 3.361
Jón Arnar Magnússon (Íslandi) 3.345
Árangur Jóns Arnars í gær
60 metra hlaup 7,09 851
Langstökk 7,31 888
Kúluvarp 15,95 848
Hástökk 1,95 758
JÓN ARNAR MAGNÚSSON
Sjötti eftir fyrri daginn á sjö-
þrautarmótinu í Tallinn.
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Mönchengladbach - Werder Bremen 1-2
1-0 Sverkos (51.), 1-1 Klasnic (54.),
1-2 Baumann (90.)
Kaiserslautern - Köln 1-0
1-0 Lokvenc (23.)
Schalke - 1860 München 0-0
Wolfsburg - Borussia Dortmund 2-4
1-0 Petrov, vsp (36.), 1-1 Jensen (43.),
1-2 Koller (45.), 1-3 Frings (53.), 1-4 Ric-
ken (78.), 2-4 Baiano (87.)
Hamburg - Bochum 1-1
0-1 Colding (70.), 1-1 Romeo (81.)
Leverkusen - Eintracht Frankfurt 1-2
0-1 Hertzsch (21.), 1-1 Neuville (60.),
1-2 Amanatidis (77.)
Hansa Rostock - Freiburg 4-1
1-0 di Salvo (7.), 1-1 Sanou (64.),
2-1 Arvidsson (76.), 3-1 Plassnegger
(80.), 4-1 Tjikuzu (90.)
Þýska Búndeslígan:
Werder jók forskotið
BOTNBARÁTTA
Vratislav Lokvenc skorar sigurmark Kaiserslautern gegn Köln í gær.
STAÐAN
Werder Bremen 19 14 3 2 51:21 45
Stuttgart 18 11 5 2 26:7 38
München 18 10 6 2 41:20 36
Leverkusen 19 10 5 4 35:20 35
Bochum 19 8 6 5 32:23 30
Dortmund 19 8 4 7 33:28 28
Schalke 19 7 7 5 24:23 28
Wolfsburg 19 8 1 10 37:37 25
Hamburg 19 6 6 7 26:33 24
Freiburg 19 7 3 9 26:41 24
Hannover 18 6 5 7 33:39 23
1860 München 19 6 5 8 20:27 23
Hansa Rostock 19 6 4 9 28:30 22
Bor. M.gladbach 19 5 4 10 19:27 19
Kaiserslautern 19 6 3 10 22:33 18
Frankfurt 19 4 4 11 19:30 16
Köln 19 4 4 11 16:27 16
Hertha Berlin 18 2 7 9 15:37 13
Leikir í dag
Hertha Berlin - Stuttgart
Bayern München - Hannover