Fréttablaðið - 18.02.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 22
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Íþróttir 19
Sjónvarp 24
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
DREGUR ÚR VINDI Í borginni eftir því
sem líður á daginn. Víða hvasst austan- og
suðaustantil. Grenjandi rigning í Reykjavík
og víðar en hlýtt þó það fari smám saman
kólnandi. Sjá síðu 6.
18. febrúar 2004 – 48. tölublað – 4. árgangur
● tónleikar í salnum í kvöld
Einar Jóhannesson:
▲
SÍÐA 26
Sól stattu
kyr
● nýtt leikrit frumsýnt
Draugalest:
▲
SÍÐA 22
Karlar í
vítahring
● 49 ára í dag
Stefán Jón Hafstein:
▲
SÍÐA 14
Karlmenn
þvo þvott
● séð og heyrt með einkarétt
Ástþór Magnússon:
▲
SÍÐA 26
Fær ekki
brúðkaupsmyndir
RANNSÓKNIN GAGNRÝND Guð-
mundur St. Ragnarsson lögmaður gagnrýnir
rannsókn líkfundarins í Neskaupstað. Lögregl-
an í Litháen sýndi manni í Vilníus mynd af
hinum látna og tilkynnti honum ranglega að
sonur hans væri dáinn. Sjá síðu 2
MILLJARÐA TAP DeCode, móðurfélag Ís-
lenskrar erfðagreiningar, tapaði í fyrra 35,1
milljón Bandaríkjadala, sem nemur 2,4 millj-
örðum íslenskra króna. Sjá síðu 2
ENGIN SAMÞJÖPPUN Framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins segir stað-
hæfingar um samþjöppun í íslensku við-
skiptalífi styðjast við tilfinningar þeirra sem
haldi slíku fram fremur en staðreyndir. Sjá
síðu 4
ÁRÓÐUR PÚTÍNS Ríkisreknu rússnesku
fjölmiðlarnir hafa verið gagnrýndir fyrir
að draga upp svo jákvæða mynd af
forsetanum að það líkist frekar áróðri en
fréttaflutningi. Sjá síðu 6
BROTTKAST Norska ríkissjónvarp-
ið NRK sýndi í gærkvöld þáttinn
Brennpunkt þar sem fjallað var
um brottkast í norskri fiskveiði-
lögsögu og var rætt við sjómenn
sem viðurkenndu að þeir stund-
uðu stórfellt brottkast til að auka
aflaverðmæti. Sjómennirnir
sögðu meðal annars að um helm-
ingur af öllum smáþorski undir
einu kílói færi í sjóinn. Þátturinn
hefur þegar vakið hörð viðbrögð
í Noregi, enda brottkast bannað
samkvæmt norskum lögum.
Í þættinum voru meðal ann-
ars sýndar brottkastsmyndir úr
umdeildri frétt Magnúar Þórs
Hafsteinssonar, fyrrverandi
fréttamanns RÚV. Magnús segir
að mikil umræða hafi verið um
málið ytra, en sjávarútvegsráð-
herra Noregs hefur þegar lýst
því yfir að hann muni strax
bregðast við vandanum.
Aksel Eikemo, hjá nytja-
stofnadeild norsku Fiskistofunn-
ar, sagði í samtali við Fréttablað-
ið í gærkvöld að hann hefði enga
ástæðu til að ætla að norsku sjó-
mennirnir væru að segja ósatt.
„Þetta er mjög alvarlegt mál
og það verður að grípa til að-
gerða til að hindra að sjómenn
stundi þetta. Fiskistofu og
norsku landhelgisgæslunni ber
að fylgjast með og koma í veg
fyrir brottkast, en eftirlitið er
erfitt í þessu sambandi og fáir
hafa fengið sekt vegna brott-
kasts. Ég hef miklar áhyggjur af
umfangi brottkastsins,“ sagði
Eikemo. ■
KRUNKAÐ YFIR KRÆSINGUNUM Matar- og skemmtihátíðin „Iceland Food and Fun Festival“ hefst formlega í dag. Hátíðin er haldin á
sama tíma og vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. Árni Mathiesen og Guðni Ágústsson, ráðherrar sjávarútvegs- og landbúnaðarmála, stungu
saman nefjum yfir kræsingunum í gær, ásamt meistarakokknum Sigga Hall og Sigurði Helgasyni, forstjóra Icelandair.
Féll sjö hæðir:
Barnið
lifði af
HONG KONG Fjögurra ára drengur
féll út um glugga á sjöundu hæð í
fjölbýlishúsi í Hong Kong. Það
varð drengnum til lífs að hann
lenti á tjaldhimni og kastaðist
þaðan á jörðina.
Drengurinn var með meðvit-
und og grét hástöfum þegar kom-
ið var að honum. Hann var fluttur
á sjúkrahús og að sögn lækna er
ástand hans stöðugt.
Barnið hafði verið skilið eftir
eitt heima og hefur móðirin verið
handtekin fyrir vanrækslu. ■
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja virti að vettugi ráð-
gjöf og viðvaranir Kaupþings árin
2000 og 2001 þegar bæjarsjóður
tók lán að upphæð tólf milljónir
Bandaríkjadollara.
Lánið var í upphafi í dollurum
en Kaupþingsmenn ráðlögðu bæj-
aryfirvöldum að gera gjaldeyris-
skiptasamning til að minnka
áhættu af gengistapi. Bankinn
taldi í áminningu sinni að geng-
iskarfa sem fylgdi betur íslenskri
gengisvísitölu væri betri. Þessu
sinnti bæjarstjórn ekki fyrr en
vorið 2001, tíu mánuðum eftir að
lánið var tekið, en þá hafði dollar-
inn snarhækkað á tímabilinu. Við
yfirferð og endurskipulagningu
núverandi meirihluta á lánamál-
um bæjarins kom í ljós að
áhættutap bæjarins vegna „doll-
aralánsins“ er á bilinu 75-80
milljónir króna, sem nemur 50
þúsundum króna á hvern íbúa í
Eyjum. Bæjaryfirvöld gerðu
samkvæmt þessu tvenn mistök;
fyrst með því að hafa ráðgjöfina
að engu fyrr en tíu mánuðum
seinna, þegar dollarinn var hvað
sterkastur gagnvart íslensku
krónunni, en síðan með því að
breyta viðmiðuninni og festa
dollaralánið. Hefði lánið áfram
verið bundið dollara væri höfuð-
stóllinn lægri í dag en þegar lán-
ið var tekið árið 2000.
Mál þetta var til umræðu á
fundi bæjarráðs í Vestmannaeyj-
um síðdegis í gær. Þar var lögð
fram yfirlýsing Kaupþings þar
sem staðfest er að ráðgjöfin hafi
verið hundsuð. „Skiptasamningur
var ekki gerður þegar lánið var
tekið og ekki fyrr en vorið 2001,
þrátt fyrir ítrekaðar áminningar
Kaupþings,“ segir í yfirlýsingu
Kaupþings.
„Bæjarbúar hafa tapað á þessu
77 milljónum króna. Það er stað-
reynd sem við bæjarbúar verðum
að horfast í augu við,“ segir Berg-
ur Ágústsson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum.
Aðspurður um ábyrgð fyrri
meirihluta vegna þessa segist
bæjarstjórinn ekki vilja tjá sig um
hana. „Ég sest ekki í dómarasæti,“
segir Bergur.
rt@frettabladid.is
Norsk mynd um brottkast vekur hörð viðbrögð:
Alvarlegt mál sem kallar á aðgerðir
HAUKAR MÆTA STJÖRNUNNI
Fimm leikir fara fram í Remax-deild karla í
handbolta. Klukkan 19.15 mætast
Grótta/KR - KA, Þór Ak. - Víkingur og ÍBV -
Selfoss. Klukkan 20 mætast Haukar - Stjarn-
an og Breiðablik - Afturelding.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JOHN KERRY
Fáir fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa birt
fréttir af meintu framhjáhaldi Johns Kerry.
Ásakanir um framhjáhald:
Ekkert ástar-
samband
KENÍA, AP Blaðakonan Alexandra
Polier neitar því alfarið að hafa
átt í ástarsambandi við öldunga-
deildarþingmanninn John Kerry.
Í síðustu viku var greint frá
því á vefsíðunni Drudge Report
að Kerry, sem þykir líklegastur til
að hljóta útnefningu demókrata
sem forsetaefni flokksins, hefði
haldið framhjá eiginkonu sinni
með Polier árið 2001. Kerry hefur
vísað þessum ásökunum á bug.
Polier, sem er 27 ára, er stödd í
Naíróbí í Kenía ásamt unnusta
sínum. Hún hefur verið elt á rönd-
um af blaðamönnum undanfarna
daga en í yfirlýsingu sem hún
sendi frá sér bað hún fjölmiðla að
láta sig vera. ■
Notkun þunglyndislyfja:
Mikil
aukning
HEILBRIGÐISMÁL Notkun þunglyndis-
lyfja nálgast nú 100 dagskammta á
hverja 1.000 íbúa, sem svarar til
þess að um það bil tíundi hluti
þjóðarinnar noti þessi lyf.
Samkvæmt heilbrigðismála-
ráðuneytinu kemur fram að
notkunin sé meiri hérlendis en í
nokkru nágrannaríkjanna. Notkun
lyfjanna hafi fimmfaldast á ára-
tug. Árið 1993 hafi dagskammtar
á hverja 1.000 íbúa verið um 20.
Heildarkostnaður vegna lyfja-
notkunarinnar hefur sexfaldast á
sama tímabili og var um 1.300
milljónir króna í fyrra. ■
Eyjamenn töpuðu
um 77 milljónum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja lét ógert í tíu mánuði árið 2000 að breyta dollara-
láni yfir í myntkörfu. Kaupþing varaði bæinn ítrekað við en án árangurs.
Dollaralánið kostar hvert mannsbarn í Eyjum 50 þúsund krónur aukalega.