Fréttablaðið - 17.02.2004, Side 2
2 17. febrúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
„Það hafa nú margir valið sér minni
andstæðing en Bandaríkjaher - en
sumir hafa nú gert það og haft betur.“
Kristján Gunnarsson er formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur. Félagið hans hefur
höfðað mál til þess að þrýsta á um að varnarliðið
á Miðnesheiði standi við samninga.
Spurningdagsins
Kristján, á að fara í hart við herinn?
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon,
Vinstri grænum, var málshefj-
andi í utandagskrárumræðu á Al-
þingi í gær um skattgreiðslur
hundruða erlendra starfsmanna
við Kárahnjúkavirkjun. Hann
gagnrýndi fjármálaráðherra fyrir
rýr svör við fyrirspurn um álita-
mál og vandamál sem upp hafa
komið í skattmeðferð mála
tengdra virkjunarframkvæmdun-
um, en að mati fjármálaráðuneyt-
isins voru engin sérstök álitamál í
þessu efni.
„Svo óheppilega vildi til fyrir
fjármálaráðherra dagana eftir að
þetta svar barst að fjölmiðlar
fjalla um það að útsvarstekjur
hafi ekki skilað sér til sveitar-
félaga eystra, nema að örlitlu
leyti. Sveitarstjóri Norður-Héraðs
hefur greint frá því að sveitar-
félagið hafi kvartað við Skattstjór-
ann í Reykjavík, Skattstjóra Aust-
urlands, Ríkisskattstjóra og fjár-
málaráðherra. Af þessum sökum
átti ráðherra að vera það ljóst að
framkvæmdin gekk ekki snurðu-
laust fyrir sig,“ sagði Steingrímur
og sagði að deilur um lagaleg at-
riði málsins hefðu verið í þófi milli
ítalska verktakafyrirtækisins
Impregilo og skattayfirvalda frá
því í ágúst í fyrra.
Sérfræðingar Impregilo telja
að erlendum fyrirtækjum sé ekki
skylt að annast innheimtu stað-
greiðslu og Impregilo telur sig
ekki bera ábyrgð á staðgreiðslu
manna sem eru á vegum erlendra
undirverktaka. Ágreiningur um
greiðslu tryggingargjalds er á
leið fyrir dómstóla.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði að svörin við þessu
væru einföld. Hér giltu einfaldar
skattareglur og öll ágreiningsmál
þessu tengd færu í þann farveg
sem lögin gerðu ráð fyrir.
„Komi í ljós að vanhöld séu tal-
in vera á skattgreiðslum grípa
skattayfirvöld að sjálfsögðu til
hefðbundinna úrræða, svo sem
þess að áætla launagreiðanda
staðgreiðslu. Ábendingar um að
útsvarsgreiðslur hafi ekki borist
eru í eðlilegum farvegi innan
skattkerfisins og úr því verður
vonandi greitt innan tíðar. Það
gilda sömu reglur um starfsmenn
við Kárahnjúka og alla aðra í land-
inu. Skattskyldan er ótvíræð og
það er mikilvægt að þeir sem
starfa við Kárahnjúka geri sér
grein fyrir því að undanbrögð í
þessu efni verða ekki liðin,“ sagði
Geir. Hann bætti því við að Stein-
grímur og hans flokkur virtust
ekki skilja þetta þar sem þeim
væri svo í nöp við virkjunarfram-
kvæmdirnar við Kárahnjúka og
ítalska verktakafyrirtækið
Impregilo.
bryndis@frettabladid.is
Heimsóknir Svíakonungs:
Ráðherra
með í för
STOKKHÓLMUR Ráðherra úr
sænsku ríkisstjórninni mun hér
eftir fylgja Karli Gústafi Svía-
konungi í öllum opinberum
heimsóknum til annarra landa.
Ákvörðun um þetta var tekin
vegna umdeildra ummæla kon-
ungsins eftir ferð til Brunei.
Karl Gústaf lét þau orð falla í
sænskum fjölmiðlum að Brunei
væri opið land og soldáninn væri
í góðu sambandi við þegna sína.
Á Vesturlöndum er almennt litið
svo á að Brunei sé einræðisríki
sem virði ekki alþjóðlega mann-
réttindasáttmála.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði að tryggja yrði að orð kon-
ungsins væru ekki túlkuð sem
pólitískar yfirlýsingar. ■
ATVINNUMÁL Alþýðusamband Ís-
lands hefur leitað til iðnaðarráðu-
neytisins vegna athugunar á
starfsréttindum iðnaðarmanna á
Kárahnjúkum. Er það gert í
tengslum við ósk sambandsins til
sýslumannsembættisins á Seyðis-
firði um að staða atvinnuréttinda
allt að 226 iðnaðarmanna á Kára-
hnjúkum verði rannsökuð.
„Við ætlum að fá fund með lög-
fræðingi iðnaðarráðuneytisins
sem þekkir tilskipanir Evrópu-
sambandsins um gagnkvæma við-
urkenningu á starfi, starfsréttind-
um og slíku til að upplýsa okkur
um hvernig best sé að standa að
þessu,“ sagði Ingvar Sverrisson
hjá Alþýðusambandinu.
Á lista sem ASÍ sendi sýslu-
manninum eru allt að 95 trésmið-
ir, þrettán pípulagningamenn, 27
rafiðnaðarmenn, nítján vélvirkj-
ar, 70 járniðnaðarmenn og tveir
málmsuðumenn.
„Við þurfum upplýsingar um
hvaða tilskipunum Evrópusam-
bandsins væri hægt að byggja á,“
sagði Ingvar. „Jafnframt hver
málsmeðferðin eigi að vera og
hvaða gögn þurfi að leggja fram.
Síðan þarf að skoða nánar hvað
þessir erlendu starfsmenn eru að
sýsla uppfrá og það báðum við
sýslumanninn að láta kanna.“ ■
Réttindamál iðnaðarmanna á Kárahnjúkum:
ASÍ leitar til iðnaðarráðuneytis
KÁRAHNJÚKAR
ASÍ hyggst leita til iðnaðarráðuneytisins vegna atvinnuréttindamála iðnaðarmanna á
Kárahnjúkum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ALÞINGI Rannveig Guðmundsdótt-
ir, Samfylkingunni, gerði athuga-
samdir við það á Alþingi í gær að
engar Orion-eftirlitsvélar væru
nú á Keflavíkurflugvelli. Hún
sagði að túlka mætti það svo að
Bandaríkjamenn litu ekki lengur
á Ísland sem hluta af sínu varnar-
svæði og gagnrýndi að ekkert
lægi fyrir um það hvernig íslensk
stjórnvöld vildu haga vörnum
landsins.
„Ef eftirlitsvélarnar fara veik-
ist samningsstaða Íslands. Það
þokast ekkert í varnarviðræðun-
um. Eru Bandaríkjamenn með
þessu að draga úr vörnum hér?“
sagði Rannveig. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra sagði að
umræddar vélar væru gamlar og
úreltar og hefðu oft verið fluttar
til.
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin um það hvort Orion-
vélarnar fari héðan. Bandaríkja-
menn hafa fækkað þeim verulega
og það er gert ráð fyrir að ný kyn-
slóð taki við af þeim á næstu
árum. Við væntum svara frá
Bandaríkjamönnum um þessi
mál, en þau eru ekki í neinu sam-
hengi við loftvarnir Íslands,“
sagði Halldór.
Utanríkisráðherra vísaði því á
bug að ekkert lægi fyrir um það
hvaða kröfur stjórnvöld gerðu um
varnir landsins. „Það eru viðræð-
ur í gangi um varnarmálin, síðasti
fundur var í desember. Varnir Ís-
lands og sameiginlegar varnar-
skuldbindingar skipta höfuðmáli,“
sagði Halldór. ■
Sri Lanka-búar:
Sendir til
Þýskalands
FLÓTTAMENN Tveir Sri Lanka-búar,
sem óskað hafa eftir pólitísku
hæli hérlendis, hafa kært til
dómsmálaráðherra þá ákvörðun
Útlendingastofnunar að vísa þeim
til Þýskalands á grundvelli Dyfl-
innarsamningsins.
Georg Lárusson, forstjóri Út-
lendingastofnunar, segir að lög-
maður mannanna hafi farið fram á
það að mennirnir verði ekki sendir
til Þýskalands á meðan málið verði
tekið fyrir. Ákvörðun um það hvort
þeir verði sendir strax til Þýslands
verði tekin í dag.
Mennirnir halda því fram að
þeir séu undir lögaldri en Georg
segir að vegabréf sem þeir hafi
verið með sýni að þeir séu 26 ára.
Þá bendi læknisskoðun til þess
sama. Mennirnir sögðust hafa
komið til Íslands beint frá Sri
Lanka en Georg segir að gögn
sýni að þeir hafi fyrst komið til
Þýskalands. Vegna þessa verði
þeir sendir aftur þangað, líkt og
Dyflinnarsamningurinn kveði á
um. Þar muni þeir fá örugga máls-
meðferð. ■
Halldór Ásgrímsson um eftirlitsvélar flotans:
Ekki ákveðið hvort vélarnar fari héðan
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Utanríkisráðherra sagði á Al-
þingi í gær að ekkert samhengi
væri á milli loftvarna Íslands og
þess að engar Orion-eftirlitsvél-
ar væru nú á Keflavíkurflugvelli.
Hann sagði að vélarnar hefðu
oft verið fluttar til.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Þingmaður Vinstri grænna vakti máls á skattgreiðslum erlendra starfsmanna við Kára-
hnjúkavirkjun á Alþingi í gær. Hann gagnrýndi að skattgreiðslurnar hefðu ekki skilað sér.
Bruni:
Bústaðurinn
látinn brenna
ELDSVOÐI Sumarbústaður við
Helluvatn brann til kaldra kola
aðfaranótt mánudags. Slökkvilið
var kallað á vettvang en ákveðið
var að slökkva ekki eldinn þar
sem bústaðurinn var þegar ónýtur
og umhverfisaðstæður óhentugar
til slökkvistarfs.
Lögregla rannsakar upptök
eldsins en ekkert liggur fyrir um
þau að svo stöddu. Bústaðurinn
var í eigu Hrafns Gunnlaugssonar
og fjölskyldu hans. ■
Undanbrögð
verða ekki liðin
Steingrímur J. Sigfússon gagnrýnir að skattgreiðslur erlendra starfs-
manna við Kárahnjúkavirkjun hafi ekki skilað sér til sveitarfélaga
eystra. Fjármálaráðherra segir að greitt verði úr öllum álitamálum.
Kaldbakur:
Ekki tilboð í
hlut KEA
VIÐSKIPTI Benedikt Sigurðsson,
stjórnarformaður KEA, segir að
á stjórnarfundi í dag verði rætt
um þann áhuga sem fjárfestar
hafa sýnt eignarhlut félagsins í
Kaldbaki.
„Við höfum fengið fyrir-
spurnir um það hvort og þá hve
mikið sé til sölu. En það hefur
ekkert tilboð borist,“ segir
Benedikt.
KEA er stærsti hluthafinn í
fjárfestingarfélaginu Kaldbaki
með 27% hlut.
Kaldbakur skilaði 2,2 millj-
arða króna hagnaði á síðasta ári
að teknu tilliti til skatta. Meðal
eigna félagsins er tæplega þriðj-
ungshlutur í Tryggingamiðstöð-
inni og um 18% hlutur í Sam-
herja. ■