Fréttablaðið - 17.02.2004, Side 15

Fréttablaðið - 17.02.2004, Side 15
15ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 2004 Áttu vini í Færeyjum? ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 1 96 63 04 /2 00 4 Innifalið: Flug til Færeyja, flugvallarskattur og tryggingargjald. Takmarkað sætaframboð Sími: 570 3030 Tengiflug, 50% afsláttur með FÍ frá Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum vegna Færeyjaferðar (hafið samband við sölufulltrúa þegar flug til Færeyja hefur verið bókað á netinu). Einstakt tilboð á flugi, aðeins 7.500 kr. Vegna opins bréfs hér í blaðinumiðvikudaginn 11. febrúar sl. er rétt að fram komi að borgar- yfirvöld hafa haft forgöngu um umræðu um skipulagsmál Reykja- víkur og þó miðborgarinnar sér- staklega undanfarin misseri. Markmið þeirrar umræðu hefur verið að kalla fram sjónarmið íbúa og hagsmunaaðila því betur sjá augu en auga. Höfuðborgarsam- tökunum og öðrum er þökkuð þeirra þátttaka í umræðunni. Ítarleg umfjöllun Lagfæringar á Hringbraut og flutningur hennar hefur staðið til árum saman og hefur sú fram- kvæmd sérstaklega verið til um- fjöllunar bæði í deiliskipulags- vinnu og við mat á umhverfis- áhrifum. Efnisleg skoðanaskipti Reykjavíkurborgar og Höfuð- borgarsamtakanna hafa átt sér stað í gegnum þau ferli og verða þau ekki rakin hér enn á ný. Af því sérstaklega er spurt um kostnað við ákvarðanatöku og undirbúning málsins, þá hefur verið um það fjallað í skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur, samgöngunefnd, umhverfis- og heilbrigðisnefnd, í borgarráði og í borgarstjórn sem og á kynningar- fundum fyrir almenning og hags- munaaðila. Að auki hefur málið hlotið umfjöllun í samráðshópum Reykjavíkurborgar og Vegagerð- arinnar. Þessi ítarlega umfjöllun er hluti af daglegu starfi Reykjavík- urborgar og kostnaði við undir- búning þessa einstaka verkefnis hefur ekki verið haldið saman sér- staklega. Þessi vandaði undirbún- ingur er talinn svo sjálfsagður hluti framkvæmda, að fundartíma um einstök mál er ekki haldið til haga, frekar en að embætti borg- arstjóra reikni út kostnaðinn við að svara einstökum bréfum sem því berast, hvort sem þau berast í gegnum blöð eða eftir stjórn- sýsluleiðum. Það er sjálfsagt og ljúft að svara. ■ HRINGBRAUT „Lagfæringar á Hringbraut og flutningur hennar hefur staðið til árum saman og hefur sú framkvæmd sérstaklega verið til umfjöllunar hvorttveggja í deiliskipulagsvinnu og við mat á umhverfisáhrifum,“ segir Þórólfur Árnason borgarstjóri. Andsvar ÞÓRÓLFUR ÁRNASON ■ borgarstjóri skrifar um skipulagsmál Reykjavíkur. Opið svar borgarstjóra til Höfuðborgarsamtakanna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.