Fréttablaðið - 17.02.2004, Page 17

Fréttablaðið - 17.02.2004, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 2004 Ístað þess að borga fyrir líkams-rækt í hádeginu er ekki úr vegi að koma til okkar í hádeginu á þriðjudögum, setjast við spænskuborðið og tala spænsku. Það er eins með tungumál og lík- amsformið, það glatast með tím- anum. Tungumálakunnátta hefur lítið geymsluþol,“ segir Margrét Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Há- skóla Reykjavíkur. Hópur spænskumælandi fólks hittist á hverjum þriðjudegi í mötuneyti skólans klukkan tólf og Margrét segir alla velkomna. „Fólk er misjafnlega á veg komið. Í byrjun mæta sumir eingöngu til að hlusta og segjast tala næst. Það tekur fólk tíma að setja sig í gang og það er engin pressa. Fólk kem- ur alls staðar að og við spjöllum um daginn og veginn.“ Margrét segir spænskuborðið tengjast leiðarljósi skólans, sem sé alþjóðasamskipti. „Í haust fer af stað nýtt tungumálatengt viðskipta- nám við viðskiptadeild Háskóla Reykjavíkur. Nemendum geta tekið, meðfram venjulegu viðskiptafræði- námi, tungumál í sérhæfingu sem kennd er í beinum tengslum við við- skiptafræðina. ■ Tala saman spænsku í hádeginu Í hádeginu SPÆNSKA ■ Hópur spænskumælandi fólks hittist á hverjum þriðjudegi í mötuneyti Há- skóla Reykjavíkur. Forsölu á Sugababes flýtt Forsölu miða á tónleika breskustúlknahljómsveitarinnar Sugababes á Íslandi í apríl hefur verið flýtt og hún hefst sunnudag- inn 22. febrúar í stað 3. mars eins og áður hafði verið áætlað. Stúlkurnar munu spila vítt og breitt í heimalandi sínu áður en þær koma til Íslands og það er skemmst frá því að segja að það er nú þegar uppselt á alla tónleika þeirra í Bretlandi, nema í Cardiff og Sheffield þar sem einhverjir miðar eru eftir. Stúlkunum finnst víst fátt skemmtilegra en að syngja fyrir framan fullan sal af fólki og bíða spenntar eftir að komast af stað. Þá hafa þær lýst því yfir að þær vilji helst nota þessi tækifæri til að hitta aðdáendur sína persónu- lega, þannig að það gæti borið vel í veiði þegar sveitin mætir hing- að. ■Tónlist SUGABABES ■ kemur til Íslands í vor. Forsala miða á tónleikana hefst á sunnudaginn. SUGABABES Miðar á tónleika sveitarinnar í Bretlandi seljast eins og heitar lummur og forsölu hér heima hefur verið flýtt. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR Margrét hvetur fólk til að koma og æfa sig í spænsku í hádeginu. Hingað til hafi í kringum tólf manns mætt að jafnaði en sí- fellt fleiri eru að bætast í hópinn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.