Fréttablaðið - 10.05.2004, Page 19
19MÁNUDAGUR 10. maí 2004
■ Nýjar bækur
Latchmere Theatre er meðþekktari jaðarleikhúsum í
London. Íslenska leiklistarneman-
um Eyrúnu Ósk Jónsdóttur hefur
nú verið boðið að sýna verk sitt
Beauty þar. „Ég samdi verkið í vet-
ur eftir að hafa verið að velta mér
mikið upp úr hálendismálunum
hér heima og Íraksmálinu,“ segir
Eyrún Ósk. „Verkið samanstendur
af ólíkum samtölum sem eru svo-
lítið absúrd en ég sæki mikið efni í
íslensku þjóðsögurnar. Verkið er
hápólitískt og er í raun ein alls-
herjar samsæriskenning en áhorf-
endur fá meiri botn í samtölin eft-
ir því sem líður á leikritið.“
Þetta er í fyrsta sinn sem at-
vinnuleikarar setja upp verk eftir
Eyrúnu. „Ég hef alltaf verið að
skrifa frá því ég var pínulítil og
það var sett upp eftir mig verk
þegar ég var í grunnskóla og í
Flensborg. Á menningarhátíð FGE
sem var haldin í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu í fyrra var líka sett upp
verk eftir mig sem heitir Litla
stjarnan. Það var svo stelpa sem
ég kannast við sem er í leikhópn-
um Zecora Ura sem sýndi Beauty
áhuga. Zecora Ura hefur vakið
talsverða athygli þó ekki séu nema
3-4 ár síðan hópurinn hóf störf
saman og hún vildi að hópurinn
fengi að setja verkið upp. Ég er
sjálf í fimm manna leikhóp sem
við stofnuðum í Rose Brueford
leiklistarskólanum sem ég er í. Á
endanum var ákveðið að báðir hóp-
arnir settu verkið upp saman.“
Stefnt er að því að sýna verkið í
Finnlandi, á Íslandi og í London.
„Ég leitaði til Hafnarfjarðarbæjar
og menningarnefndin styrkti okk-
ur til að koma með verkið í ágúst
og sýna í húsnæði leikfélags Hafn-
arfjarðar. Það var svo þekktur
leikmyndahönnuður í London sem
vildi vinna með Zecora Ura sem
sendi handritið inn í Latchmere
Theatre og við frumsýnum verkið
þar þann 31. júlí. Þaðan halda leik-
hóparnir til Finnlands en verkið
verður frumsýnt á Íslandi þann 14.
ágúst. ■
Leiklist
EYRÚN ÓSK JÓNSDÓTTIR
■ Hefur samið leikritið Beauty sem
frumsýnt verður í Latchmere Theatre í
London í júlí.
Verkið Beauty sýnt í London
EYRÚN ÓSK JÓNSDÓTTIR
Leikrit Eyrúnar tekur á hálendismálum Íslendinga og Íraksmáli Breta.
Kiljuút-gáfa
JPV út-
gáfu held-
ur áfram
og nú eru
jólabæk-
urnar
Dætur
Kína -
bældar
raddir og
Maður að
nafni
Dave
komnar út á kilju. Dætur Kína -
bældar raddir eftir Xinran kom
út í innbundinni útgáfu í haust,
hlaut afbragðsdóma og seldist
upp. Höfundurinn heimsótti Ís-
land í tilefni af útgáfunni og hélt
fyrirlestur hér á landi.
Xinran var með útvarpsþátt í
Kína í átta ár sem þvert á allar
væntingar sló í gegn. Fjöldi
kvenna hafði samband við hana
og afhjúpaði fyrir henni lífsskil-
yrði sín í skjóli nafnleyndar; lífs-
skilyrði sem engan gat órað fyrir
að þær byggju við undir oft á tíð-
um sléttu og felldu yfirborði.
Konurnar sögðu henni frá skelfi-
legri lífsreynslu sinni, ofbeldi,
nauðgunum skipulögðum hjóna-
böndum, aðskilnaði frá börnum
sínum og botnlausri fátækt og
allsleysi undir oki pólitískrar
kúgunar og hefða. En þær töluðu
líka um ástina, drauma sína og
væntingar, og hvernig þeim,
þrátt fyrir hörmungar og neyð,
tókst að lifa af.
Maðurað
nafni
Dave er
lokabindi
sögu
Dave
Pelzer,
sem hófst
með bók-
inni Hann
var kall-
aður
„þetta“.
Dave
Pelzer er
lifandi sönnun þess að hægt er að
öðlast virðingu, vináttu og aðdá-
un samferðarmanna og njóta
sannra lífsgæða.
Fyrri bækur hans Hann var
kallaður „þetta“ og Umkomulausi
drengurinn hafa snortið fólk um
víða veröld og í þessu lokabindi
ævisögunnar segir hann meðal
annars frá átakanlegum endur-
fundum, þegar hann sættist við
föður sinn á dánarbeði og hittir
síðan móðurina sem lagði líf hans
í rúst.