Fréttablaðið - 18.02.2004, Síða 10
10 18. febrúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
HVALAVEISLA Í TÓKÝÓ
Fjölmargir gestir borðuðu hval sem var
matreiddur á margvíslega vísu á uppá-
komu á vegum Samtaka um að viðhalda
hefð hvalveiða sem efnt var til í Tókíó,
höfuðborg Japans, í gær. Hugmyndin að
baki uppákomunni var að hvetja lands-
menn til hvalneyslu.
Ásgeir Friðgeirsson um fjarskiptakostnað ríkisins:
Útboð hefði getað sparað ríkinu milljarð
ALÞINGI Ásgeir Friðgeirsson, Sam-
fylkingunni, gagnrýndi gríðarlegan
fjarskiptakostnað hins opinbera á
Alþingi í gær, en hann nam 1.350
milljónum króna árið 2002. Hann
sagði nýtilkomna samkeppni á fjar-
skiptamarkaði hafa gert sumum
fyrirtækjum kleift að lækka tal-
síma- og farsímakostnað um allt að
50% með útboði.
„Miðað við 1.500 milljóna króna
heildarfjarskiptakostnað hins
opinbera getur ávinningur ríkis-
sjóðs af útboðum numið 200-400
milljónum á ári. Hvers vegna hef-
ur fjármálaráðherra ekki beitt sér
fyrir útboðum á fjarskiptaþjón-
ustu ráðuneyta, ríkisfyrirtækja og
ríkisstofnana?“ sagði Ásgeir.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði að ekki hvíldi skylda á
hinu opinbera að bjóða út fjar-
skiptaþjónustu sína, en það mál
hefði verið til athugunar að undan-
förnu.
„Það er einungis spurning um
tíma hvenær farið verður út í ein-
hvers konar útboð á þessu sviði.
Auðvitað blasir það við að ríkis-
fyrirtæki geta hagnast á slíku,“
sagði Geir.
Ásgeir minnti á það að tíminn
kostaði peninga. „Í þrjú ár hefur hið
opinbera haft möguleika á að bjóða
út fjarskiptaþjónustu sína og miðað
við þær tölur sem ég nefndi er
hugsanlegt að einn milljarður króna
hafi farið fyrir borð á þessum árum.
Það má nýta peninga til annarra
hluta,“ sagði Ásgeir. ■
Grunur um andlega
kúgun og einelti
Vinnueftirlit ríkisins athugar framkomu yfirmanna Sohdexo á Kárahnjúkum. Kvartanir hafa
borist frá starfsmönnum. Meiningarmunur á stjórnun, segir Þorvaldur Hjarðar hjá Vinnueftirliti
ríkisins á Egilsstöðum.
ATVINNUMÁL Vinnueftirlit ríkisins
hefur nú til athugunar hvort
framkoma einstakra yfirmanna
fyrirtækisins Sohdexo á Kára-
hnjúkum við undir-
menn sína brjóti í
bága við lög um
vinnuvernd og
hvort ástandið sé
með þeim hætti að
um allt upp í and-
lega kúgun og ein-
elti sé að ræða.
„Þarna er um að ræða meining-
armun á stjórnun,“ sagði Þorvald-
ur Hjarðar hjá Vinnueftirliti rík-
isins á Egilsstöðum. Hann kvaðst
ekki vilja tjá sig nánar um eðli
málsins, þar sem Vinnueftirlitið
ræddi ekki við fjölmiðla um ein-
stök fyrirtæki þar sem verið væri
að vinna í málum. Hann sagði þó
almennt að mál af þessum toga
væru alltaf viðamikil og þyrftu ít-
arlegrar rannsóknar við áður en
farið væri að kveða upp úr með
niðurstöður.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu hafa margar kvart-
anir frá starfsmönnum Sohdexo
borist til AFL, Starfsgreinafélags
Austurlands. Fólkið hafi kvartað
undan hrokafullri og óviðeigandi
framkomu einstakra yfirmanna
sinna. Sohdexo er undirverktaki
Impregilo á Kárahnjúkum og sér
um mötuneytismál og hreingern-
ingar. Að sögn framkvæmda-
stjóra AFL hafa starfsmanna-
breytingar hjá fyrirtækinu verið
tíðar.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins hefur Vinnueftirlitið á
Austurlandi rætt við starfsfólk
og yfirmenn eftir að kvartanir
fóru að berast inn á borð þess. Þá
gerði Oddur Friðriksson yfir-
trúnaðarmaður Vinnueftirlitinu
viðvart eftir að honum höfðu
borist kvartanir þessa efnis frá
starfsmönnum. Oddur kvaðst í
samtali við Fréttablaðið ekki
vilja tjá sig um málið. Staða þess
væri á viðkvæmu stigi og alls
óvíst hver niðurstaða Vinnueftir-
litsins yrði.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins beinist stór hluti
óánægju starfsfólks í ræsting-
um og þrifum að mjög miklu
vinnuálagi á vaktatíma. Vinnu-
álag og erfið vinnuaðstaða ýta
undir óánægju starfsmanna í
ræstingageiranum.
jss@frettabladid.is
■
Staða málsins
er á viðkvæmu
stigi og alls
óvíst hver nið-
urstaða Vinnu-
eftirlitsins verð-
ur.
Nemandi bakaði
hassköku:
Kennararnir
veiktust
ÞÝSKALAND, AP Þýskur unglingspilt-
ur hefur játað að hafa gefið kenn-
urum í skóla í Lüneburg súkkulaði-
köku sem innihélt hass. Tíu kenn-
arar þurftu að leita til læknis eftir
að hafa borðað kökuna.
Kakan var skilin eftir fyrir utan
kennarastofu skólans. Tíu kennar-
ar kvörtuðu undan ógleði og voru
þeir fluttir á sjúkrahús. Þegar hass
greindist í þvagsýnum þeirra þótti
ljóst hvers kyns var.
Að sögn lögreglu mun hann að
líkindum sleppa við ákæru. ■
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík:
Vilja fresta færslu Hringbrautar
BORGARMÁL Ungir jafnaðarmenn í
Reykjavík, ungliðahreyfing Sam-
fylkingarinnar, skora á borgar-
yfirvöld að fresta færslu Hring-
brautar, milli Njarðargötu og
Miklatúns.
Ungir jafnaðarmenn hvetja
borgaryfirvöld til að skoða vand-
lega hvort skynsamlegra sé að
grafa Hringbrautina í stokk í stað
þess að leggja nýja sex akreina
stofnbraut sunnan við Umferðar-
miðstöðina og Læknagarð. Í álykt-
un stjórnarinnar er lagt til að þeim
1,5 milljörðum króna sem veita á í
framkvæmdir við færslu Hring-
brautar á þessu ári verði varið í
aðrar framkvæmdir, til dæmis við
að flýta gerð mislægra gatnamóta
á mótum Suðurlandsvegar og Vest-
urlandsvegar eða færslu Sæbraut-
ar milli Laugarnesvegar og Dal-
brautar. Einnig nefna Ungir jafn-
aðarmenn að nota megi fjármun-
ina í breikkun Vesturlandsvegar
eða byggingu skóla- og orkumann-
virkja eða í hafnargerð. ■
ANDRÉS JÓNSSON
Formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
ALÞINGI
Þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýndi gríðarlegan fjarskiptakostnað hins opinbera á Al-
þingi í gær, en hann nam 1.350 milljónum króna árið 2002. Hann sagði nýtilkomna sam-
keppni á fjarskiptamarkaði hafa gert sumum fyrirtækjum kleift að lækka talsíma- og far-
símakostnað um allt að 50% með útboði.
FRÁ KÁRAHNJÚKUM
Sohdexo er undirverktaki á Kára-
hnjúkum og annast hreingerningar
og mötuneytismál. Eins og komið
hefur fram í Fréttablaðinu hafa
margar kvartanir frá starfsmönnum
Sohdexo borist til AFL, Starfs-
greinafélags Austurlands.
Vinnumaður myrtur:
Hent í
ljónagryfju
SUÐUR-AFRÍKA, AP Þrír menn hafa ver-
ið ákærðir fyrir að henda manni í
ljónagryfju þar sem ljónin rifu hann
í sig og átu. Lögreglumenn fundu
bein, hauskúpu og rifin föt í ljóna-
gryfjunni í síðustu viku. Upphaf-
lega voru fjórir menn handteknir en
einum þeirra var sleppt eftir yfir-
heyrslur hjá dómara.
Mennirnir sem hafa verið
ákærðir eru eigandi og tveir vinnu-
menn á búgarði þar sem fórnar-
lambið hafði unnið en því hafði ver-
ið sagt upp eftir launadeilu. Hinn
látni er þeldökkur en ákærðu hvítir
og hafa stuðningsmenn Afríska
þjóðarráðsins og Kommúnista-
flokks Suður-Afríku mótmælt við
dómshúsið en þeir telja að kynþátta-
hatur orsök að illvirkinu. ■
DEILT UM MATARREIKNINGINN
Halliburton hefur frestað inn-
heimtu tæpra tíu milljarða króna
fyrir matvæli til Bandaríkjahers í
Írak. Umdeilt er hversu mikið her-
inn á að borga þar sem Halliburton
hefur rukkað í samræmi við áætl-
anir um hversu marga munna
þyrfti að fæða en herinn vill aðeins
borga fyrir þá sem mættu í mat.
■ Írak