Fréttablaðið - 18.02.2004, Blaðsíða 25
21MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar 2004
Prófraun Englendinga
og Portúgala
Fjölmargir vináttulandsleikir verða háðir í dag. Portúgalar taka á móti Englendingum
á hinum nýja og glæsilega Faro-Loule leikvangi í Algarve.
JÓN ARNÓR
Hitti þátttakendur í „vesturstrandarúrslitun-
um“ um helgina.
Vesturstrandarúrslitin
heppnuðust vel:
100 þáttak-
endur hittu
Jón Arnór
KÖRFUBOLTI Yfir 100 krakkar tóku
þátt í „vesturstrandarúrslitunum“
sem fóru fram hér á landi um
helgina. Mótið heppnaðist mjög
vel og skemmtu krakkarnir sér
konunglega.
Hápunktur helgarinnar var
þegar Jón Arnór Stefánsson, leik-
maður Dallas Mavericks í NBA-
deildinni, kom í heimsókn og hitti
þátttakendur. Jón áritaði glæsi-
legt risaplakat af sér sem allir
fengu og skotvissir þátttakendur
unnu glæsileg verðlaun eins og
keppnistreyju Jóns og áritaðar
keppnistreyjur þeirra Dirk
Nowitzki, Michael Finley og
Steve Nash, samherja Jóns hjá
Mavericks. ■
FÓBOLTI Mikið hefur gengið á í her-
búðum Englendinga fyrir leikinn.
Þrír varnarmenn heltust úr lestinni
vegna meiðsla, þeir Sol Campell,
Jonathan Woodgate og John Terry,
auk þess sem framherjinn Darius
Vassell veiktist og getur ekki leikið
með. Auk þeirra er Steven Gerrard
fjarverandi þar sem kærasta hans á
von á barni og Rio Ferdinand af-
plánar átta mánaða leikbann.
Þrátt fyrir þessi áföll á David
Beckham, fyrirliði landsliðsins,
von á jöfnum og spennandi leik.
„Portúgal er með frábært lið. Þeir
hafa marga frábæra leikmenn,“
sagði hann. „Að fara þangað og ná
góðum úrslitum myndi gefa okkur
mikið sjálfstraust.“ Síðasta viður-
eign liðanna endaði með 2-0 sigri
Portúgala og því eiga Englendingar
harma að hefna.
Leikurinn í kvöld er mikilvægur
hluti af undirbúningi liðanna fyrir
Evrópukeppnina í sumar þar sem
Portúgalar eru gestgjafar. Luis
Figo, vængmaðurinn sterki hjá
Real Madrid, leikur sinn 100. lands-
leik í kvöld og hefur fulla trú á
portúgölskum sigri. „Þetta verður
mikil prófraun fyrir bæði lið því
þarna kemur í ljós hversu tilbúin
þau eru fyrir EM 2004,“ sagði Figo,
sem hefur skorað 30 landsliðs-
mörk. „Þrýstingurinn fyrir leikinn
er sá sami og alltaf. Samt sem áður
erum við ekki með sama lið og
áður. Liðið sem við teflum fram
núna var nánast óþekkt árið 2000.“
Figo er ánægður með frammistöðu
Davids Beckham, samherja síns
hjá Real, og hlakkar til að mæta
honum. „David Beckham er algjört
fótboltaskrímsli,“ sagði hann.
„Hann er ekki aðeins einn af þeim
bestu um þessar mundir heldur
verður hann skráður í sögubæk-
urnar sem einn sá besti allra tíma.
Hans dyggð er sú að hann er mjög
vinnusamur inni á vellinum.“
Luiz Felipe Scolari, sem leiddi
Brasilíu til sigurs á HM fyrir tveim-
ur árum, hefur gert góða hluti með
Portúgal síðan hann tók við liðinu
eftir vonbrigði þess á HM. „Við
munum spila okkar leik eins og við
erum vanir,“ sagði Scolari. „Eng-
lendingar hafa spilað vel en það höf-
um við líka gert.“
Cristiano Ronaldo er einn þeirra
ungu leikmanna sem fá væntan-
lega að spreyta sig fyrir Portúgal í
kvöld. Hann er hvergi banginn við
að mæta Beckham, sem áður lék í
hans stöðu hjá Manchester United.
„Það skiptir engu máli fyrir mig
hvort ég spila gegn Beckham eða
einhverjum öðrum, ábyrgðin er sú
sama,“ sagði hann. „Þetta er enn
einn leikurinn fyrir mig til að sýna
hvað í mér býr fyrir EM í sumar.“
Tveir leikmenn til viðbótar úr
ensku deildinni eru í portúgalska
hópnum. Vængmaðurinn Hugo
Viana hjá Newcastle leikur að öll-
um líkindum sinn níunda landsleik
og Luis Boa Morte, framherji Ful-
ham, fær einnig tækifæri til að
sanna sig. Báðir hafa þeir staðið
sig með prýði í ensku úrvalsdeild-
inni í vetur.
Búst er við um 3.500 enskum
áhangendum á nýja Faro-Loule leik-
vanginn í Algarve þar sem leikur-
inn fer fram. Miklar varúðarráð-
stafanir hafa verið gerðar og þeir
sem ekki fá miða á völlinn geta
fylgst með leiknum á stórum sjón-
varpsskjá sem komið verður upp.
Tónlistaratriði verða einnig í boði,
allt til að halda enskum knatt-
spyrnubullum frá vandræðum.
freyr@frettabladid.is
F Ó T B O L T A F E R Ð I R
Verð kr. 109.900
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, rútur
til og frá flugvelli, gisting með fullu
fæði, skoðunarferð um Old Trafford,
bolur og húfa merkt skólanum, öll
kennsla og þjálfun og íslensk
fararstjórn.
Nánari upplýsingar veitir Íþróttadeild
Úrvals Útsýnar í Hlíðasmára í síma 585-
4100 eða á netfang: smarinn@uu.is.
gagn og gaman af verunni í skólanum. Með það að
markmiði er dagskráin brotin upp með ýmsum
uppákomum, svo sem ferð í Alton Towers
skemmtigarðinn og skoðunarferð um Old Trafford
svo eitthvað sé nefnt.
2 námskeið í sumar.
Í ár bjóðum við upp á tvær ferðir, lágmarksfjöldi á
hvoru námkeiði er 30 manns. Skólinn er hugsaður
fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12-16 ára. Æft er
tvisvar – þrisvar sinnum á dag.
31. júlí – 8. ágúst Námskeið 1
7. ágúst – 15. ágúst Námskeið 2
Fararstjórn.
Íslensk fararstjórn er með báðum hópum, tekið er á
móti krökkunum á Keflavíkurflugvelli og haldið utan
um hópinn þangað til komið er þangað aftur að
skólanum loknum. Tveir fararstjórar eru með hópnum
og er hlutverk þeirra að halda utan um hópinn, vera
honum innan handar allan tímann, hjálpa til við
túlkun á æfingum og öðrum dagskrárliðum varðandi
skólann.
Eftir vel heppnaða frumraun í fyrra, bjóðum við á
nýjan leik í ár Knattspyrnuskóla Man.Utd. í
samstarfi við Man. Utd klúbbinn á Íslandi. Skólinn
er á vegum Man.Utd eins og nafnið gefur til kynna
og hefur aðsetur í Denstone College,
heimavistarskóla mitt á milli Derby og Stoke, í
u.þ.b. klukkustundar akstursfjarðlægð frá
Manchester. Allur aðbúnaður við Denstone
College er mjög vel til þess fallinn að halda utan
um svona skóla, margir góðir vellir og góð
gistiaðstaða. Auk þess er skólinn hæfilega
einangraður sem er heppilegt þegar halda þarf
utan um hóp unglinga. Allir þjálfarar skólans eru
vel menntaðir unglingaþjálfarar og í fullu samræmi
við þær kröfur sem Man. Utd gerir um sína
unglingaþjálfara. Markmið skólans er að gefa
unglingum alls staðar frá innsýn í hvernig æft er
hjá stórum atvinnumannafélögum, að hjálpa þeim
við að vera betri knattspyrnumenn/konur auk þess
sem reynslan af slíkri samvist á að hafa mjög góð
félagsleg áhrif á unglinga. Þá er boðið upp á ýmsa
fræðslu fyrir ungt knattspyrnufólk, auk þess sem
að sjálfsögðu er reynt að tryggja að krakkarnir hafi
Manchester
United 2004
Knattspyrnuskóli
Námskeið 1: 31. júlí - 8. ágúst
Námskeið 2: 7. ágúst - 15. ágúst
í Smáranum,
sími 585 4100
CRISTIANO RONALDO
Í leiknum gegn Manchester City um síð-
ustu helgi. Hann mun etja kappi við
nokkra félaga sína úr United í kvöld.
KOSS Á KINN
David Beckham fagnar marki
Luis Figo, samherja síns hjá
Real Madrid. Það verður
væntanlega lítið um kossa-
flens á milli þeirra félaga í
Portúgal í kvöld.
Remax-deild karla:
Ekki flókið mál
HANDBOLTI Hörður Flóki Ólafsson
fór á kostum í marki HK, sem
sigraði ÍR 26-25 í úrvalsdeild
Remax-deildar karla í gær. ÍR-
ingar leiddu 15-10 í hléi en Flóki
varði fimmtán skot í seinni hálf-
leik og lagði grunninn á sigri
HK. Brynjar Valsteinsson skor-
aði sirkusmark þegar ein sek-
únda var til leiksloka og tryggði
HK fyrsta sigur sinn í úrvals-
deildinni.
Andrius Rackauskas skoraði
níu mörk (eitt úr víti) fyrir HK,
Brynjar Valsteinsson fjögur, El-
ías Már Halldórsson þrjú, Hauk-
ur Sigurvinsson þrjú (tvö úr vít-
um), Samúel Ívar Árnason, Al-
exander Arnarson og Atli Þór
Samúelsson tvö hver og Jón
Heiðar Gunnarsson eitt. Hörður
Flóki Ólafsson varði fimmtán
skot, tvö þeirra vítaköst, en
Björgvin Páll Gústavsson varði
sjö skot.
Sturla Ásgeirsson og Einar
Hólmgeirsson skoruðu sjö mörk
hvor fyrir ÍR, Hannes Jón Jóns-
son fimm, Ingimundur Ingi-
mundarson þrjú, Bjarni Fritz-
son tvö (eitt út víti) og Fannar
Örn Þorbjörnsson eitt. Ólafur
Haukur Gíslason varði sextán
skot, þar af eitt víti. ■
Remax-deild karla:
Valsmenn efstir
HANDBOLTI Valsmenn náðu foryst-
unni í úrvalsdeild Remax-deildar
karla í gærkvöld með 27-24 sigri á
Fram að Hlíðarenda. Staðan í leik-
hléi var jöfn, 13-13, en Framarar
höfðu lengstum frumkvæðið.
Valsmenn náðu forystunni, 20-19,
þegar tíu mínútur voru til leiks-
loka og voru mun öflugri en Fram-
arar á lokasprettinum.
Hjalti Pálmason var atkvæða-
mestur Valsmanna á lokakaflan-
um. Hann skoraði fimm mörk af
mörkum Vals, þar af fjögur í seinni
hálfleik. Heimir Örn Árnason sko-
raði fjögur mörk fyrir Val, Freyr
Brynjarsson, Atli Rúnar Steinþórs-
son og Sigurður Eggertsson þrjú
hver, Baldvin Þorsteinsson tvö
(eitt úr víti), Bjarki Sigurðsson,
Markús Máni Michaelsson og
Hjalti Gylfason tvö hver og Brend-
an Þorvaldsson eitt. Pálmar Pét-
ursson varði ellefu skot.
Hjálmar Vilhjálmsson skoraði
fimm af mörkum Framara, Arnar
Þór Sæþórsson fjögur (eitt úr
víti), Valdimar Þórsson fjögur,
Jón Björgvin Pétursson fjögur
(tvö úr víti), Stefán Baldvin Stef-
ánsson þrjú, Martin Larsen tvö og
Guðjón Finnur Drengsson og Haf-
steinn Ingason eitt mark hvor.
Egidijus Petkevicius átti stórleik í
marki Fram og varði 22 skot, þar
af eitt vítakast. ■
VALUR VANN FRAM
Markús Máni Michaelsson sækir að marki
Fram en Guðlaugur Arnarsson er til varnar.